Fréttablaðið - 08.02.2017, Blaðsíða 14
markaðurinn
Útgáfufélag 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
Netfang rit stjorn@markadurinn.is | Sími 512 5000 | Fax 512 5301
Ritstjóri Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
Ábyrgðarmaður Kristín Þorsteinsdóttir
Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@markadurinn.is Veffang visir.is
Tryggvi Þór Herbertsson, fjárfestir og
fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins, seldi tæpan helmingshlut
sinn í veitingastaðnum Bazaar í
október til hóps fjárfesta undir for-
ystu athafnakonunnar Margrétar
Ásgeirsdóttur og knattspyrnu-
mannsins fyrrverandi Arnars Gunn-
laugssonar. Tveir viðskiptafélagar
Tryggva, þeir Guðjón Þór og Svavar
Þór Guðmundssynir, seldu þá einn-
ig eignarhluti sína í Bazaar og á fjár-
festahópurinn nú allt hlutafé veit-
ingastaðarins og hótelið Oddsson
sem bæði eru rekin í JL-húsinu.
Þetta staðfestir Tryggvi Þór í
samtali við Markaðinn og svarar
aðspurður að hann og bræðurnir
Guðjón Þór og Svavar Þór hafi átt
alls 80 prósent í félaginu JL veitingar
ehf. Margrét og meðfjárfestar hennar
hafi komið inn í hluthafahóp félags-
ins í byrjun 2016 og þá keypt 20 pró-
sent. Veitingastaðurinn var opnaður
í byrjun síðasta sumars.
„Ég er búinn að selja þessa fjárfest-
ingu en hinir eigendurnir keyptu mig
út. Ég var aldrei annað en fjárfestir
þarna og er bara í þessum ráðgjafar-
bissness sem ég er búinn að vera í
síðan ég sat á þingi,“ segir Tryggvi og
svarar aðspurður að hann einbeiti
sér nú meðal annars að verkefnum
fyrir fjármálafyrirtækið Gamma.
Margrét Ásgeirsdóttir á helmings-
hlut í JL Holding, eiganda JL-hússins,
í gegnum félag sitt S9 ehf. Hin 50 pró-
sentin eru í eigu Loftsson Holding
ehf. en endanlegir eigendur þess eru
Lárus Sighvatur Lárusson og Stefán
Arnalds. Arnar Gunnlaugsson tók
við stjórnarformennsku í JL Veiting-
um af Tryggva Þór þegar viðskiptin
gengu í gegn um miðjan október og
eru hann og Margrét einu stjórnar-
menn þess. Hluthafalisti JL veitinga
hefur ekki verið uppfærður hjá fyrir-
tækjaskrá Ríkisskattstjóra (RSK).
Eins og sjá má á tilkynningu um
breytingu á stjórnarskipan félagsins
til RSK kom til greina að veitinga- og
sjónvarpsmaðurinn Ásgeir Kolbeins-
son myndi setjast í stjórn JL veitinga.
Nafn hans er á skjalinu en búið er að
strika yfir það. haraldur@frettabladid.is
Tryggvi Þór seldi sig út úr Bazaar
Veitingastaðurinn Bazaar og hótelið Oddsson eru rekin í JL-húsinu. fréttaBLaðið/GVa
Ég er búinn að selja
þessa fjárfestingu en
hinir eigendurnir keyptu
mig út.
Tryggvi Þór Her-
bertsson, fjárfestir
og fyrrverandi
þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins
Hafnarstræti 19 • 600 Akureyri
Sími 466 1600 - http://www.kaupa.is/soluskra/eign/386245
Til sölu - Höllin veitingahús ehf
Höllin Veitingahús á einni hæð við Hafnargötu 16 á Ólafsfirði - samtals
267,8 m². Fokheldar íbúðir og bílskúr/atvinnuhúsnæði í sama húsi - sam-
tals 253,0 m². Eignin skiptist í tvo veitingasali, rúmgott eldhús, salerni og
starfsmannaaðstöðu auk geymslna og útisvæðis.
Efri hæðin er skráð sem íbúðir og inngangurinn er að framanverðu.
