Lystræninginn - 01.10.1975, Page 15
15
Konúngur Svíþjóðar heimsækir Reykjavik daginn
áður en verkfall hefst
Strákarnir 1 bæjarvinnunni
eru vel undir verkfallið búnir.
Síðustu nætur hafa þeir þénað vel
við að undirbúa komu kóngsins.
Fánum skrýdd er þessi verkfallsborg
og fólkið fer í hátíðaskapi
á verkfallsvakt.
10. júni 1975
Höfundur vill láta þess getið, að strákur í
bæjarvinnunni benti honum seinna á að ein-
úngis verkstjórar unnu að undirbúningi kon-
úngskomunnar, enda annað vart tilhlýðilegt.
Vinnustöðvun frestað um tvo daga meðan
konúngur Svlþjóðar
staldrar við
á íslandi
Þegar konúngsveislan hafði staðið um stund
hlýddi fólkið í landinu á útvarpsfréttir
til að heyra fleira af konúngi Sviþjóðar
og samningamálum.
Og sjá:
hátíðablærinn
sem leikið hafði allan daginn
um fána Tslands og Sviþjóðar
náði undir kvöld inni
sali samníngamannanna
sem frestuðu vinnustöðvun um tvo daga,
en um það leyti
mun konúngur Sviþjóðar
halda heim á leið.