Lystræninginn - 01.10.1975, Blaðsíða 22
n
örn bjarnason:
BRÝNSLA
o , <
Hva6 ertu að hugsa er þu heima situr
0
og húkir einn yfir kaffi og te?
<;
Er fallinn víxill, er farin trúin
a flest allt það sem þer syndist fe ?
, D
Eg spyr af löngun, ég vildi vita,
f-x*
hvort veltir þu aldrei fyrir þer
^ D
að brýna hnífa og byssur fægja,
, fl> , P ,
- það bryst svo oft um 1 sjalfum mer.
Þú verkamaður sem mundar haka
og mylur grjút fyrir sultarkaup,
hvað ertu að hugsa er þú höggur steininn
sem hendur mörðu uns blóðið draup?
Þú verkakona, það vinnuaflið,
sem veit ég ódýrast hér um geim,
hvað ertu að hugsa er þú fiskinn flakar
og ferð svo örþreytt og kvíðin heim?
Og þú sem námsmaður mættir vita
að mörgu er logið 1 eyru þér.
Ertu að hugsa um stóra styrkinn
sem stjórnin lands var að lofa þér?
Það er svo grátlegt það get ég svarið,
að gægjast 1 hvernig málið er.
Iðnaðarmaður, hvað ertu að hugsa,
er ól þú herðir um mitti þér?
Hvað ertu að hugsa er þú heima situr
og húkir ein yfir kaffi og te.
Er fallinn víxill, er farin trúin
á flest allt það sem þér sýndist fé ?
Ég spyr af löngun, ég vildi vita,
hvort velti enginn þvi fyrir sér
að brýna hnifa og byssur fægja.
Brýst þetta aldrei neitt um í þér?
Sænskt lag sem Fred Akerström
hefur sungið inn á plötu.