Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2016, Blaðsíða 32
Helgarblað 5.–8. febrúar 201624 Lífsstíll
Gott bragð og hollusta
Nanna Rögnvaldardóttir sendir frá sér nýja bók
L
étt og litríkt er ný matreiðslu-
bók eftir Nönnu Rögnvaldar-
dóttur en hún er þjóðþekkt
fyrir skrif sín um mat og mat-
argerð. Í nýju bókinni er að
finna 70 uppskriftir að hollum heim-
ilismat.
Spurð um áherslur í bókinni seg-
ir Nanna: „Megináherslan er, eins og
í öllum mínum bókum, á gott bragð
og það að matreiðslan sé auðveld
og hráefni aðgengilegt og ekki dýrt.
Í þessari bók er þó meiri áhersla á
hollustu en verið hefur.“
Af hverju er það?
„Ég er farin að hugsa meira en áður
um það sem ég læt ofan í mig. Ég
borða hægar og velti fyrir mér inni-
haldinu og hvaðan það kemur. Þetta
hefur haft áhrif á matargerðina.
Ég borða mun
meira grænmeti
en áður, engan
sykur, gróft
kornmeti, meiri
fisk og minna
kjöt.“
Spurð um
uppáhalds-
grænmeti segir
Nanna: „Ég er
mjög hrifin af
mörgu rótar-
grænmeti. Síð-
ustu árin hef
ég til dæm-
is notað tölu-
vert mikið af
rauðrófum,
syni mín-
um til engrar
gleði því hann
kemur oft í mat og honum er ekki vel
við rauðrófur. Mér finnst óskaplega
skemmtilegt að vinna með rauðróf-
ur. Það er smá moldarbragð af þeim
og það er bæði hægt að leyfa því að
njóta sín og fela það. Það er hægt
að borða rauðrófur hráar, soðnar og
bakaðar og gera svo ótal margt úr
þeim.“
Nanna
segist aldrei
hafa verið
matvönd.
„Hér áður
fyrr sagði ég
alltaf að það
eina sem ég borðaði ekki væri reykt
ýsa, það tengist ákveðinni minningu
sem ég átti erfitt með, en nú er ég
farin að borða hana af bestu lyst og
það er einmitt uppskrift með reyktri
ýsu í bókinni.“
Allt of mikið af hugmyndum
Nanna er höfundur um 20 bóka sem
tengjast mat og matargerð. Hún er
spurð hvort hún verði aldrei uppi-
skroppa með hugmyndir. „Nei, það
er frekar að ég fái allt of mikið af hug-
myndum. Ég á geysistórt matreiðslu-
bókasafn og reyni að fylgjast vel með
því sem er að gerast í matreiðslugeir-
anum. Ég er stöðugt að rekast á eitt-
hvað sem ég vil prófa og vinna út frá.“
Varstu strax sem barn farin að
prófa þig áfram í matreiðslu?
„Já, ég byrjaði fremur snemma.
Ég er alin upp á sveitabæ fyrir norð-
an og las mikið af bókum, var reynd-
ar alæta á bækur. Löngu seinna átt-
aði ég mig á því að það sem ég mundi
best úr þessum bókum voru matar-
lýsingarnar. Ég las um mat og alls
konar rétti og ávexti og grænmeti
sem ég vissi ekki hvernig leit út. Ég
stalst stundum til að gera matartil-
raunir sem mistókust hræðilega. Ein
af þeim skáldsögum sem ég las fyrir
tíu ára aldur var Frelsið eða dauðinn
eftir Kazantzakis og þar voru lýs-
ingar á grænmeti og ýmsu öðru sem
ég hafði aldrei heyrt nefnt, eins og
eggaldini. Þetta fannst mér óskap-
lega spennandi og lét mig dreyma
um þessar kræsingar. Það liðu þó
áratugir þangað til ég kynntist krít-
verskri matargerð í raun og veru.“
Margar bækur í vinnslu
Nanna er spurð hvers konar erlend
matargerð heilli hana mest og seg-
ir: „Arabísk og norður-afrísk mat-
argerð heillar mig mjög enda er
hún mjög skemmtileg. Þar kem-
ur margt til, eins og til dæmis
kryddnotkunin, þetta sambland
af krydduðu og sætu sem kemur í
gegnum þurrkaða ávexti og ýmis-
legt fleira.“
Aðspurð hvort fleiri bækur séu
á leiðinni segir Nanna: „Ég er með
margar bækur í vinnslu og svo er
bara að sjá hverjar þeirra munu líta
dagsins ljós.“ n
Rauðrófukurl Nönnu
Hér eru rauðrófurnar bakaðar í ofni og
síðan saxaðar smátt. Rauðrófur smita úr
sér sterkum rauðum lit svo að það er gott
að setja bökunar– eða álpappírsbút á
skurðarbrettið áður en þær eru skornar til
að sleppa við bletti og vera með hanska
til að fá ekki lit á hendurnar.
n 300 g rauðrófur
n 1–2 tsk. olía
n 1 vorlaukur, hvíti og ljósgræni
hlutinn
n 1 lítill hvítlauksgeiri
n 1½ msk. ólífuolía
n 1 tsk. vínedik
n pipar
n salt
Hitaðu ofninn í 200°C. Skerðu
rauðrófurnar í helminga eða fjórðunga ef
þær eru stórar eða meðalstórar en ef þær
eru litlar má hafa þær heilar. Taktu ál
pappírsbút, settu rauðrófubitana á hann,
dreyptu olíunni yfir, lokaðu bögglinum
og bakaðu hann í ofni þar til rófurnar eru
meyrar – það gæti tekið 40–50 mínútur.
Stingdu gegnum álpappírinn með prjóni
til að prófa rauðrófurnar, ef hann rennur
viðstöðulaust í gegn eru þær tilbúnar.
Láttu rófurnar kólna ögn og flysjaðu þær
svo.
Settu rófurnar í matvinnsluvél ásamt
söxuðum vorlauk og hvítlauk, ólífuolíu,
ediki, pipar og salti og láttu vélina saxa
þetta fremur smátt en ekki þó um of –
rófurnar eiga ekki að fara alveg í mauk.
Best er að nota púlshnappinn ef hann er
til staðar.
Settu maukið í skál eða krukku
og berðu það fram t.d. með kjöti eða
grænmetisréttum. Það geymist í nokkra
daga í kæli.
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is „ Í þessari bók er
þó meiri áhersla á
hollustu en verið hefur
Nanna Rögnvaldardóttir „Ég er stöðugt að rekast á eitthvað sem ég vil prófa og vinna út frá.“ MyNd ÞoRMAR VigNiR guNNARssoN
Persónugerður markpóstur
er mælanlegur miðill og árangursríkur
www.umslag.is2010- 2014
Umslag tryggir hámarksárangur við
útsendingu markpósts
• Mismunandi skilaboð
• Mismunandi myndir
• Mismunandi markhópar
Við getum prentað nöfn og heimilisföng á allan mark-
póst. Stór og lítil upplög. Markhópalistar eru í boði sé
þess óskað eða við áritum eftir þínum excel lista.
}Ein prentun
*Samkvæmt könnun Gallup á meðal markaðsstjóra um notkun á miðlum árið 2015 mun markpóstur vera næsta val á eftir internetinu.
31%
auglýsenda ætla að
nota markpóst meira
árið 2015*
- hvað ætlar þú að gera?