Fréttablaðið - 14.02.2017, Page 6
1 4 . f e b r ú a r 2 0 1 7 Þ r I Ð J U D a G U r6 f r é t t I r ∙ f r é t t a b L a Ð I Ð
BÍLALAND BÝÐUR BÍLA Á FRÁBÆRUM
KJÖRUM! KOMDU STRAX Í DAG OG TRYGGÐU
ÞÉR GÓÐAN BÍL FRÁ BÍLALANDI
ÚRVAL
NOTAÐRA BÍLA
HYUNDAI Tucson Premium.
Nýskr.05/2016, ekinn 15 þ.km,
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ 5.490 þús. kr.
Staðsetning: Hyundai, Kauptúni 1
RENAULT Megane Expression.
Nýskr.01/2016, ekinn 4 þ.km,
dísil, beinskiptur.
VERÐ 3.190 þús. kr.
Staðsetning: Klettháls 11
LAND ROVER Discovery Sport S.
Nýskr.03/2016, ekinn 42 þ.km,
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ 6.250 þús. kr.
Staðsetning: Klettháls 1
BMW X5 XDrive 40d F15.
Nýskr.10/2010, ekinn 155 þ.km,
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ 4.790 þús. kr.
Staðsetning: Klettháls 11
RENAULT Captur Dynamic.
Nýskr.08/2015, ekinn 19 þ.km,
dísil, beinskiptur.
VERÐ 2.690 þús. kr.
Staðsetning: Klettháls 11
Discovery Sport HSE.
Nýskr.07/2015, ekinn 21 þ.km,
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ 7.590 þús. kr.
Staðsetning: Klettháls 1
Rnr. 360095
Rnr. 370386
Rnr. 192266
Rnr. 370122
Rnr. 192334
Rnr. 370371
www.bilaland.is
Kletthálsi 11 - 110 Reykjavík og
Hyundai notaðir bílar - Kauptúni 1 - 210 Garðabæ
Sími: 525 8000 - bilaland@bilaland.is
Opið frá kl. 9–18 og á laugardögum frá kl. 12–16.
www.facebook.com/bilaland.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
8
0
1
8
6
B
íl
a
la
n
d
2
x
3
8
1
4
fe
b
UmhverfIsmáL Kolefnisfótspor
íslenskrar framleiðslu hefur aukist
eftir að íslensk orkufyrirtæki hófu
að selja svokallaðar uppruna-
ábyrgðir á grænni íslenskri orku úr
landi.
„Nú eru einstaka kaupendur
farnir að kalla eftir kolefnisfótspori
vörunnar og hafa sum fyrirtæki,
líkt og HB Grandi, hafið skráningu
á loftslagsbókhaldi,“ segir Garðar
Svavarsson, framkvæmdastjóri upp-
sjávarsviðs HB Granda. „Afleiðingar
sölu upprunaábyrgða úr landi eru
þær að íslensk fyrirtæki þurfa þá að
skrá kjarnorku og kol í bókhald sitt.“
Íslensk orkufyrirtæki hófu þátt-
töku í kerfi með upprunaábyrgðir
árið 2011. Stærstu orkufyrirtækin
hafa fengið útgefnar uppruna-
ábyrgðir hjá Landsneti og hafa þær
að langstærstum hluta verið seldar
kaupendum utan Íslands. Hins
vegar er vitað að kaupendur upp-
runaábyrgða erlendis nýta sér ekki
orkuna.
Hér á landi er nærri allt rafmagn á
ársgrundvelli framleitt á umhverfis-
vænan hátt og er Ísland leiðandi í
heiminum þegar kemur að grænni
orku. Fyrirtæki hérlendis nýta
þessa grænu orku en þurfa að bók-
færa kol og kjarnorku. „Þetta hefur
vakið undrun okkar sem kaupenda
hreinnar orku. Við skorum á stjórn-
völd að koma í veg fyrir sölu á upp-
runaábyrgðum erlendis og standa
þannig vörð um orðspor íslenskra
sjávarafurða,“ segir Garðar. – sa
Kol og kjarnorka í útflutningsbókhaldið
vIÐskIptI Stjórn Lyfjafræðingafélags
Íslands gagnrýnir kröfu hóps innan
Samtaka verslunar og þjónustu sem
vill auka frelsi í viðskiptum með
ákveðin ólyfseðilsskyld lyf. Í Frétta-
blaðinu síðastliðinn miðvikudag
var greint frá rannsókn hópsins um
það hversu mikla aðstoð og ráðgjöf
starfsfólk apótekanna veitir við-
skiptavinum en í 13 prósentum til-
fella var slík ráðgjöf veitt að frum-
kvæði starfsfólksins.
