Fréttablaðið - 08.02.2017, Qupperneq 24
Almar Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins,
eyðir frítíma sínum með fjölskyldu
og vinum og í að horfa á fótbolta.
Hann er stúdent frá Fjölbrauta-
skólanum í Garðabæ, lauk BS-prófi
í hagfræði frá Háskóla Íslands og
MBA frá London Business School
2005. Almar var áður framkvæmda-
stjóri Félags atvinnurekenda, frá
2009 til 2014, og hefur að auki
sinnt kennslu við Háskólann í
Reykjavík. Eiginkona hans er Guð-
rún Zoëga hjúkrunarfræðingur og
saman eiga þau fimm börn á aldr-
inum fjögurra ára til tvítugs.
Hvað hefur komið þér mest á óvart
það sem af er ári? Donald Trump.
Ég átti von á afgerandi breytingum
þegar hann tæki við, en hann hefur
því miður gengið mun harðar fram.
Við erum líklega að sigla inn í tíma-
bil þar sem alþjóðaviðskiptasamn-
ingar og opin viðskipti milli landa
eiga undir högg að sækja. Það er
slæmt fyrir litla þjóð.
Hvaða app notarðu mest? Sam-
kvæmt símanum mínum er það
Facebook. Ég er hins vegar mjög
lukkulegur þegar Strava er í mikilli
notkun og því fylgir líka hlustun á
tónlist eða þætti í gegnum Podcast
Addict. Leggja.is léttir mér síðan
lífið í vinnutengdum snúningum.
Hvað gerir þú í frístundum þínum?
Mestur tíminn fer í ýmiss konar
samveru með fjölskyldu og vinum.
Við ferðumst bæði innanlands og
utan. Við höfum til dæmis mjög
gaman af því að fara á skíði og
ætlum til Akureyrar í vetrarfríinu.
Þá eyði ég miklum tíma í að horfa á
fótbolta, sérstaklega á sumrin.
Hvernig heldur þú þér í formi?
Ég spila fótbolta 1-2 sinnum í viku
yfir vetrartímann í góðra vina hópi.
Ég stunda líka útihlaup en þarf að
gefa þeim meiri tíma í dagskránni.
Svo hef ég fengist við að elta nokkur
börn í gegnum árin. Ætli það sé ekki
besta ræktin.
Ertu í þínu draumastarfi? Ég er
heppinn að vera í mjög fjölbreyttu
og krefjandi starfi hjá SI og starfa
með öflugum hópi starfsmanna. Það
á vel við mig að byggja upp liðsheild
og straumlínulaga fjölbreytt starf
samtakanna. Ég finn mig líka vel í
því að tala fyrir fjölbreyttum iðn-
aði sem skapar mikil verðmæti og
er dýrmætur hluti af samfélaginu.
Spilar fótbolta og ætlar
á skíði í vetrarfríinu
Almar Guðmundsson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins mynd/Stefán
Svipmynd
Almar Guðmundsson
„Íslendingar eru miðað við höfðatölu
okkar fjölmennasti meðlimahópur
og eftirspurn eftir íbúðaskiptum hér
á landi hefur aukist mikið,“ segir Jim
Pickell, forstjóri bandarísku íbúða-
skiptasíðunnar Homeexchange.com.
Pickell kom hingað til lands í gær
en fyrirtæki hans, sem er með höfuð-
stöðvar í Kaliforníu, gefur viðskipta-
vinum sínum kost á að skiptast á
húsnæði endurgjaldslaust. Forstjór-
inn og aðrir starfsmenn síðunnar
ætla að halda kynningarfund í Saln-
um í Kópavogi síðar í mánuðinum.
Markmiðið með honum er að vekja
athygli á fyrirtækinu og fjölga skráð-
um eignum hér á landi sem hægt
verði að skipta fyrir íbúðir erlendis.
„Við ætlum að hitta fólk, funda
með Ferðamálastofu og halda þenn-
an kynningarfund. Síðustu ár hefur
margt bent okkur í áttina að Íslandi.
