Fréttablaðið - 14.02.2017, Qupperneq 28
Stronger er fjarþjálfunarkerfi í gegnum vefsíðu. Hver not-andi fær sitt svæði þar sem hver dagur er lagður upp í æfingum og mataræði. Síðan er hönnuð með far-
síma í huga og hugmyndin er sú að
hægt sé að taka símann með sér í
ræktina og fylgja prógramminu þar.
Það fylgja myndbönd með sem skýra
hverja æfingu þannig að ef eitthvað
er óskýrt þá er bara hægt að horfa á
myndbandið til að fá það á hreint.
Mjög einfalt og skýrt,“ segir Kristbjörg
Jónasdóttir, einkaþjálfari og tilvon-
andi eiginkona landsliðsfyrirliðans
Arons Einars Gunnarssonar, spurð
út í nýtt þjálfunarkerfi sem kemur á
markaðinn í lok mars á þessu ári.
„Sumir hafa agann og drifkraftinn
til að gera æfa algjörlega án aðstoðar,
en öðrum finnst voða þægilegt að fá
hvatningu og leiðsögn annars staðar
frá. Ég vil meina að Stronger sé frábær
lausn fyrir það fólk,“ segir hún.
Í æfingakerfinu er ekki lögð
áhersla á strangt mataræði heldur
mun Kristbjörg deila með notendum
hugmyndum og uppskriftum. „Hvað
mataræði varðar þá finnst mér
mestu máli skipta að fólk skipti út
nokkrum hlutum fyrir aðra hollari
valkosti. Smávægilegar breytingar
geta gert svakalega mikið. Þetta
snýst allt um heilbrigðan lífsstíl og
að sjálfsögðu að leyfa sér aðeins af
og til, annars væri þetta nú ekkert
skemmtilegt,“ segir hún.
Kristbjörg keppti í fitness í nokkur
ár, með frábærum árangri en meðal
annars hafnaði hún í öðru sæti á UK
Nationals fitness-mótinu árið 2014
og vann til gullverðlauna á velska
meistaramótinu sama ár. Árið 2011
lenti hún svo í 2. sæti á Arnold Classic
Europe Bikini Fitness.
„Ég lærði mikið á þessum tíma en
var alltaf mjög hungruð í að prófa
fleiri tegundir af æfingum og líkams-
rækt og fór að láta það eftir mér
smám saman. Mér hefur alltaf fund-
ist sem það þurfi að vera samræmi
milli styrks og útlits. Og mér finnst
að konur eigi að hafa metnað fyrir
því að vera sterkar,“ útskýrir Krist-
björg og bætir við að mikil hugarfars-
breyting hafi orðið hvað þetta varð-
ar. „Fjölmargar stelpur eru farnar að
æfa kraftlyftingar og bardagaíþróttir.
Þetta er svo skemmtileg þróun og svo
í línu við það hvernig ég sé heiminn,“
segir Kristbjörg.
Hugmyndin mótaðist
á meðgöngunni
„Það var á meðgöngunni þegar ég
gekk með strákinn okkar, Óliver
Breka, sem er núna á öðru aldursári
sem ég fór virkilega að gefa mér tíma
til að þróa þetta og safna mér upplýs-
ingum. Það sem vakti fyrir mér var að
búa til þjálfunarprógrammið sem ég
hefði viljað geta haft aðgang að þegar
ég var að byrja að æfa á sínum tíma.
Það er mjög fjölbreytt og skemmtilegt
og ef því er fylgt þá mun árangurinn
ekki láta á sér standa. Það er á hreinu,“
segir hún, og viðbrögðin hafa ekki
látið á sér standa.
Hægt er að forskrá sig til að vera
með í þjálfunarprógramminu nú
þegar á vefsíðu Kristbjargar, krisj.is,
en ráðgert er að það hefjist um mán-
aðamótin mars-apríl.
„Skráning er ekki formlega hafin,
það er bara hægt að forskrá sig og
þær sem gera það eru á forgangslista
þegar þjálfunin hefst. Ég finn fyrir
gríðarlegum áhuga og þegar eru rúm-
lega fimmtíu konur búnar að forskrá
sig.“
Prógrammið hjá Kristbjörgu kost-
ar 35.000 krónur fyrstu sex vikurnar.
