Pilsaþytur: málgagn Kvennalistans í Vestfjarðakjördæmi - 01.04.1987, Page 12

Pilsaþytur: málgagn Kvennalistans í Vestfjarðakjördæmi - 01.04.1987, Page 12
12 PILSAÞYTUR KOSNINGASKRIFSTOFA Kvennalistans, Hrannargötu 4, er opin frá kl. 16.00 til 19.00. Sími 4021. PILSAÞYTUR MÁLGAGN KVENNALISTANS Kaffi og hlýtt viðmót Á Bíldudal hittum við að máli Lovísu Jónsdóttur og Dagbjörtu Hannesdóttur og röbbuðum við þær um lífið og tilveruna. Lovísa er fædd árið 1918 á Tálknafirði, en flutti 11 ára gömul með foreldrum sínum til Bíldudals og hefur búið þar síðan. Dagbjört er fædd árið 1905 á Núpsstað í Vestur-Skaftafells- sýslu. Hún bjó lengi í Kópavogi, en árið 1951 fluttist hún að Steinanesi við Arnarfjörð og síðan til Bíldudals árið 1960. Hvenær byrjuðuð þið að vinna í fiski? Lovísa: ,,Ég byrjaði í vaskinu 15 eða 16ára. Þá varvaskað upp úr körum. Húsin voru óupphituð og því mjög köld. Oft var freðið í kerjunum á morgnana, en það var enga aðra vinnu að fá. Karlarnir á bátunum flöttu fiskinn og tóku hálfan hrygginn úr. Við konurnar vöskuðum og tókum himnuna af. Svo var saltað í stæður. í þurrki var svo breitt á reitana. Þetta var af- skaplega fallegur fiskur.“ Hvað með vinnutímann og launin? Lovísa: „Það var kallað út á hinum og þessum tímum og allir þustu af stað! Kaupið? Hvernig getið þið ætlast til að ég muni það? Það var víst sáralítið. En þetta var eina launaða vinnan, sem hægt var að fá. Mikið puð og mikill kuldi. Karlarnir fengu hærra kaup, er það ekki enn? Verður það ekki alltaf? Dagbjört vann fyrst í rækju, en síðan í frystihúsi. Dagbjört: „Rækjan var hand- pilluð og miklu betri en vélpill- uð. Þetta var skemmtileg vinna og enginn hávaði.“ Hafa orðið miklar breytingar á aðbúnaði í frystihúsunum? Báðar: „Húsakynnin hafa breyst mjög til hins betra, jafn- vel komnar sturtur. Og vinnan er skemmtileg, þegar fiskurinn er góður. Hins vegar hefur borðavinnan litið breyst, nema að nú geta allir setið sem vilja.“ Hvað um bónusinn? Dagbjört: „Hann skapar alltaf strekking. Þær strekkja sig jafn- vel enn meira síðan bónusinn var lækkaður. Margir kvarta um þreytu og vöðvabólgu, en ég fer mér ró- lega núorðið. Maður verður að stýra sér sjálfur. Samt er skemmtilegra að hafa eitthvað til að keppa að.“ Vinnið þið allan daginn? Báðar: „Þær byrja klukkan 7, en við vinnum bara frá 8—5. Við verðum að vinna allan daginn. Ellilaunin eru ekki neitt, rúmar 7 þúsund krónur á mán- uði. Úr lífeyrissjóði fær maður ekki fyrr en maður er sjötugur, og hann er mishár eftir starfs- aldri. Tekjutryggingu fáum við ekki meðan við vinnum og ekki heldur niðurfelld afnotagjöld af síma, útvarpi eða sjónvarpi.“ Hvað finnst ykkur um Kvennalistann? Báðar: „Hann er ágætur. Kon- ur þurfa endilega að taka þátt í stjórnmálum. Þær hafa miklu að miðla — sjálfsagt. Kosning- arnar ættu bara að vera seinna, ekki um háveturinn.“ Hverju á Kvennalistinn að beita sér fyrir? Báðar: „Það er víst af nógu að taka. Samgöngurnar mega nú lagast. Það er talað um fólk úti á landi eins og afætur. Fólk á líka að geta ráðið því, hvar það býr, þegar það er orðið gamalt. Nú fara allir.“ Það var hríðarbylur úti, en hlýtt og notalegt í húsinu henn- ar Lovísu, þar sem þetta samtal fór fram. Margt fleira bar á góma, börnin þeirra, barna- börnin og heimilin, veður og vinda, og allt það, sem ósagt verður hér. Dagbjört og Lovísa, kærar þakkir. arna/sigríður b/sigríður st. Talið frá vinstri: Dagbjört Hannesdóttir, Sigríður Björns- dóttir og Lovísa Jónsdóttir.

x

Pilsaþytur: málgagn Kvennalistans í Vestfjarðakjördæmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pilsaþytur: málgagn Kvennalistans í Vestfjarðakjördæmi
https://timarit.is/publication/1230

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.