Fréttablaðið - 03.04.2017, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 03.04.2017, Blaðsíða 30
Vinalaus Wenger valtur eftir gagnslaust jafntefli Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, er óðum að verða vinalaus meðal stuðningsmanna félagsins. Arsenal gerði í gær jafntefli við City sem gagnast liðinu afar takmarkað í baráttunni um Meistaradeildarsætið. Stjórnarmenn Arsenal þurfa hreinlega að fara spyrja sig hvort að einhver annar geti ekki gert betur en Wenger. fótbolti Arsenal virðist nú óðum að vera að missa af lestinni um efstu fjögur sæti ensku Úrvalsdeildarinn- ar þegar liðið gerði jafntefli gegn Manchester City í gær á heimavelli. Liðið hefur nú aðeins unnið einn sigur í síðustu sex leikjum. Liðsmenn Wengers gerðu vel í að jafna eftir að hafa lent í tvígang undir í leiknum en færin voru að megninu til City-megin og frammi- staða Arsenal hefur gert lítið til þess að lægja ófriðaröldur stuðnings- manna Arsenal í garð knattspyrnu- stjórans gamalgróna. Stutt er síðan stuðningsmenn Arsenal leigðu flugvél með borða þar sem Wenger var vinsamlega bent á að yfirgefa félagið og ef marka má samfélagsmiðla hafa stuðningsmenn liðsins nú einnig leigt bíla sem keyra um London með sams konar skilaboð. Ljóst er að jafnteflið í gær gerir lítið sem ekkert fyrir Arsenal sem þurfti nauðsynlega á sigri að halda. Öll réttlætingin fyrir veru Wenger að hverfa Gagnrýni á Wenger hefur aukist jafnt og þétt undanfarin tíu ár eða svo og hafa bikarsigrarnir tveir frá 2014 og 2015 aðeins virkað sem tímabundinn plástur á arfleifð Wen- gers undanfarinn ár. En jafnvel þótt gagnrýnisradd- irnar hafa lifað lengi á meðal ákveð- ins hóps stuðningsmanna Arsenal hefur Wenger alltaf tekist að kveða þær niður og þá með vísan til þess stöðugleika sem hann hefur fært Arsenal öll þessi ár, þrátt fyrir að langt sé síðan Arsenal hefur nælt í Englandsmeistaratitilinn hefur Leikmaður helgarinnar Það hefur ekki alltaf blásið byrlega fyrir Wilfried Zaha, hinum 24 ára gamla kantmanni Crystal Palace, sem var potturinn og pannan í góðum sigri Palace á toppliði Chelsea um helgina. Eftir draumafélagsskiptin til Manchester United árið 2013 virtist framtíðin vera björt en eftir tvö ár og aðeins tvo leiki fyrir United sneri hann aftur á heimaslóðir þar sem hann er nú óðum að verða helsta stjarnan í liði Sam Allardyce. Allar- dyce hefur verið lengi að trekkja sína menn í gang eftir að hann tók við í desember en liðið er nú á uppleið eftir fjóra sigra í deildinni í röð. Þar hefur Zaha leikið aðalhlutverk, þá helst með því að leika lausum hala á hægri vængnum. Hann hefur verið besti leikmaður liðsins í þeirri sigurhrinu sem nú stendur yfir og hefur lyft liðinu upp úr fallsæti. Á því var enginn undantekning um helgina gegn Chelsea. Hann var aðal- hvatamaðurinn að endurkomu gestanna með því að skora og leggja upp mark á aðeins sex mínútum. Zaha er sniðinn að kröfum úrvalsdeildarinnar með sínum gríðarlega hraða og leikni og ætti að geta náð langt, haldi hann áfram á sömu braut. Stóru málin eftir helgina í enska boltanum Stærstu úrslitin Liverpool sýndi klærnar gegn liði Everton sem spilað hefur allra liða best frá áramótum. Langt er síðan hinir bláklæddu hafa sótt sigur á Anfield og töldu margir að nú væri tækifærið. Læri- sveinar Klopps voru þó fljótir að slökkva í vonum Everton-manna og festu sig í sessi í baráttunni um Meistaradeildarsætin. Hvað kom á óvart? Það virtist allt stefna í sigur Chelsea á Crystal Palace eftir að Césc Fabregas kom liðinu yfir á fimmtu mínútu. Strákarnir hans Sam Allardyce girtu sig þó í brók og aðeins sex mínútum síðar var liðið komið yfir, 1-2. Eftir brösuga byrjun á stjóratíð Stóra Sam er Palace nú komið á mikla siglingu, en sigurinn var sá fjórði í röð. Mestu vonbrigðin Romelu Lukaku, marka- hæsti leikmaður deildar- innar, reið ekki feitum hesti frá Anfield eftir tap Everton gegn Liver- pool á laugardaginn. Framherjinn stóri og stæðilegi sem spilað hefur