Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2016, Blaðsíða 9
Helgarblað 5.–8. febrúar 2016 Sport 9
Angela var impóneruð
ari hafi hringt í Dag á meðan mótinu
stóð, sem og eftir það. Hvernig var
aðdragandinn?
„Það gerðist þannig að ég sat við
matarborð og einn af þeim sem stýr-
ir umgjörðinni hjá liðinu kom til mín.
Hann sagði mér að kona nokkur vildi
heyra í mér. Ég svaraði í gríni: Merkel?
Hann svaraði: „Já, og vertu með sím-
ann hjá þér klukkan þrjú á morgun.““
Dagur ber að Merkel hafi verið
mjög viðkunnanleg, bæði þegar hún
hringdi í fyrra skiptið, þegar Þjóðverjar
slógu út Dani, og svo eftir úrslitaleik-
inn. „Hún sagðist vera mjög stolt af
liðinu og hvers konar fulltrúar fyrir
þjóðina strákarnir væru. Hún óskaði
okkur alls hins besta og sagði gaman
að Íslendingur stjórnaði liðinu. Hún
fór að tala um Ísland og ég sagði að
hún yrði endilega að fara til Íslands og
prófa að ganga þar á fjöll. Ég veit hún
er mikill göngugarpur.“ Hann segist
alls ekki hafa upplifað aukna pressu
vegna símtala frá kanslaranum. „Nei,
nei. Tónninn var þannig að hún var
mjög ánægð með liðið. Hún vissi að
við vorum með yngsta liðið og þetta
væri kannski framar vonum. Hún var
mjög impóneruð yfir því hvernig þetta
tókst allt saman.“ Hann segir aðspurð-
ur að enginn íslenskur ráðamaður hafi
hringt í hann til að óska honum til
hamingju. „Ekki að ég sé að bíða eftir
því,“ segir hann og hlær.
Fær bónusgreiðslu
Eins og fram hefur komið er árang-
ur Dags með Þjóverja óvæntur, þótt
Þjóðverjar séu stórþjóð í handbolta.
Hann viðurkennir að fá bónusgreiðsl-
ur ef hann nær árangri með liðið
en vill ekki gefa upp hvað hann fær
háa upphæð við Evrópumeistaratit-
il. „Þetta spillir ekkert fyrir en ég var
ekki með töluna í hausnum á
mótinu.“
Leikskipulagið
fór í þvottavél
Athygli vakti þegar Dagur birti mynd af
leikplaninu á móti Spánverjum. Hann
segir að eftir úrslitaleikinn hafi hann
fengið hressilega kampavínsmeðferð.
Blautum fötunum hafi verið hent ofan í
tösku. „Svo vorum við að taka úr þvotta-
vélinni þegar kom í ljós að masters-
planið hafði farið með. Ég ákvað að
taka mynd af því og þegar því var lokið
hugsaði ég með mér að ég ætti bara að
deila þessu og leyfa fólki að sjá hvernig
þetta kom heim og saman.“ Hann segir
að á blaðinu séu leikkerfi og hvert þeirra
fær sína tölustafi sem kóða. Þarna
eru „kombinasjónir“ af leikkerfum, til
dæmis hvaða varnarafbrigði við spilum í
hinum ýmsu aðstæðum. Ég nota svona
í öllu mótinu.“ Hann fer að hlæja þegar
hann er spurður hvort einhver annar
en hann gæti skilið það sem á blaðinu
stendur. Og svarið er einfalt: „Nei“.
Út í hött að við
séum langt á eftir
Dagur vill lítið blanda sér
í umræðuna um fram-
tíð íslenska landsliðsins,
af virðingu við vini sína
heima á Íslandi og íslensku
þjóðina. Á honum má
þó heyra að hann hefur
skoðanir á hlutunum. „Ég
vil bara minna á að þeir
vinna Noreg og svo kem-
ur ákveðið „blackout“ á móti
Hvít- Rússum. Með þeim leik
kasta þeir mótinu frá sér.“ Hann
segir að það hafi gerst hjá fleiri lið-
um á mótinu, til dæmis hjá Dönum
á móti Svíum og hjá Spánverjum í
úrslitaleiknum. Lið lendi stundum
í aðstæðum sem erfitt er að ráða
við. „Danir voru með allt í góðum
gír og litu hrikalega vel út. Þeir voru
að sigla inn í undanúrslitin þegar
slokknar á einbeitingunni á móti
Svíum. Afleiðingin er svo leikurinn á
móti okkur.“
Hann segir að ekki megi gera of
mikið úr því að strákarnir okkar hafi
ekki komist lengra. „Það er kjána-
legt að segja að íslenska liðið sé orðið
langt á eftir öðrum liðum. Þeir hefðu
getað farið sömu leið og Þýskaland
og Noregur gerðu. Það er algjörlega
út í hött að tala um að þeir séu orðn-
ir einhverjum ljósárum á eftir öðrum.
Það er bara kjánaskapur.“ Hann seg-
ir að vonbrigðin séu mest fyrir leik-
mennina sem fórna dýrmætum tíma
og mörgum aukaæfingum fyrir að
spila á þessum mótum, þrátt fyrir að
margir hefðu þurft á hvíld að halda.
Hann segir enn fremur að ís-
lenska liðið sé afar sterkt og erfitt lið
að mæta. Það hafi hann reynt á eigin
skinni rétt fyrir mótið. „Þeir eru ekk-
ert dottnir út úr öllu. Fjölmörg sterk
lið séu í þeirri stöðu að komast ekki
á Ólympíuleikana í sumar. Það séu
engin endalok. Hann gefur lítið fyrir
þau kynslóðaskipti sem rætt hefur
verið um að þurfi að séu yfirvofandi.
„Það er alltaf einhver endurnýjun í
þessum liðum, líka hjá Frökkum og
Spánverjum. Það er engin ástæða til
að örvænta. n
„Þetta spillir
ekkert fyrir
- um bónusgreiðsluna sem hann fær fyrir titilinn
M
y
n
d
E
PA