Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2016, Blaðsíða 33
Helgarblað 5.–8. febrúar 2016 Skrýtið Sakamál 25
Þrif ehf. | Lækjasmári 86 | 201 Kópavogur | Sími: 8989 566 | www.þrif.is | thrif@centrum.is
Fyrirtæki og húsfélög, gerum
tilboð ykkur að kostnaðarlausu
Bjóðum sérhæfða þjónustu fyrir
íbúðir sem eru í túristaleigu
Hefur þú þörf fyrir
þrif
H
júkrunarfræðingurinn Bill
Wolfe bjó í Henderson í
Texas með eiginkonu sinni,
Teresu. Hjónin höfðu alla
tíð verið náin og vinir þeirra
sögðu hjónabandið friðsælt með
eindæmum.
Þann 3. apríl, 2004, kom Bill
óvenju snemma heim úr vinnunni og
rétti Teresu rómantískt kort. Teresa
leit á hann spurnaraugum og opnaði
kortið. „Ég vona að þú vitir að hvert
andartak sem við getum átt saman er
mér svo mikils virði“ stóð í því.
„Mig langaði bara að koma heim
og eiga rólegt kvöld með þér, elskan
mín,“ sagði Bill og í ljósi þess innileika
sem einkennt hafði hjónabandið kom
þetta Teresu ekki spánskt fyrir sjónir.
Dekrað við Teresu
Bill sló sjálfum sér við þetta kvöld; sá
um matseld, dekkaði borðið, kveikti á
kertum og hugguleg tónlist fullkomn
aði andrúmsloftið.
Þegar upp var staðið bauðst hann
til að láta renna í bað fyrir Teresu svo
hún gæti látið líða almennilega úr sér
þreytuna og slakað vel á.
Teresu leist vel á það og þar sem
hún lá í ylvolgu baðvatninu fannst
henni kvöldið fullkomnað og velti því
ekki fyrir sér af hverju útvarpið, sem
stillt var á hugljúfa stöð, var ekki á
sínum venjulega stað heldur á bekk
nærri baðkarinu.
Snarræði bjargar
Þarna voru þau hjónin; hann sitjandi
á körfu fyrir óhreinan þvott og hún
værðarleg í freyðibaði, og mösuðu
um allt og ekkert. Bill teygði skyndi
lega út handleggina og eins og fyrir
klaufaskap rakst hann í útvarpið sem
endasentist í boga í átt að baðkarinu.
Með ótrúlegu snarræði tókst Teresu
að grípa það áður en það skall í vatn
ið.
En viðbrögð Bills voru á annan
hátt en ætla hefði mátt; í stað þess
að varpa öndinni af létti stóð hann
upp og strunsaði í fússi út úr baðher
berginu.
Teresa leggst í rannsóknir
Hegðun Bills kom Teresu í opna
skjöldu og hún velti fyrir sér hví hann
brást svo reiður við. Þá rifjuðust upp
fyrir henni ýmis önnur, nýleg tilvik
– Bill hafði reyndar tíðum verið eins
og snúið roð í hundskjaft undanfarna
mánuði. Óhugnanleg spurning vakn
aði: Vildi Bill hana feiga? Hugmyndin
var fáránleg, fannst Teresu, og hún
nánast hristi hausinn, undrandi á eig
in hugarflugi.
En næsta dag lónaði spurningin
enn í huga hennar og hún ákvað að
kanna nokkur atriði.
Hinn sári sannleikur
Teresa greip til þess ráðs að athuga
hvað ástkær eiginmaður hennar hefði
bardúsað á netinu. Sér til mikillar
skelfingar sá hún að hann hafði, þrem
ur dögum fyrr, leitað upplýsinga um
hvernig best væri að standa að morði
með vatni og rafmagni, einkum og sér
í lagi þar sem hægt væri að notfæra sér
baðkar.
Bill hafði heimsótt þrjár vefsíður
þar sem fjallað var ítarlega um þess
konar morð og eina síðu að auki þar
sem kyrking í baðkari var útlistuð.
Teresa fann líka kvittun fyrir einu
dúsíni af rósum sem hún hafði aldrei
fengið. Hún beið ekki boðanna og setti
sig í samband við lögreglu hið snarasta.
Há líftrygging
Við rannsókn lögreglunnar kom
margt miður geðslegt í ljós varðandi
Bill Wolfe. Á meðal þess var að fimm
mánuðum áður – um svipað leyti og
hegðun hans breyttist – hafði hann
keypt líftryggingu handa Teresu að
henni fornspurðri. Líftryggingin hefði
fært honum 250.000 Bandaríkjadali í
aðra hönd ef hún gæfi upp öndina.
Bill var handtekinn og ákærður.
Hann gerði samning við ákæruvaldið
og játaði sig sekan um þriðju gráðu
morðtilraun (hvað sem það nú merk
ir). Fyrir vikið fékk hann fjögurra til tíu
ára fangelsisdóm auk þess sem hon
um var gert að greiða Teresu 10.000
Bandaríkjadali. n
Bill lætur renna í Bað
n Hugguleg kvöldstund kveikti óhugnanlegar spurningar n Teresa vildi Bill, Bill vildi Teresu … feiga
Bill Wolfe Leit
framtíðina ekki
sömu augum og
eiginkonan.
„Ég vona að þú
vitir að hvert
andartak sem við
getum átt saman er
mér svo mikils virði
Beezow Doo-Doo Zopitty-
bop-Bop-Bop í bobba
J
effrey Wilschke var handtek
inn í borginni Olympia í Wash
ingtonríki fyrir árás á lögreglu
þjón þar sem hann er sakaður
um að hafa bitið, kýlt og hent stein
um í lögregluþjóninn. Einnig á
hann að hafa reynt að stinga lög
regluþjóninn með penna og hlaup
ið ítrekað í burtu þrátt fyrir að hafa
margoft verið skotinn með rafbyssu.
Það væri líklega ekki heimsfrétt
nema fyrir þá staðreynd að Jeffrey
Wilschke breytti nafni sínu árið
2011 í hið þjála Beezow DooDoo
ZopittybopBopBop.
Síðan þá hefur hann ítrekað kom
ist í kast við lögin fyrir minni hátt
ar afbrot, iðulega tengd eiturlyfja
neyslu og í hvert sinn rata brot hans
á síður bandarískra fjölmiðla, þökk
sé nafninu. Í samtali við blaða
mann Wisconsin State Journal út
skýrði hann nafn sitt, í stuttu máli, á
þá leið að um væri að ræða tilvísun í
endalausa ást í alheiminum. Beezow
DooDoo ZopittybopBopBop hef
ur þráfaldlega vísað því á bug að
vera veikur á geði. n bjornth@dv.is
Beezow Doo-Doo
Zopittybop-Bop-
Bop Þökk sé nafninu
vekja afbrot hans mikla
athygli í bandarískum
fjölmiðlum.