Tímarit Fjelags íslenskra hjúkrunarkvenna - 01.07.1934, Side 3
-3-
SKÍRSLA
um starfsemi hjúkrunarfélagsins "LÍkn" í
Reykjavík árið 1933»
Hjúkrunarfélagið "Líkn" hafði 4 hjúkr-
unarkonur í Þjónustu sinni órið 1933. Skifta
Þær Þannig með sér störfum, að tvær Þeirra
starfs sö heimilishjúkrun, Þriðja hjúkrunar-
konan veitir Berklavarnarstöð "Líknar"
forstöðu, og fjórðs hjúkrunarkonan hefir um-
sjón með Ungbarnavernd. "LÍknor". Þegar iriikið
er um veikindi í bænum, hjálpa stöðvarhjúkr-
unarkonurnar til við heimilishjúkrun, auk
Þess sem Þær leysa af frídago og sumarfri
heimilishjúkrunsrk''’'enn3nna.
Iijúkrunarkonurnar fóru alls 7753 sjúkra-
vitjanir á árinu. Þær vöktu 78 nætur og
höfðu daghjúkrun 21 dag,
Berklavarnarstöð "Líknar". Þangað komu
212 nýir sjúklingar og hafði hjúkrunarkon-
an eftirlit með Þeim, sem Þess Þurftu með.
Stöð\rarhjúkrunarkonan fór 1860 vitjanir á
heimilin, Þar af voru 243 sjúkravitjanir.
Auk Þess fór stöðvarhjúkrunarkonan 384 sjúkra
vitjanir, vakti 7 nætur og hafði fasta dag-.
vakt hjá sjúklingum í 3 daga fyrir bæjar-
hjúkrun "Líknar". 11 sjúklingum var útveguð
heilsuhælis- eða spítalavist, 59 sjúklingar
voru röntgenmyndaðir og 19 sjúklingar fengu
1jóslækningar. Álls voru gerðar 1278 læknis-
hlustanir, en stööin tók á móti 3627 heim-
sóknum alls, Stöðin sá um sótthreinsun á 8
heimilum.
Gefnii’ voru 1200 lítrar af lýsi, 2255
lítrar af mjólk, 150 kg. a-f haframjöli, 50
kg, af sykri, 45 kg. «f nýju kjöti, 100 kg.
af smjcrlíki, 100 fl. af maltöli, 10 kassar
af eplum, auk annara matgjafa og sælgætis
af ýmsri tegund til jólanna. Ennfremur var
útbýtt kr. 285,oo í peningum og gcmlum og
nýjum fatnaði, sem stöðinni var gefinn, Stöð-
in veitti 1 sjúkling húsaleigustyrk. Lanuð
hafa verið út rúmstæði, sængurföt, rúmfatnað-
ur, handklæði og hitamælar. 460 heimili voru
í sambandi viö stöðina á árinu og vax- öll
hjálp Þaðan ókeypis, læknir tekur á móti
sjúklingum á stöðinni Þrisvar í viku, mánud. ,
miðvikudaga og föstudaga.
Ungbarnavernd "Líknar", Hjúkrunarkonan við
Ungbarnavernd "Lxknar" fór 2373 vitjanir á ,
heimilin. Áuk Þess fór hún 1191 sjúkrovitjun,
vakti 5 nætur og hafði fasta dagvakt í 6 daga
hjá sjúklingum fyrir bæjarhjúkrun "Liknar",
A Barnsverndarstöðina komu 324 nýjar heimsókn-
ir af börmxrn og 1462 endurteknar heimsóknir.
288 raæður leituðu raða til stöðvorinnar, 41
bomshafandi konur leituðu einnig til stöðv-
arinnor, Þar af komu 32 i'fyrsta sinn.
Frá Ungbarnaverndarstöðinni voru gefnir
299 l/2 liter af mjólk. Auk Þess var gefið
lýsi, matvæli, bomomjólk og föt fyrir ca.
kr. 300,00. Ennfremur voru lanuð út barnarúm,
bamafatnaður og sængurfotnoður. Læknir
tekur á móti sjúklingum tvisvsr í viku á stöð-
inni, fimtud. og föstud. Stöðin er einnig
opin fvrir barnshafandi konur 1. Þriðjudag
hvers mánaðar.
Félogið á lækmxm stöðvanna, Mognúsi Pét-
urssyni, héraðslækni og Katrínu Thoroddsen mik-
ið að Þakka fyrir hið óeigingjsrna starf
Þeirra og áhuga. Vinsæld félagsins má fyrst
og fremst Þakka læknum Þeim og hjúkrunarkon-
um, sem starfa við stöðvor- og heimilishjúkr-
un. Bæði Þeim og öðrum, sem hafa styrkt
"LÍkn" á árinu með rausnarlegum gjöfum og ?ð-
stoð, færi ég fyrir hönd stjórnarinnar alúða-
Þakkir. Öll hjalp, sem félaginu berst frá Því
opinbera og einstaklingum, léttir Því erfiðið
að halda starfseminni uppi. PLeykjavíkurbær
stækkar árlega að miklum mun, en Því miður
eykst framlag til "Líknar" ekki að sama skapi.
Iíá Því geto nærri að Þsið er ekki cuðvelt að
standa straum af hinum vaxandi útgjöldum,
eixxkum Þegar Þess er gætt, 0ð markmið félogs-
ins ávolt hefir verið Það, að neita engum
um hjálp, sem til Þess leitar. Bæjarbúar geta
styrkt "Líkn" með Því að gerast meðlimir og ég
vil biðja alla Þá sem styðja fólagið, annað-
hvort á Þann hátt eða með gjöfum, ?ð hafs
hugfast, að styrkur Þeirra verður eingöngu
notoöur til sjúkra og til varnar útbreiðslu
berklaveiki í landinu.
Reykjavik, 9. mars 1934.
Sigríður Eiriksdóttir
forroaður Hjúkrunarfélagsins "Likn".