Þar er gert ráð fyrir tveimur c.a. 80 m² íbúðum en rýmið er núna að
stærstum hluta eitt opið rými, fokhelt að telja. Þessi hluti er samtals
skráður 176,3 m². Á jarðhæð er svo 76,7 m² rými sem skráð er sem
bílskúr en er notað í dag sem trésmiðaverkstæði. Húsið hefur verið
tekið í gegn að utan, en þak er lélegt á þessum hluta.
Eignin býður því upp á fjölmarga möguleika, bæði fyrir áframhaldandi
veitingarekstur sem og uppgerð íbúða og/eða útleigu.
Eignin getur selst öll í einu eða í eftirfarandi hlutum:
- Einungis rekstur veitingahússins með tilheyrandi fylgifé.
- Veitingahúsið (267 m²) og reksturinn.
- Fokheldu íbúðirnar og bílskúrinn/atvinnuhúsnæðið. ásett verð á allri
eigninni 38. m skipti á eign á Akureyri eða höfuðborgarsv. koma til
greina, áhvílandi 5 m. Upplýsingar: Hvammur Fasteignasala
Svissneska fjárfestingafélagið
Quadia, sem hefur aðsetur í Genf,
hefur keypt tólf prósenta hlut, og
samið um kauprétt á 18 prósentum
til viðbótar, í íslenska súkkulaði-
framleiðandanum Omnom Choco-
late. Ef Quadia nýtir sér kaupréttinn
verður félagið annar stærsti hluthafi
Omnom en stofnandi svissneska
félagsins, Eric Christian Archem-
bau, hefur þegar tekið sæti í þriggja
manna stjórn íslenska fyrirtækisins.
Þetta staðfestir Óskar Þórðarson,
framkvæmdastjóri og einn stofn-
enda Omnom Chocolate, í sam-
tali við Markaðinn. Quadia rekur
skrifstofu í London og sérhæfir sig
að sögn Óskars í fjárfestingum í
sjálfbærri matvælaframleiðslu og
umhverfisvænni orku.
„Þetta mun hjálpa félaginu að ná
sínum markmiðum á innlendum og
erlendum mörkuðum. Quadia mun
hjálpa okkur mikið í öflun hrávöru
til framleiðslunnar. Svo eru gríðar-
legar tengingar, þegar við förum að
þurfa þess, varðandi dreifingu og
sölu. Þeir höfðu trú á okkar sýn og
vörumerkinu. Omnom er í miklum
vexti og með Quadia erum við að fá
gríðarlega reynslu frá fjárfestingar-
hópi, sem sérhæfir sig í að fjárfesta
og vinna með félögum sem hafa
umhverfisvernd, sjálfbærni og sam-
félagslega ábyrgð að leiðarljósi,“
segir Óskar.
Omnom var stofnað árið 2013 og
opnaði verksmiðju og verslun úti á
Granda í júlí í fyrra. Óskar og Kjart-
an Gíslason, súkkulaðigerðarmeist-
ari og stjórnarformaður Omnom,
mynda hluthafahóp félagsins ásamt
Quadia. Súkkulaði þess er að sögn
Óskars selt í yfir 500 verslunum í
17 löndum. Samkvæmt skráningu
Omnom hjá fyrirtækjaskrá Ríkis-
skattstjóra (RSK) var félagaformi
þess breytt úr einkahlutafélagi
í hlutafélag á sama tíma og Eric
Christian varð stjórnarmaður. – hg
Fjárfestir frá Sviss kaupir
hlut í Omnom Chocolate
Súkkulaði Omnom er nú fáanlegt í 17 löndum. fréttaBLaðið/VaLLi
Óskar Þórðarsson,
framkvæmdastjóri
Omnom Chocolate
Ráðherranefnd um efna-hagsmál samþykkti síðastliðið sumar að skipa sérstaka þriggja manna nefnd sem hefði það hlutverk að
koma með heildstæðar tillögur að
endurskipulagningu á fjármálakerf-
inu. Samkvæmt öruggum heimild-
um Markaðarins var ákveðið af ráð-
herranefndinni að Bretinn Michael
Ridley, fyrrverandi bankamaður hjá
JP Morgan sem hafði veitt stjórn-
völdum umfangsmikla ráðgjöf við
fjármálaáfallið 2008, myndi stýra
vinnu nefndarinnar.
