Fréttablaðið - 14.02.2017, Side 32

Fréttablaðið - 14.02.2017, Side 32
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja mest lesna dagblað landsins. ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ. Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu. Jóns Sigurðar Eyjólfssonar Bakþankar OPIÐ ALLAN SÓLARHRINGINN Í ENGIHJALLA, VESTURBERGI OG ARNARBAKKA Komið í VERSLANIR Ég var leyniskytta en nú er ég kominn á eftirlaun,“ segir gamall Skoti þar sem við sitjum hvor gegnt öðrum á troðfullu kaffihúsi í Malaga. „Þú lýgur því,“ hrekkur upp úr mér. Þessi gamli maður er nefnilega svo góðlátlegur að hann myndi sóma sér vel í hlutverki bangsa- pabba í Dýrunum í Hálsaskógi nema hvað hann virðist álíka veður- barinn í framan og vitinn á Stór- höfða. Gæskan virðist slík að hann þyrfti efalítið áfallahjálp ef honum yrði það á að stíga á járnsmið. Óhjákvæmilega fer ég að velta því fyrir mér hvort ég hafi misskilið hann, þessi skoski hreimur býður þeirri hættu nefnilega heim. Ég fer varlega í að ganga úr skugga um það, horfi á hendur hans en segi svo eins skáldlega og nafni minn Ársæll: „Svo þessar hendur hafa unnið margt myrkraverkið?“ Og það hélt hann nú. Ég bið hann þá um að segja mér frá sínu erfiðasta verkefni. Honum verður ekki skotaskuld úr því, það kemur yfir hann sagnaandinn og hann upphefur orðamulning mikinn. Ég skil nákvæmlega ekki neitt. Mér til málsbóta má benda á að hávaðinn er mikill en svo verður það bara að viðurkennast að ég ræð ekkert við þessar skosku rúnir. Ég hefði átt að horfa meira á Taggart. Ég bið hann um að endurtaka endrum og eins en allt kemur fyrir ekki. Hann beitir táknmáli en það dugir skammt þegar sagt er frá spennandi launráðum. Hann fer meira að segja að babla á spænsku en ég er engu nær. Þá gefst hann upp og fer að sötra kaffið sitt. Svo spyr hann mig, líklegast fyrir kurteisissakir: „Og hvað gerir þú svo?“ „Ég er enskukennari,“ svara ég. „Þú lýgur því,“ hrekkur upp úr honum. Skoska leyniskyttan 1 4 -0 2 -2 0 1 7 0 4 :3 2 F B 0 3 2 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 3 A -B 8 8 4 1 C 3 A -B 7 4 8 1 C 3 A -B 6 0 C 1 C 3 A -B 4 D 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 3 2 s _ 1 3 _ 2 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.