Fréttablaðið - 14.02.2017, Side 8

Fréttablaðið - 14.02.2017, Side 8
Ávarp ráðherra Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra Hvað finnst Íslendingum um erlenda fjárfestingu á Íslandi? Þóra Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Maskínu Er eftirsóknarvert að vera eyland? Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður efnahagssviðs SA Alþjóðavæðing í báðar áttir Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri SI Umræður: Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA Lilja Alfreðsdóttir, alþingismaður Þórður H. Hilmarsson, forstöðumaður fjárfestingarsviðs Íslandsstofu Fundarstjóri: Bjarni Már Gylfason, hagfræðingur SI Samtök iðnaðarins, Íslandsstofa og Samtök atvinnulífsins boða til fundar um erlenda fjárfestingu á Íslandi. Miðvikudaginn 15. febrúar á Grand Hótel kl. 8.30-10.00 Er erlend fjárfesting á Íslandi blessun eða böl? MORGUNVERÐARFUNDUR Vinsamlegast skráið þátttöku á vef SA: www.sa.is » Venjuleg ársfundarstörf » Önnur mál Sjóðfélagar eiga rétt til setu á ársfundinum. Fundargögn verða afhent á fundarstað. Reykjavík, 26. janúar 2017 Stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna Ársfundur Lífeyrissjóðs verzlunarmanna verður haldinn þriðjudaginn 21. mars kl. 18 á Grand Hótel Reykjavík. Ársfundur 2017 DAGSKRÁ FUNDARINS live.is Skýrsla er ákall um aðgerðir Tafarlausar aðgerðir eru forsenda þess að Ísland geti staðið við alþjóðlegar skuldbindingar sínar í lofts- lagsmálum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá HÍ. Björt Ólafsdóttir umhverfisráðherra var íbyggin við kynningu skýrslunnar enda er ljóst að verkefni hennar næstu árin risavaxið. FréttaBlaðið/anton Brink umhverfismál Ekki er mögulegt að ná fram þeim samdrætti í útstreymi gróðurhúsalofttegunda sem Íslend- ingar hafa skuldbundið sig til sam- kvæmt Parísarsamkomulaginu nema undanskilja losun frá stóriðju – en sú losun fellur undir viðskipta- kerfi Evrópusambandsins um los- unarheimildir og telst ekki með. Ljóst er að möguleikar Íslands eru miklir þegar kemur að samdrætti í útstreymi gróðurhúsalofttegunda. Skýrsla Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands um möguleika Íslands til að draga úr losun gróður- húsalofttegunda og auka bindingu kolefnis úr andrúmslofti var kynnt í gær. Skýrslan er unnin að beiðni umhverfis- og auðlindaráðu- neytisins til að byggja undir stefnu- mótun í loftslagsmálum, líkt og áþekk skýrsla frá árinu 2009 sem lá áætlun Íslands til grundvallar um að standa við skuldbindingar til ársins 2020 samkvæmt ákvæðum Kýótó- bókunarinnar. „Það er ekki endilega svo, vegna þess að stóriðjan er ekki inni í skuldbindingum okkar gagnvart Parísarsamkomulaginu,“ segir Brynhildur Davíðsdóttir, prófessor í umhverfis- og auðlindafræði við Háskóla Íslands, spurð hvort sú til- finning sé rétt að skýrslan sé svört og opinberi að staða Íslands í lofts- lagsmálum sé slæm. „Ef við horfum á þetta með þeim gleraugum þá er þetta vel gerlegt. En þetta væri mjög þungur róður ef sú væri ekki raunin og losun stóriðju teldi,“ segir Brynhildur og játar því að í skýrsl- unni felist ákall til stjórnvalda um að taka myndarlega til hendinni í málaflokknum – og það strax. Eins segir Brynhildur að forsendur skýrslunnar verði að skoðast með tilliti til þess hversu mikið binding kolefnis mun telja í útreikningum framtíðarinnar – líklega verði sett þak á það, en sóknarfæri Íslands eru nokkuð mikil í skógrækt, land- græðslu og endurheimt votlendis. „Það eru aðgerðir í hverjum ein- asta geira sem hægt er að ráðast í og eru tæknilega mögulegar í dag. Nema í stóriðjunni, það er að segja,“ segir Brynhildur. „Það er líka áhuga- vert að margar þessara aðgerða geta skilað þjóðhagslegum ábata þegar horft er til lengri tíma. Þetta er eins og með hitaveituvæðinguna sem var dýr – en það má líta rafbílavæðingu sömu augum.“ Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, tók á kynningar- fundinum af allan vafa um metnað sinn til að taka til hendinni. Hún ætlar að skila skýrslu til Alþingis strax í þessum mánuði þar sem fullt tillit verður tekið til úttektar Hagfræðistofnunar, sem er mikil að vöxtum. Hún vísaði í stefnuyfir- lýsingu ríkisstjórnarinnar þar sem segir að gerð verði aðgerðaáætlun í loftslagsmálum í samræmi við Par- ísarsamkomulagið og að áætlunin feli meðal annars í sér græna hvata, skógrækt, landgræðslu og orku- skipti í samgöngum. svavar@frettabladid.is Aukning allt að 99% l Spáð er aukningu í losun um 53- 99% til 2030 miðað við 1990. l Ef kolefnisbinding með skóg- rækt og landgræðslu er tekin með er aukningin heldur minni, eða 33-79%. l Greindar voru 30 mótvægisað- gerðir með tilliti til kostnaðar og ábata. Sumir kostir eru dýrir, aðrir kosta tiltölulega lítið og sumir skila jafnvel fjárhagslegum nettóábata. l Að óbreyttu stefnir í að Ísland standi ekki við skuldbindingar sínar gagnvart Parísarsamningn- um til 2030, en slíkt er hins vegar mögulegt ef gripið verður til fjöl- breyttra mótvægisaðgerða. l 40% lægri nettólosun 2030 en útstreymi ársins 1990 er lands- markmið Íslands samkvæmt Parísarsamkomulaginu. 1 4 . f e b r ú a r 2 0 1 7 Þ r i Ð J u D a G u r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a Ð i Ð 1 4 -0 2 -2 0 1 7 0 4 :3 2 F B 0 3 2 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C 3 A -B 8 8 4 1 C 3 A -B 7 4 8 1 C 3 A -B 6 0 C 1 C 3 A -B 4 D 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 3 2 s _ 1 3 _ 2 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.