Samkvæmt þeim nýjustu tölum sem
ég hef voru um 840 íbúðir skráðar
hér á landi um síðustu áramót og það
kæmi mér ekki á óvart ef talan væri
núna nær 950. Eftirspurnin er mikil
og svo mikil að Ísland er í hópi fimm-
tán eftirsóttustu viðskomustaða
erlendra ferðamanna sem skráðir
eru á síðunni,“ segir Pickell og bætir
við að alls um 66 þúsund eignir séu
skráðar á heimsvísu.
Pickell tók við starfi forstjóra
Homeexchange.com árið 2012 og
skömmu síðar runnu þrjú önnur fyr-
irtæki í tengdum rekstri inn í félag-
ið. Var hann áður aðstoðarforstjóri
Sony Connect. Spurður hvernig hann
útskýri þessa auknu eftirspurn eftir
íbúðum hér á landi svarar Pickell
að hana megi að miklu leyti rekja
til ferða WOW air til og frá Banda-
ríkjunum.
„Hér í Kaliforníu sem og annars
staðar eru margir að tala um ferðir
WOW air og að mínu mati hefur
tilkoma þess hér haft mikil áhrif á
okkar fyrirtæki og áhugann á Íslandi
þegar kemur að íbúðaskiptum. Alla-
vega þegar um er að ræða viðskipta-
vini okkar frá Bandaríkjunum en ég
þekki ekki aðrar ferðir flugfélagsins,“
segir Pickell.
Íslenskir viðskiptavinir Home-
exchange.com leita að sögn for-
stjórans að jafnaði eftir íbúðum í
Frakklandi, á Spáni, í Bandaríkjun-
um og á Ítalíu en einnig hér innan-
lands. Pickell segist meðvitaður um
miklar vinsældir Airbnb hér á landi
og þakkar fyrirtækinu fyrir að hafa
rutt brautina varðandi gistiaðstöðu
í deilihagkerfinu.
„Sérstaða okkar er aftur á móti sú
að peningar skipta ekki um hendur
þegar fólk skiptir á íbúðum. Þegar þú
leigir bíl af stórfyrirtæki þá finnurðu
kannski ekki alltaf þörf fyrir að skila
honum tandurhreinum eftir notkun.
En það er eitthvað sem gerist þegar
peningar eru teknir út úr dæminu.
Þegar þú færð lánaðan bíl frá kunn-
ingja er aftur á móti mun líklegra að
þú skilir honum tandurhreinum og
í fullkomnu ástandi. Svo erum við á
öðrum markaði en Airbnb. Við erum
að keppa við skiptinema á meðan
þeir keppa við hótel og frístunda-
hús.“ haraldur@frettabladid.is
Um 900 fasteignir hér
skráðar í íbúðaskipti
Forstjóri Homeexchange.com vill fjölga íslenskum íbúðum sem eru á skrá
bandaríska fyrirtækisins. Ísland í hópi fimmtán eftirsóttustu viðkomustaða
þeirra sem skráðir eru á vefsíðunni. Tengir aukna eftirspurn við ferðir WOW air.
forstjóri Homeexchange.com er meðvitaður um miklar vinsældir Airbnb hér á landi.
fréttAblAðið/VilHelm
Í grein sem þú skrifaðir í Markað-
inn í Fréttablaðinu þann 25. janúar
síðastliðinn fjallar þú um ástæður
þess að ekki sé skynsamlegt að
Seðlabanki Íslands slaki á peninga-
legu aðhaldi sínu, nema síður sé. Þar
segir þú meðal annars:
„Að mínu áliti eru peninga-
markaðsskilyrði á Íslandi nú þegar
of lausbeisluð og þrátt fyrir gríðar-
legan þrýsting á Seðlabankann að
lækka stýrivexti er ekkert svigrúm
til að losa um peningamálstefnuna
ef Seðlabankanum er alvara með að
tryggja 2,5% verðbólgumarkmið sitt
til meðallangs tíma.“
Einnig hjó ég eftir því í grein þinni
frá 26. desember síðastliðnum, að
þú sagðir að meginástæða þess að
ekki mætti slaka á hörðu aðhaldi
Seðlabankans væri sú að þrátt fyrir
mjög lága verðbólgu um þó nokk-
urt skeið, væru verðbólguvæntingar
enn háar, eða:
„Raunar eru verðbólguvæntingar
til meðallangs tíma áfram hærri og
ef við lítum lengra en 2-3 ár fram í
tímann þá vænta fjármálamarkað-
irnir þess að verðbólgan verði vel
yfir verðbólgu markmiðinu. En það
virðist erfitt fyrir Seðlabankann að
útskýra þetta fyrir þeim hópum sem
krefjast stýrivaxtalækkunar.“
Nú er það svo að Seðlabankinn
hefur fært okkur raunvaxtastig
undanfarin þrjú ár sem er svo hátt
að þess eru varla fordæmi meðal
þjóða í svipaðri aðstöðu og við. Á
sama tíma hafa verðbólguvæntingar
aldrei verið jafn lágar og stöðugar í
jafn langan tíma. Nánar tiltekið hafa
verðbólguvæntingar fjármálamark-
aðarins til næstu fimm ára verið
mjög lágar og stöðugar undanfarin
misseri eða rétt yfir 2% og umtals-
vert lægri ef dregin er frá áhættu-
þóknun sem skuldabréfaeigendur
vilja jafnan fá fyrir að halda á óverð-
tryggðum skuldabréfum í stað verð-
tryggðra (Seðlabankinn hefur sjálfur
metið þá áhættuþóknun sem 0,5%
á ári).