Eftir það kosta fjórar vikur 22.500
krónur. Aðspurð hvort það sé dýrara
en það sem gengur og gerist í fjar-
þjálfunarheiminum svarar Kristbjörg
neitandi. „Stronger er í raun ekki dýr-
ara heldur en gengur og gerist, það
er bara dýrara í fyrsta skiptið því að
grunnpakkinn í Stronger er sex vikur
í stað fjögurra. Ástæðan fyrir því er
sú að mér finnst sex vikur vera eðli-
legur tími til að koma sér í gang, læra
aðferðirnar og rútínur og upplifa
þann árangur sem kveikir metnaðinn
til að halda áfram,“ útskýrir Krist-
björg. gudrunjona@frettabladid.is
Kristbjörg er að setja fjarþjálfunarvef á laggirnar. Mynd/Kjartan Magnússon
Segir konur
eiga að hafa
metnað fyrir
því að vera
sterkar
Kristbjörg Jónas-
dóttir, unnusta fót-
boltakappans Arons
Einars Gunnarsson-
ar, er að gefa út nýtt
fjarþjálfunarnám-
skeið. Námskeiðið
kallast Stronger.08:30 Skráning og kaffisopi - Básar til sýnis
09:00 Setning - Almar Guðmundsson, Samtök Iðnaðarins
09:10 VFSC - Próf. Ólafur H. Wallevik, Rb við NMÍ og HR
09:30 Skáldað í sjónsteypu - Guja Dögg Hauksdóttir, Studio Hvítt
09:50 Praktisk hærdeteknologi - Lasse Frølich, Aalborg Portland
STEINSTEYPUDAGURINN 2017
17. FEBRÚAR Á GRAND HÓTEL
10:30 Synthetic structural fibers in concrete - Dr. Klaus A. Rieder, GCP Applied Technologies Inc.
11:00 Blátrefjabending í stað járnabendingar - Eyþór Þórhallsson, HR
11:20 Hvernig hús myndi ég byggja í dag ? - Jón Sigurjónsson, Emeritus yfirverkfræðingur Rb
11:40 Verkframkvæmdir ríkisins 2017 á vegum FSR og Ríkiseigna - Halldóra Vífilsdóttir, FSR
13:00 Hönnun út frá möguleikum steypunnar - Hildur Steinþórsdóttir, TOS
13:20 Nemendakynning - Umsjón Einar Einarsson, BM Vallá
13:30 Lífsferilsgreiningar – Helga J. Bjarnadóttir, EFLA
13:50 Áskoranir við viðhald og byggingu steinsteyptra brúa - Ingunn Loftsdóttir, Vegagerðin
14:30 P2P, Performance based specification – Wassim Mansour, Readymix Abu Dhabi
15:00 Mikilvægi vistbyggðar – Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir, Vistbyggðaráð
15:20 Steinsteypuöldin - Egill Helgason og Pétur H. Ármannsson
15:40 Steinsteypuverðlaunin 2017 - Forseti Íslands,
Herra Guðni Th. Jóhannesson afhendir
16:00 Ráðstefnulok - Próf. Ólafur H. Wallevik, formaður Steinsteypufélags Íslands
Heill dagur: 18.000 kr. með hádegisverði
Hálfur dagur: 12.000 kr. án hádegisverðar
Nemagjald: Frítt með hádegisverði, hámark 40 nemendur*
Básar: 50.000 kr. frammi / 75.000 kr. inni í sal. Innifalið ein skráning með hádegisverði
Skráning á steinsteypufelag@steinsteypufelag.is fyrir 15. febrúar
*Nemagjald 2017 er í boði:
10:10 Kaffihlé
Dagskrá
12:00 Hádegismatur
14:10 Kaffihlé
[ Nýsköpunarmiðstöð Íslands ] - Íslensk útgáfa af merki
PANTONE
PANTONE 1665 C
CYAN 0% / MAGENTA 68% / YELLOW 100% / BLACK 0%
R - 244/ G -116/ B - 34
órlitur
RGB - þrír litir
Svarthvítt
BLACK 100%
Negatíft
Litur á svörtu
1 4 . f e b r ú a r 2 0 1 7 Þ r I Ð J U D a G U r20 L í f I Ð ∙ f r É T T a b L a Ð I Ð
Lífið
1
4
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:3
2
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
3
A
-D
1
3
4
1
C
3
A
-C
F
F
8
1
C
3
A
-C
E
B
C
1
C
3
A
-C
D
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
3
2
s
_
1
3
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K