Fréttablaðið - 14.02.2017, Page 32
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir
Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
mest lesna dagblað landsins.
ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF
FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ.
Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu.
Jóns Sigurðar
Eyjólfssonar
Bakþankar
OPIÐ ALLAN SÓLARHRINGINN
Í ENGIHJALLA,
VESTURBERGI
OG ARNARBAKKA
Komið í
VERSLANIR
Ég var leyniskytta en nú er ég kominn á eftirlaun,“ segir gamall Skoti þar sem við
sitjum hvor gegnt öðrum á troðfullu
kaffihúsi í Malaga. „Þú lýgur því,“
hrekkur upp úr mér.
Þessi gamli maður er nefnilega
svo góðlátlegur að hann myndi
sóma sér vel í hlutverki bangsa-
pabba í Dýrunum í Hálsaskógi
nema hvað hann virðist álíka veður-
barinn í framan og vitinn á Stór-
höfða. Gæskan virðist slík að hann
þyrfti efalítið áfallahjálp ef honum
yrði það á að stíga á járnsmið.
Óhjákvæmilega fer ég að velta
því fyrir mér hvort ég hafi misskilið
hann, þessi skoski hreimur býður
þeirri hættu nefnilega heim. Ég fer
varlega í að ganga úr skugga um það,
horfi á hendur hans en segi svo eins
skáldlega og nafni minn Ársæll: „Svo
þessar hendur hafa unnið margt
myrkraverkið?“ Og það hélt hann
nú.
Ég bið hann þá um að segja mér
frá sínu erfiðasta verkefni. Honum
verður ekki skotaskuld úr því,
það kemur yfir hann sagnaandinn
og hann upphefur orðamulning
mikinn. Ég skil nákvæmlega ekki
neitt. Mér til málsbóta má benda á
að hávaðinn er mikill en svo verður
það bara að viðurkennast að ég ræð
ekkert við þessar skosku rúnir. Ég
hefði átt að horfa meira á Taggart. Ég
bið hann um að endurtaka endrum
og eins en allt kemur fyrir ekki.
Hann beitir táknmáli en það dugir
skammt þegar sagt er frá spennandi
launráðum. Hann fer meira að segja
að babla á spænsku en ég er engu
nær. Þá gefst hann upp og fer að
sötra kaffið sitt.
Svo spyr hann mig, líklegast fyrir
kurteisissakir: „Og hvað gerir þú
svo?“ „Ég er enskukennari,“ svara
ég. „Þú lýgur því,“ hrekkur upp úr
honum.
Skoska
leyniskyttan
1
4
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:3
2
F
B
0
3
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
3
A
-B
8
8
4
1
C
3
A
-B
7
4
8
1
C
3
A
-B
6
0
C
1
C
3
A
-B
4
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
3
2
s
_
1
3
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K