Tímarit Fjelags íslenskra hjúkrunarkvenna - 01.12.1934, Page 1
T '.I M A R .1 T
Pélags íslenskra hjúkrunarkvenna.
des. 1934
Nótt.!
Dýrðleg ertu drauma nótt,
stjörnur blika blítt og rótt
Guð er allt í öllu í nott
Sál.!
Eitthvað hrærist inst í sál,
heyrðu Drottinn hjartans mál.
Tengdu í kæx-leik sál við sál.
Von.!
Eilífðin býr í þér, von,
æðsta vonin er Guðsson,
mistu ei hina hæstu von.
Trú.!
Eramför alheims áttu trú.
Milli Guðs og manna brú.
Ekkert flytur fjöll, sem þú.
, Elín Sigurðardóttir.
GLEBILEGRA JÓLA OG FARSÆLS MYARS
óskar ritst.jórnin öllum meðlimum íslensku
hjíkrunarkvennastjettarinnar fjær og nær.
Jólahátíðin stendur fyrir dyrum okkar,-
iírið er að hverfa í tímans haf.- Hjörtu
okkar og hugir fyllast gleði, og hlýjum til-
finningum til meðbræðra okkar, og þá fyrst
og fremst til sjúklinga okkar.
Engar manneskjur eiga eins allan okkar
hug og alla okkar hugsun eins og fieir, og
ekki síst á jólunum. Hjúkrunarkonurnar finna
oft meir til £ess, en sjúklingarnir sjálfir
að þeir eru fjarri ættingjum og vinum, ein-
mitt á þessari hátíð, sem sameinar alla
ástvini á heimilum þeirra.
Það er þessvegna, að hjúkrunarkonurnar
láta einskis ófreistað sem í jþeirra valdi
stendur, til þess að veita jólagleðinni inn
í sálir sjíklinga sinna,- hinni sönnu jóla-
gleði sem útilokar sorg og trega, og lætur
pá gleyma, að svo miklu leyti sem unt er,
óhamingju fieirra - sjúkdómunum.
Allir þeir erfiðleikar 0g umstang, sem
hjúkrunarkonurnar hafa um jólin, verður að
engu, ofjireytan hverfur, og sjaldan finna
þær betur en einmitt þá, hve auðugt starf
þeirra er.
Gleðin og þakklætið, sem ljómar af and-
litum sjíklinganna er dýrmætasta jólagjöf
hverrar hjúkrunarkonu.
S. B.