Fréttablaðið - 03.04.2017, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 03.04.2017, Blaðsíða 31
Kærstuparið hélt báðum beltunum Ásmundur Hálfdán Ásmundsson, úr UÍA og Marín Laufey Davíðs- dóttir úr HSK vörðu bæði beltin sín á Íslandsglímunni um helgina í Iðu á Selfossi. Ásmundur sigraði Pétur Þóri Gunnarsson, Mývetn- ing í síðustu glímunni og tryggði sér Grettisbeltið annað árið í röð. Marín sigraði allar sínar glímur af miklu öryggi. Jana Lind Ellerts- dóttir varð í 2. sæti. Þetta er í fimmta sinn sem Marín Laufey sigrar keppnina um Freyju- menið en metið á Svana Hrönn Jóhannsdóttir sem vann það sex sinnum á sínum tíma. Svo skemmtilega vill til að þau Marín og Ásmundur eru kærustu- par og bæði beltin verða því í góðu sambandi næsta árið. - óój Elsa Guðrún vann þrEfalt skíði Skíðalandsmót Íslands fór fram í Hlíðarfjalli við Akureyri um helgina en þar var bæði keppt í alpagreinum og skíðagöngu. Ólafsfirðingurinn Elsa Guðrún Jóns- dóttir var sigursælust á mótinu en hún vann allar göngugreinar kvenna eða sprettgöngu, göngu með frjálsri aðferð og göngu með hefð- bundinni aðferð. Isak Stiansson Pedersen úr SKA vann bæði sprettgönguna og göngu með frjálsri aðferð en hann vann einnig flokk 18 til 20 ára drengja. Framtíðarmaður. Brynjar Leó Kristinsson vann göngu með hefð- bundinni aðferð, en þar varð Sævar Birgisson annar og Ísak þriðji. Freydís Halla Einarsdóttir og Sturla Snær Snorrason voru sigur- sælust í alpagreinunum. Sturla Snær vann bæði svig og stórsvig hjá strákunum. Bjarki Guð- jónsson úr Skíðafélagi Akureyrar vann samhliðasvigið. Ármenningurinn Freydís Halla Einarsdóttir varð Íslandsmeistari í bæði stórsvigi og samhliða svigi en hún fékk síðan silfur í sviginu. Helga María Vilhjálmsdóttir vann svigið örugglega og fékk auk þess silfur í stórsviginu. - óój Vinalaus Wenger valtur eftir gagnslaust jafntefli Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, er óðum að verða vinalaus meðal stuðningsmanna félagsins. Arsenal gerði í gær jafntefli við City sem gagnast liðinu afar takmarkað í baráttunni um Meistaradeildarsætið. Stjórnarmenn Arsenal þurfa hreinlega að fara spyrja sig hvort að einhver annar geti ekki gert betur en Wenger. Síðustu tvö mánuði hafa einu sigr- ar Arsenal komið gegn utandeildar- liðunum Sutton United og Lincoln. Þess á milli hefur liðið mátt þola stór og erfið töp gegn Liverpool, Bayern München og West Brom- wich Albion. Wenger er nú kominn á þann vonda stað að hvert tap eða jafn tefli er áfall á meðan hver sigur nægir ekki til þess að vinna þá sem þegar hafa látið af stuðningi við hann aftur til baka. Sá staður er yfirleitt merki um að þjálfarar séu komnir á and- lega endastöð og tími sé kominn til þess að prófa eitthvað nýtt. Hver getur gert betur? Stjórnarmenn Arsenal virðist þó hafa litlar áhyggjur og ef sögu- sagnir frá Bretlandi eru réttar hefur Wenger nú þegar skrifað undir tveggja ára framlengingu á samningi sínum. Ástæðan fyrir því að fram- lengingin hefur ekki verið kynnt opinberlega ku vera sú að stjórnar- menn Arsenal eru hræddir við þau mótmæli sem kynnu að brjótast út á meðal stuðningsmanna félagsins. Wenger virðist allavega ekki vera á þeim buxunum að láta af störfun- um á næstunni, sérstaklega miðað við orð hans fyrir leik í gær. „Fyrir eldri borgara er það að fara á eftir- laun það sama og að deyja,“ sagði hinn 67 ára gamli Frakki. Þrátt fyrir að stjórnarmenn megi ekki látast stjórnast af duttlungum stuðningsmanna er ljóst að félag sem er hrætt við viðbrögð stuðn- ingsmanna þegar kemur að því að framlengja samning við knatt- spyrnustjórann er komið á vondan stað. Ef til vill eru þeir hræddir við óvissuna sem fylgir því þegar goð- sögn fer frá félaginu. Spor Manchester United eftir brotthvarf Sir Alex Ferguson hræða Það er skiljanlegur ótti enda er United enn að reyna að feta sig í heiminum eftir að þeirra goðsögn lét sig hverfa. Færa má þó rök fyrir því að staða Arsenal sé ekki nærri því jafn varasöm og staða United var á sínum tíma. Arftaki Fergusons þurfti að vinna titilinn sem fyrst til þess að viðhalda stöðu United. Það eina sem arftaki Wengers þarf að gera er að ná fjórða sætinu. tryggvipall@365.is Fyrir eldri borgara er það að fara á eftirlaun það sama og að deyja Arsene Wenger fyrir leik Arsenal og Man. City Theo Walcott hefur nú skorað fimm mörk í síðustu fimm leikjum sem hann hefur spilað gegn Manchester City. Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, gat ekki leynt vonbrigðum sínum á hliðarlínunni í gær eftir að lið hans lenti undir í upphafi leiksins. Um leið bjó Frakkinn til táknræna mynd af stöðu mála í herbúðum Arsenal. Mynd/nordicPHotos/Getty elsa Guðrún Jónsdóttir hefur unnið ellefu Ís- landsmeistara- titla á ferlinum. Haukar - ÍBV 25-20 Markahæstar: Maria Ines Da Silva 6, Ramune Pekarskyte 6, Erla Eiríksdóttir 4, Guðrún Erla Bjarnadóttir 4- Sandra Dís Sigurðardóttir 4, Sandra Erlingsdóttir 4. Grótta - Fylkir 27-19 Markahæstar: Sunna María Einarsdóttir 8, Lovísa Thompson 5, Anna Úrsúla Guð- mundsdóttir 4, Þórey Anna Ásgeirsdóttir 4 - Thea Imani Sturlud.5, Christine Rishaug 5. Fram - selfoss 32-23 Markahæstar: Ragnheiður Júlíusdóttir 12, Steinunn Björnsdóttir 10 - Perla Ruth Al- bertsdóttir 4, Dijana Radojevic 4, Hulda Dís Þrastardóttir 3, Kristrún Steinþórsdóttir 3. stjarnan - Valur 28-21 Markahæstar: Stefanía Theodórsdóttir 8, Brynhildur Kjartansdóttir 5, Hanna Guðrún Stefánsdóttir 5 - Diana Satkauskaite 7, Kristín Guðmundsdóttir 6. efri Fram 35 Stjarnan 33 Haukar 22 Grótta 21 neðri ÍBV 17 Valur 16 Selfoss 10 Fylkir 6 Nýjast olís-deild kvenna 25% ALLAR KEÐJUSAGIR Á AFSLÆTTI TIL 6. APRÍL25% Bensín, rafhlöðu eða rafmagns. ALLAR BÍLAKERRUR Á AFSLÆTTI TIL 6. APRÍL20% Leyfileg heildarþyngd er 750kg ALLAR RAFMAGNS OG BENSÍN HEKKKLIPPUR Á AFSLÆTTI TIL 6. APRÍL stjarnan - snæfell 70-86 stigahæstar: Danielle Rodriguez 33/9 frák./9 stoðs., Ragna Margrét Brynjarsdóttir 13, Bryndís Hanna Hreinsdóttir 6, Bríet Sif Hinriksdóttir 6 - Aaryn Ellenberg 31/11 frák., Bryndís Guðmundsdóttir 21, Gunn- hildur Gunnarsdóttir 10/6 stoðs., María Björnsdóttir 7, Berglind Gunnarsdóttir 6/5 stoðs., Rebekka Rán Karlsdóttir 5. staðan er 2-0 fyrir snæfell. Næsti leikur er í Stykkishólmi á miðvikudaginn. skallagrím. - Keflavík 59-74 stigahæstar: Tavelyn Tillman 29, Fanney Lind Thomas 9, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 9/8 frák./6 stoð. - Thelma Dís Ágústsdóttir 20/6 fráköst, Ariana Moorer 16/18 frá- köst/11 stoðsendingar, Erna Hákonardóttir 11, Emelía Ósk Gunnarsdóttir 9, Þóranna Kika Hodge-Carr 7, Birna Valgerður Benón- ýsdóttir 6 staðan er 1-1. Næsti leikur er í Keflavík á fimmutdaginn kemur. domino’s-deild kvenna Undanúrslit leikir 2 ÖLL FjÖgUr Sætin tryggð Um helgina varð það ljóst hvaða fjögur lið munu berjast um Íslandsmeist- aratitil kvenna í handbolta í ár en Haukar og grótta tryggðu sér þá tvö síðustu sætin í úrslitakeppni Olís-deildar kvenna. Fram og Stjarnan, sem eru langefst í deildinni, unnu líka bæði sína leiki sem þýðir að þau mætast í hreinum úrslita- leik um deildarmeistaratitilinn í Framhúsinu í Safamýri um næstu helgi. FrUMSýning HjÁ KriStóFEr Annar leikur Íslandsmeistara Kr og Keflavíkur í undanúrslitum Domino´s deildar karla fer fram í Keflavík klukk- an 19.15 í kvöld og er í beinni á Stöð 2 Sport. Kr vann fyrsta leikinn með 19 stigum og mætir auk þessa í kvöld með landsliðsmanninn Kristófer Acox, ferskan og í frábæru formi úr bandaríska háskólaboltanum. HLynUr tóK MEtið AF KÁrA Hlynur Andrésson setti Íslands- met í 5000 metra hlaupi á Stanford boðsmótinu í Kaliforníu um helg- ina þegar hann hljóp á 14:00,83 mínútum. Hlynur bætti þarna sjö ára gamalt met Kára Steins Karls- sonar sem var 14:01,99 mínútur og sett á sama stað. Hlynur stundar nám við Eastern Michigan háskólann í Bandaríkjunum. Ásmundur og Marín Laufey með beltin. FréttABLAðið/GretA sVerrisdóttir S p o r t ∙ F r É t t A B L A ð i ðs f a l a 15M Á n u D a G u r 3 . a p r í l 2 0 1 7 0 3 -0 4 -2 0 1 7 0 4 :2 8 F B 0 4 0 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C 9 7 -0 8 A 0 1 C 9 7 -0 7 6 4 1 C 9 7 -0 6 2 8 1 C 9 7 -0 4 E C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 0 s _ 2 _ 4 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.