Verðbólga er í dag 1,9% og -0,9%
án húsnæðisliðar. Ólíkt þensluár-
unum fyrir hrun er hækkun hús-
næðisverðs ekki drifin áfram af
lánsfjárbólu heldur miklum fram-
boðsskorti af húsnæði samhliða
gríðarlegri aukningu ferðamanna
sem þurrkar upp framboð af hús-
næði í Reykjavík. Með öðrum
orðum er undirliggjandi verðbólga
undir frostmarki.
Útlán til heimila og fyrirtækja
halda áfram að dragast saman sem
hlutfall af landsframleiðslu og hefur
einkaneysla sjaldan ef nokkru sinni
verið lægri, eða rúmlega 50% af
landsframleiðslu, langt undir því
sem þekkist í Norður-Evrópu og
Bandaríkjunum. Það sem margir
kalla „þenslu“ ætti frekar að kalla
„velmegun“ vegna innreiðar nýrrar
atvinnugreinar samhliða miklum
viðskiptakjarabata og góðrar niður-
stöðu í samningum við kröfuhafa
föllnu bankanna.
Ákvörðun vaxta hefur líklega
sjaldan verið jafn mikilvæg og nú
þegar við siglum inn í jafnvægi sem
við vitum í raun ekki hvar liggur
vegna breyttrar samsetningar hag-
kerfisins. Þrátt fyrir mikla gengis-
styrkingu á seinasta ári og ótrúlega
forðasöfnun Seðlabankans, bendir
flest til þess að viðskiptaafgangur
muni ekki byrja að dragast saman
í bráð þar sem þjónustuafgangur
vex hraðar en vöruskiptahallinn og
mikill vaxtamunur hefur ýtt undir
gríðarlegt fjármagnsinnflæði, líkt og
sést í tölum Seðlabankans á þriðja
ársfjórðungi seinasta árs. Raun-
vaxtamunur við Evrópu er í dag
um 5% og þarf að minnka en ekki
aukast, á sama tíma og við afléttum
gjaldeyrishöftum að fullu. Ann-
ars er hættan sú að nýtt jafnvægi
krónunnar og hagkerfisins verði
óstöðugt og brotni vegna ofriss
krónunnar sökum of hárra vaxta.
Blessunarlega virðist hluti peninga-
stefnunefndar smám saman vera að
átta sig á þessari þróun og vonandi
mun hún ekki láta úrtölumenn hafa
áhrif á sig horft fram á veginn.
Kæri Lars
Agnar tómas
möller, sjóðstjóri
hjá GAmmA
Hér í Kaliforníu sem
og annars staðar eru
margir að tala um ferðir
WOW air.
Jim Pickell, forstjóri
Homeexchange.com
8 . f e b r ú a r 2 0 1 7 M I Ð V I K U D a G U r8 marKaðurinn
0
8
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:4
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
3
1
-B
6
B
4
1
C
3
1
-B
5
7
8
1
C
3
1
-B
4
3
C
1
C
3
1
-B
3
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
0
s
_
7
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K