Fréttablaðið - 14.02.2017, Síða 14

Fréttablaðið - 14.02.2017, Síða 14
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Lilja Björk Hauksdóttir, liljabjork@365.is, s. 512 5372 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is, s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357 sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.is, s. 512 5457 | Jóhann Waage, johannwaage@365.is, s. 512 5439 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.is, s. 512 5433 sólveig gísladóttir solveig@365.is gísli guðlaugsson hannaði frumgerð eyrnatappa til notkunar við lyfjagjöf vegna bráðrar miðeyrnabólgu. mynd/eyÞór Gísli tók þátt í verkefni sem unnið hefur verið að í nokkurn tíma og miðar að því að þróa nýtt meðferð- arúrræði við bráðri miðeyrna- bólgu sem er æði algeng meðal ungra barna. „Hingað til hefur algengasta meðferðarúrræðið verið að nota sýklalyf en slíkt er ekki æskilegt enda fer sýklalyfja- ónæmi vaxandi í heiminum,“ út- skýrir Gísli sem fékk það hlutverk að hanna eyrnatappa sem hægt yrði að nota til að koma lyfinu, sem hefur að geyma innihalds- efni úr ilmkjarnaolíu, týmóli, inn að miðeyra barna, en týmól er að- alinnihaldsefnið í timjanolíu og hefur breiða bakteríudrepandi virkni. „Vinnan við eyrnatappann fór af stað í haust. Þá kom ég fram með hugmyndir að hönnun og eftir það hófst vinna við að búa til frumgerðina.“ Gísli hannaði eyrnatappa með þremur hett- um með opi í miðju. Hönnuð voru lítil hylki með týmól-lyfinu í og á að setja þau í op eyrnatappans. „Mikil vægast er að tappinn nái að loka eyrnagöngunum alveg því lyfið virkar þannig að það gufar upp og smýgur í gegnum hljóð- himnuna og inn í miðeyrað. Því er mikilvægt að lyfið leki ekki út úr eyrnagöngunum.“ Ein helsta áskorunin var stærð tappans. „Ég þurfti að hanna hann fyrir lítil börn upp í tveggja, þriggja ára aldur og þurfti því fyrst og fremst að huga að því að tappinn myndi passa inn í eyrna- göngin. Einnig var áskorun að búa til nógu endingargóða frumgerð sem hægt væri að gera tilraunir með,“ segir Gísli en frumgerðirn- ar eru úr mjúku og sveigjanlegu silíkoni. „Ég prófaði nokkur mis- munandi efni en þetta kom best út,“ segir hann. Eyrnatappann hannaði hann í tölvu. Út frá því teiknaði hann mót sem var síðan þrívíddarprentað. Að lokum var silíkoni sprautað í mótið. Gísli framleiddi eyrnatappa í fjórum stærðum og að minnsta kosti fimm í hverri stærð. Fram- kvæmd var áhættugreining til að meta hönnunina og koma auga á hugsanlegar hættur sem fylgja notkun eyrnatappans. Niðurstöð- ur áhættugreiningarinnar bentu til þess að hönnuninni fylgdi ekki mikil áhætta og að auðvelt væri að draga úr henni. Gísli hefur nú afhent frum- gerðirnar og munu aðrir sjá um að rannsaka frekar samhangandi virkni þeirra og lyfsins. eyrnatappar til lyFjagjaFa gísli guðlaugsson kynnti nýverið meistaraverkefni sitt við iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild Háskóla Íslands. Verkefnið snerist um að hanna og framleiða frumgerð eyrnatappa til notkunar við lyfjagjöf vegna bráðrar miðeyrnabólgu. Ást í upphæðum Ástin verður ekki mæld í pening- um en Valentínusardaginn er hins vegar hægt að mæla í upphæðum. Bandaríkjamenn eyða 18,6 milljörðum dala þegar þeir halda upp á Valentínusardaginn. Þar af fer rúmur einn og hálfur milljarð- ur í sælgæti, tæpir tveir í blóm og 4,4 milljörðum er eytt í demanta, gull og silfur. 224 milljónir rósa eru ræktaðar sérstaklega til að selja á Valentínusardag. Rauðir rósavendir og hjarta- laga konfektkassar eru sígildar Valentínusargjafir og einnig má nefna skartgripi og ilmvötn eða rakspíra. Viltu Vera Valentínusinn minn? Uppruna Valentínusarkortanna má rekja til þess miðaldasiðar að syngja eða kveða til ástarinnar sinnar á þessum ástarinnar degi. Elsta ritaða Valentínusarkort- ið er eftir franskan hertoga sem var lokaður inni í Tower of Lond- on árið 1415 og stytti sér stundir með því að yrkja ástarljóð til kon- unnar sinnar. Elsta Valentínusar- kortið sem ritað var á enska tungu sendi kona að nafni Margrey Brews ótrúum elskhuga árið 1477. Um aldamótin nítján hundruð var sá siður að senda Valentínusarkort mjög algengur í Bretlandi og hafði teygt sig vestur um haf þar sem sagan hófst fyrir alvöru. Kortin eru aðallega send milli elskenda en einnig til að sýna áhuga og síðustu áratugi hefur færst í vöxt að lýsa með þeim almennri væntumþykju. Í dag, Valentín- usardag, er áætlað að 145 milljónir Valentínusarkorta hafi verið send- ar með póstinum í Bandaríkjunum en mun fleiri afhent í eigin persónu. Efni kortanna er gjarna að biðja einhvern að vera „Valentínusinn“ sinn sem getur bæði merkt kærasti eða kærasta en líka sá sem viðkomandi þykir vænt um og langar að dekra við. GERRY WEBER - TAIFUN Nýjar sendingar á frábæru verði (Sömu verð og á hinum Norðurlöndunum) 1 4 . f e b r ú a r 2 0 1 7 Þ r I Ð J U D a G U r2 f ó l k ∙ k y n n I n G a r b l a Ð ∙ X X X X X X X Xf ó l k ∙ k y n I n G a r b l a Ð ∙ h e I l s a 1 4 -0 2 -2 0 1 7 0 4 :3 2 F B 0 3 2 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C 3 A -D 6 2 4 1 C 3 A -D 4 E 8 1 C 3 A -D 3 A C 1 C 3 A -D 2 7 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 3 2 s _ 1 3 _ 2 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.