frábærlega að undanförnu sá aldrei til sólar í leiknum, átti skot að marki og tapaði nánast hverju einasta návígi þeirra Dejan Lovren. liðið alltaf náð í Meistaradeildina á undanförnum árum, ólíkt helstu keppinautum liðsins. Það hefur verið helsta haldreipi Wenger undanfarin ár en hann virðist óðum vera að missa tökin. Með jafnteflinu í gær situr Arsenal í sjötta sæti, sjö stigum frá fjórða sætinu þegar liðið á aðeins tíu leiki eftir. Arsenal, sem tekið hefur þátt í Meistaradeildinni, samfleytt frá árinu 2000, er því í verulegri hættu á að missa af sætinu og öllum þeim peningum og dýrðarljóma sem því fylgir. Gangi það eftir má ætla að eigendur Arsenal þurfi að spyrja sig þeirrar spurningar hvort ein- hver annar geti ekki gert betur en Wenger? Leikmennirnir misst alla trú? Það er ekki bara stór hluti stuðn- ingsmanna sem virðist vera búinn að bóka miða á Wenger-out vagn- inn, stór hluti leikmanna virðist einnig vera í svipuðum hugleið- ingum. Líkamstjáning Alexis Sanchez í leikjum Arsenal að undanförnu bendir í það minnsta til þess sem og úrslit leikja liðsins að undanförnu. Það vakti einnig athygli að Theo Walcott var sá eini sem fagnaði fyrra jöfnunarmarki Arsenal í leiknum, aðrir virtust varla hafa áhuga á því. Enska úrvalsdeildin Staðan Úrslit 30. umferðar 2016-17 Liverpool - Everton 3-1 1-0 Sadio Mané (8.), 1-1 Matthew Penn- ington (28.), 2-1 Philippe Coutinho (31.), 3-1 Divock Origi (60.). Man. Utd - West Brom 0-0 Watford - Sunderland 1-0 1-0 Miguel Britos (59.) Leicester - Stoke 2-0 1-0 Ndidi (25.), 2-0 Jamie Vardy (47.) Hull - West Ham 2-1 0-1 Andy Carroll (18.), 1-1 Andrew Robert- son (53.), 2-1 Andrea Ranocchia (85.). Chelsea - Crystal Palace 1-2 1-0 Cesc Fàbregas (5.), 1-1 Wilfried Zaha (9.), 1-2 Christian Benteke (11.). Burnley - Tottenham 0-2 0-1 Eric Dier (66.), 0-2 Son (77.). S´hampton - Bournem. 0-0 Swansea - Middlesb. 0-0 Arsenal - Man. City 2-2 0-1 Leroy Sané (5.), 1-1 Theo Walcott (40.), 1-2 Theo Walcott (42.), 2-2 Shkodran Mustafi (53.). FÉLAG L U J T MÖRK S Chelsea 29 22 3 4 60-23 69 Tottenham 29 18 8 3 57-21 62 Liverpool 30 17 8 5 64-37 59 Man. City 29 17 7 5 56-32 58 Man. United 28 14 11 3 42-23 53 Arsenal 28 15 6 7 58-36 51 Everton 30 14 8 8 52-33 50 West Brom 30 12 8 10 39-38 44 Stoke 30 9 9 12 33-44 36 S´hampton 28 9 7 12 33-36 34 Bournem. 30 9 7 14 42-54 34 Watford 29 9 7 13 34-48 34 Leicester 29 9 6 14 35-47 33 West Ham 30 9 6 15 41-54 33 Burnley 30 9 5 16 31-44 32 Cry. Palace 29 9 4 16 38-47 31 Swansea 30 8 4 18 36-63 28 Hull 30 7 6 17 28-59 27 Middlesbr. 29 4 11 14 20-33 23 Sunderland 29 5 5 19 24-51 20 Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, gat ekki leynt vonbrigðum sínum á hliðarlínunni í gær eftir að lið hans lenti undir í upphafi leiksins. Um leið bjó Frakkinn til táknræna mynd af stöðu mála í herbúðum Arsenal. Mynd/noRdiCPHoToS/GETTy Okkar menn Íslendingar í efstu tveimur deildunum í Englandi Swansea City Gylfi Þór Sigurðsson Gylfi Sigurðsson Var manna sprækastur í 0-0 jafntefli Swansea gegn Middles brough á heimavelli. Cardiff City Aron Einar Gunnarsson Lék allan leikinn í 3-1 tapi Cardiff gegn Wolves á útivelli. Aston Villa Birkir Bjarnason Er meiddur og lék ekki með Aston Villa í sigri liðsins á Norwich á heima- velli. Fulham Ragnar Sigurðsson Kom ekki við sögu í 1-0 útisigri Fulham gegn Rotherham United. Bristol City Hörður B. Magnússon Var ónotaður varamaður í 2-0 tapi Bristol City. Burnley Jóhann Berg Guðm. Enn frá vegna meiðsla og lék ekki í tapi gegn Spurs. Wolves Jón daði Böðvarsson Kom inn á sem varamaður á 73. mínútu í 3-1 heima- sigri Wolves á Cardiff. 3 . a p r í l 2 0 1 7 M Á N U D a G U r14 S p o r t ∙ f r É t t a b l a ð i ð 0 3 -0 4 -2 0 1 7 0 4 :2 8 F B 0 4 0 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 9 6 -F E C 0 1 C 9 6 -F D 8 4 1 C 9 6 -F C 4 8 1 C 9 6 -F B 0 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 0 s _ 2 _ 4 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.