Jólasveinar - 01.12.1923, Blaðsíða 9
7
»Þii kollsiglir skipinu, drengur«, sagði skipstjóri fölur. —
>Ó, nei'!« sagði Jóakim hlæjandi. s>Nú liggjum við í skjóli,
eins notalega og við lægjum í kommóðuskúffunni hennar
mömmu. Nú erum við komnir heim.«
Nærri má geta að Anna María varð hrædd, þegar barið
var í gluggann snemma á jóladagsmorguninn. Hún lá í breiða
rúminu með barn á hvorum handlegg og dreymdi stóra jarpa
hesta. Það boðar hamingju. Skipstjórinn fylgdi Jóakim heim
og sagði frá afrekum hans. Það kom í ljós, að leki var kom-
inn að skipinu áður en þeir reyndu að ná höfn. »Hefðum
við ekki haft Tóakim, lægjum við nú allir á mararbotni.« »Það
var guð, sem bjargaði skipinu,« sagði Anna María stillilega.
Henni var heitt um hjartaræturnar, þó að henni væri
annars kalt að standa þarna fáklædd og berfætt. Hún strauk
blíðlega hár sonar síns og bætir við: »Jóakim var aðeins verk-
færi í hendi guðs«.
Brauða & kökugerð
_ Jóns Símonarsonar
Laugayeg 5 Sími 873
framleiðir bezta og ódýrasta gjt
konfektið
-ffl
ifN-
livort heldur er í kössum eða lausri vigt.
Sömuleiðis kökur, hveitihrauð, tertur, fromage
Is, kransakökur o. fl.
■■I
ty\