Fréttablaðið - 03.04.2017, Side 12

Fréttablaðið - 03.04.2017, Side 12
Valsmenn fagna hér sigri á serbneska félaginu Sloga á Hlliðarenda og þar með sæti í undanúrslitum í Áskorendakeppni Evrópu þar sem Valur mætir liði Turda frá Rúmeníu. FRéTTablaðið/andRi MaRinó Valur 1979-80 Evrópukeppni meistaraliða Tap í úrslitaleik Slógu út lið frá Englandi, Svíþjóð og Spáni. Þróttur 1981-82 Evrópukeppni bikarhafa Undanúrslit Slógu út lið frá noregi, Hollandi og Ítalíu. FH 1984-85 Evrópukeppni meistaraliða Undanúrslit Slógu út lið frá noregi, Ungverja- landi og Hollandi. Víkingur 1984-85 Evrópukeppni bikarhafa Undanúrslit Slógu út lið frá Spáni og Júgóslavíu. Haukar 2000-01 EHF-bikarinn Slógu út tvö lið frá noregi og eitt frá Portúgal. ÍBV 2003-04 Áskorendakeppni kvenna Slógu út lið frá búlgaríu, Frakklandi og Króatíu. Valur 2005-06 Áskorendakeppni kvenna Slógu út lið frá Grikklandi og Sviss. Valur 2016-17 Áskorendakeppni karla Slógu út lið frá noregi, Svartfjalla- landi og Serbíu. íslensk lið í undanúrslit í Evrópu 8 HandBolti Serbneska liðið HC Sloga Pozega bættist um helgina í hóp með norska liðinu Haslum og Svartfellingunum í RK Partizan 1949. Engu þessara liða hefur tekist að enda Evrópuævintýri Valsmanna í vetur. Valsmenn fylgdu eftir 30-27 sigri í fyrri leiknum gegn Sloga með 29-26 sigri á Hlíðarenda á laugar- dagskvöldið. Valsliðið vann því örugglega 59-53 samanlagt. „Okkur hentar vel að vera í svona úrslitaleikjum alltaf, við sýndum það í bikarkeppninni og ég vona að þessi reynsla muni nýtast okkur vel í úrslitakeppninni í Olís-deildinni,“ sagði Anton Rúnarsson, leikmaður Vals við íþróttadeild 365 eftir leik- inn en nú þarf HSÍ að stilla upp úrslitakeppninni í kringum undan- úrslitaleiki Valsliðsins. Það er þétt dagskrá fram undan hjá Val. „Þetta er mikið afrek fyrir strák- ana, félagið og handboltann á Íslandi og það geta allir verið stolt- ir,“ sagði Óskar Bjarni Óskarsson, annar þjálfari Vals, glaður í leikslok, og bætti við: „Við erum með ansi laskað lið og það eru margir leikir fram undan ef við komust alla leið í úrslitin. Það verður mikill hausverkur að púsla þessu saman.“ Valur mætir Turda frá Rúmeníu í undanúrslitum. Upplifa allan balkanskagann „Það verður glæsilegt að upplifa allan Balkanskagann, ég er búinn að fara til Serbíu, Svartfjallalands og er á leiðinni til Makedóníu með lands- liðinu. Ég fer að fara að tala tungu- málið og er öllum hnútum kunnug- ur í tískunni og tónlistinni þarna,“ sagði Óskar léttur við Íþróttadeild 365 í leikslok. Valsmenn komust fyrstir íslenska handboltaliða í undanúrslit í Evrópukeppni fyrir 37 árum og á laugardaginn eignaðist Hlíðarenda- liðið sitt þriðja lið sem kemst alla leið í undanúrslit í Evrópu. Ekkert annað lið á fleiri en eitt undanúr- slitalið í sögu Evrópukeppnanna. Ellefu ár voru liðin frá því að íslensk lið komst í undanúrslitin í Evrópukeppni og það voru alls liðin sextán ár síðan Ísland átti karlalið svo seint í keppninni. Valur með tvö síðustu liðin Kvennalið Vals og ÍBV áttu stærstu Evrópuævintýrin frá því að karlalið Hauka fór alla leið í und- anúrslitin í EHF-bikarnum vorið 2001. Valskonur fóru svo langt í Áskorendakeppninni 2006 eftir sigur á svissneska liðinu Brühl í átta liða úrslitum. Valsliðið féll út á móti rúmensku liði í undanúrslitunum. Tveimur árum fyrr fóru Eyjakonur jafnlangt í sömu keppni eftir sigur á króatísku liði í átta liða úrslitum. ÍBV datt síðan út í undanúrslitunum á móti verðandi meisturum Nürn- berg frá Þýskalandi. Haukarnir voru fyrir árangur Valsmanna um helgina eina karla- liðið sem hafði komið í undanúr- slit í Evrópu á síðustu þremur ára- tugum. Haukarnir duttu þá út fyrir Metković Jambo frá Króatíu í und- anúrslitunum 2001 en landar þeirra hjá Magdeburg, Alfreð Gíslason og Ólafur Stefánsson, hefndu fyrir það tap með því að vinna Króatana. Tvö í undanúrslitum vorið 1985 Gullöld íslenskra liða í Evrópu- keppninni var þó örugglega 1984-85 tímabilið þegar bæði FH (meistara- liða) og Víkingur (bikarhafa) kom- ust í undanúrslit. FH-ingar áttu þar enga möguleika í verðandi meistara Metaloplastika sem voru langbestir í Evrópu á þessum tíma. Víkingar duttu út þrátt fyrir 20-13 sigur á Barcelona í heimaleiknum eftir ótrúlegan dómaraskandal í seinni leiknum á Spáni sem Börsungar unnu 22-12. Barcelona vann síðan úrslitaleikinn á svipaðan hátt. Þróttarar náðu einnig einstökum árangri 1981-82 tímabilið þegar þeir fóru alla leið í undanúrslit Evrópu- keppninnar í fyrstu tilraun sinni við Evrópukeppni. aðeins eitt lið í úrslitaleik Valsmenn fóru alla leið í úrslita- leikinn vorið 1980 og það lið er enn þann dag í dag eina íslenska liðið sem hefur spilað til úrslita um Evrópumeistaratitilinn. Vals- menn slógu þá spænska liðið Atlé- tico Madrid út úr undanúrslitum en steinlágu fyrir Grosswallstadt í úrslitaleiknum. Nú verður spenn- andi að sjá hvort annað Valslið komist í úrslitaleik í Evrópukeppni. Eftir tæpa fjóra áratugi er kominn tími á að fá nýtt lið í klúbbinn. ooj@ frettabladid.is Lengsta Evrópuævintýrið í ellefu ár Valur á þrjú af átta liðum sem hafa komist í undanúrslit Evrópukeppninnar en karlalið Vals bættist í hópinn um helgina þegar Hlíðar- endaliðið sló út serbneska liðið HC Sloga Pozega um helgina. Það verður því nóg af stórleikjum hjá Valsmönnum á næstu vikum. Þetta er mikið afrek fyrir strákana, félagið og handboltann á Íslandi. Óskar Bjarni Óskarsson 3 . a p r Í l 2 0 1 7 M Á n U d a G U r12 S p o r t ∙ F r É t t a B l a ð i ð sport 0 3 -0 4 -2 0 1 7 0 4 :2 8 F B 0 4 0 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C 9 7 -0 3 B 0 1 C 9 7 -0 2 7 4 1 C 9 7 -0 1 3 8 1 C 9 6 -F F F C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 4 0 s _ 2 _ 4 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.