Hópurinn vill gefa sölu vægra
verkjalyfja, kveflyfja, magalyfja
og ofnæmislyfja frjálsa svo hægt
sé að selja þessi lyf í almennum
verslunum en í dag má selja vissar
pakkningar nikótínlyfja og flúors
í verslunum með því skilyrði að
einungis afgreiðslufólk hafi aðgang
að þeim.
Í tilkynningu frá Lyfjafræðinga-
félagi Íslands segir að reynslan
hafi sýnt að framkvæmd og sölu og
aðgengis þessara lyfja sé ekki í sam-
ræmi við þær reglur sem gilda. „Lyf
eru viðkvæm vara og strangar reglur
gilda um geymslu þeirra hvort sem
er í flutningi, í lyfjavöruhúsum eða í
apótekum. Hver mun bera ábyrgð á
því í almennum verslunum að lyfin
séu geymd á réttan hátt?“ segir í til-
kynningunni.
Þá segir að öryggi viðskiptavinar-
ins sé aðalatriðið. „Hann á að geta
verið öruggur um að fá rétta lyfið
við þeim kvilla sem hrjáir hann
og svör við þeim spurningum sem
kunna að vakna hjá honum.“ – snæ
Ítreka mikilvægi öryggis við lyfsölu
Í dag verður að geyma öll lyf í versl-
unum á bak við afgreiðsluborðið.
banDaríkIn Nærri 190 þúsund
manns þurftu að yfirgefa heimili
sín í Kaliforníu á sunnudag vegna
flóðahættu, þar sem skemmdir
höfðu orðið á yfirfallsrás Oroville-
stíflunnar.
Vatn streymdi af miklum krafti
frá yfirfallsrásinni, en stuttu síðar
minnkaði vatnsstreymið verulega.
Hættan var þó ekki liðin hjá, því spáð
er hvassviðri seinna í vikunni og þá
má búast við flóðum.
Ekki er ljóst hvenær fólkið getur
snúið aftur til síns heima en yfirvöld
segja að erfitt verði að gera við yfir-
fallsrásina.
Stíflan er nærri hálfrar aldar gömul
og 235 metrar á hæð, sú hæsta í
Bandaríkjunum, og uppistöðulón
hennar, Oroville-vatnið, er eitt af
stærstu manngerðu stöðuvötnum í
Kaliforníu.
Engin hætta er á því að stíflan
sjálf bresti, hins vegar getur vatn
flætt í stórum stíl yfir stíflubrúnina
ef yfirfallsrásin virkar ekki eins og
skyldi. Enn meiri hætta er þó á því
að yfirfallsrásin skemmist enn frekar
sem þýddi að mikill vatnsflaumur
streymdi þaðan út og niður yfir
byggðina fyrir neðan.
„Bresti yfirfallsrásin mun vatns-
flóð streyma stjórnlaust niður frá
Oroville-vatni,“ segir í tilkynningu til
íbúa frá stjórnvöldum.
Jerry Brown, ríkisstjóri í Kaliforníu,
sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem
hann sagði aðstæður þarna vera
flóknar og að þær geti breyst hratt.
Allur tiltækur mannafli og búnaður
hafi verið sendur til þess að takast á
við vandann.
Þá hefur þjóðvegum neðan stífl-
unnar verið lokað og umferðinni
beint annað.
Skemmdin á yfirfallsrásinni stafar
af jarðrofi sem varð skyndilega fyrir
nokkrum dögum, með þeim afleið-
ingum að hluti rásarinnar brast og
stórt gat myndaðist á henni.
Í nágrenninu býr fjöldi fólks og öll
sú byggð er í verulegri hættu ef illa fer.
Mikil umskipti hafa orðið í Kali-
forníu þennan veturinn, því eftir
mikla þurrka árum saman hefur
úrkoma skyndilega orðið með allra
mesta móti, bæði regn og snjókoma.
Úrkoman hefur þó verið mest í
norðanverðri Kaliforníu. Sunnan
til eru enn þurrkar, en þó ekki eins
alvarlegir og verið hefur undanfarin
misseri. gudsteinn@frettabladid.is
Tvö hundruð þúsund
forða sér vegna flóða
Jarðrof olli skemmdum á yfirfallsrás hæstu stíflu Bandaríkjanna. Mikil úrkoma
hefur verið í norðanverðri Kaliforníu í vetur, en miklir þurrkar höfðu hrjáð íbúa
þar árum saman. Fjöldi hefur þurft að yfirgefa heimili sín vegna hættunnar.
Vatnflaumurinn streymir úr skemmdri yfirfallsrás Oroville-stíflunnar í Kaliforníu.
Fréttablaðið/EPa
1
4
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:3
2
F
B
0
3
2
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
3
A
-C
C
4
4
1
C
3
A
-C
B
0
8
1
C
3
A
-C
9
C
C
1
C
3
A
-C
8
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
3
2
s
_
1
3
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K