Bjarna Benediktssyni, þáverandi
efnahags- og fjármálaráðherra,
var falið að ganga endanlega frá
skipan nefndarinnar. Aldrei varð
hins vegar af því að nefndin tæki
til starfa. Markaðurinn leitaði eftir
svörum af hverju það stafaði, bæði
frá Svanhildi Hólm Valsdóttur,
aðstoðarmanni Bjarna, og fjármála-
ráðuneytinu, en engin svör höfðu
borist áður en blaðið fór í prentun.
Ráðherranefnd um efnahags-
mál var á þessum tíma skipuð auk
Bjarna, sem gegnir nú embætti for-
sætisráðherra, þeim Sigurði Inga
Jóhannssyni, þáverandi forsætis-
ráðherra, Ólöfu Nordal, þáverandi
innanríkisráðherra, og Lilja Dögg
Alfreðsdóttur, þáverandi utanríkis-
ráðherra. Samkvæmt heimildum
Markaðarins var gert ráð fyrir því
að nefndin myndi í störfum sínum
meðal annars vinna tillögur að upp-
stokkun á bönkunum í því skyni að
minnka efnahagsreikning þeirra og
draga úr kerfislægri áhættu. Þá átti
hún að koma með tillögur um hvort
æskilegt væri að ríkið færi til fram-
tíðar með eignarhald á bönkunum,
hvort sem það væri í formi ráðandi
eignarhlutar eða sem eigandi alls
hlutafjár í einum banka.
Íslenska ríkið á sem kunnugt er
Íslandsbanka og Landsbankann
auk 13 prósenta hlutar í Arion
banka. Afkomuskiptasamningur
sem stjórnvöld gerðu við kröfuhafa
Kaupþings á sínum tíma þýðir jafn-
framt að ríkið mun fá í sinn hlut að
langstærstum hluta söluandvirði
Arion banka þegar Kaupþing selur
sinn hlut í bankanum.
Michael Ridley er sem fyrr segir
vel kunnugur Íslandi. Hann fór fyrir
þriggja manna teymi JP Morgan
sem kom hingað til lands sunnu-
daginn 5. október 2008. Í skýrslu
rannsóknarnefndar Alþingis segir
að „ákveðin kaflaskil“ hafi orðið
varðandi afstöðu ráðherra „til stöðu
íslenska bankakerfisins“ á fundi sem
þeir áttu með ráðgjöfum bankans
aðfaranótt mánudagsins 6. október.
Á þeim fundi útskýrðu sérfræðingar
JP Morgan að ekki yrði hægt að
bjarga bönkunum og því lögðu þeir
til að Alþingi myndi samþykkja sem
fyrst sérstakar heimildir fyrir stjórn-
völd í því skyni að vernda innlenda
starfsemi viðskiptabankanna. Fjár-
festingabankinn og ráðgjafar hans
gegndu í kjölfarið lykilhlutverki við
að aðstoða Seðlabankann að koma
greiðslumiðlun Íslands við útlönd í
eðlilegt horf.
hordur@frettabladid.is
Ráðherranefnd vildi
endurskoða bankana
Ráðherranefnd efnahagsmála samþykkti í fyrra að skipa nefnd til að koma með
tillögur að endurskipulagningu fjármálakerfisins. Bankamaðurinn Michael
Ridley átti að stýra vinnunni. Nefndin var hins vegar aldrei sett á laggirnar.
ráðherranefnd um efnahagsmál samþykkti í fyrra að fela þáverandi fjármálaráð-
herra að skipa nefnd um endurskipulagningu bankakerfisins.
8 . f e b r Ú a r 2 0 1 7 M I Ð V I K u D a g u r2 markaðurinn
0
8
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:4
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
3
1
-A
2
F
4
1
C
3
1
-A
1
B
8
1
C
3
1
-A
0
7
C
1
C
3
1
-9
F
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
0
s
_
7
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K