Kvennalistinn - 01.01.1987, Qupperneq 7
Þegar skyldunámi
lýkur, hvað þá?
Þegar aö því kemur, að
krakkar af landsbyggðinni fara
í framhaldsskóla, er þeim oft
ærinn vandi á höndum. Krakk-
arnir vita mörg hver ekkert
hvert halda skal í skóla, þegar
skyldunámi lýkur. Skólakynn-
ing og starfsfræðsla mætti
gjarnan vera meiri í 8. og 9.
bekk grunnskóla.
Nú á tímum þrenginga og
kvótaskerðinga er eins gott að
gera sér grein fyrir hvað það
kostar að fara í skóla og það
borgar sig örugglega að nota
tímann vel til náms. hvert svo
sem farið er.
Við fórum á stúfana og
könnuðum mánaðakostnað
hjá fjórum nemendum í
jafnmörgum skólum. Við
spurðum bara um fæðis- og
húsnæðiskostnað. Öll voru
þau í heimavist, utan Reykja-
víkurneminn. sem leigði her-
bergi og sá um sig sjálfur. En
þar er fátt um heimavistir og
dýrt að leigja á almennum
markaði. En í Reykjavík eru
mun fleiri námsmöguleikar og
hátt á 2. þús. nemendur utan
af landi munu sækja þar
framhaldsskóla í vetur. Nem-
endur á Laugavatni hjálpa
eitthvað til við uppvask til að
minnka kostnað. Neminn í
Fjölbrautaskóla Vesturlands
fékk eina máltíð á dag í
skólanum. en sá um sig sjálfur
í mat að öðru leyti. enda mjög
góð aðstaða til þess. Mikil
aðsókn er að heimavistinni og
Hvítárskálinn
við Hvítárbrú. Sími 93-70050
Bensín og olíuvörur
Nýlenduvörur og sælgæti
Opið mánud. - föstud. kl. 11.30-21.00
og laugard. - sunnud. kl. 11.30-18.00
munu krakkar af Vesturlandi
ganga fyrir með pláss þar.
Þessar kostnaðartölur eru
síðan í haust og nú hefur allt
hækkað. Samt vona ég að þið.
sem eruð að hugsa ykkur um
fyrir næsta vetur. getið haft
gagn af þessu.
Menntaskólinn á Akureyri:
fullt fæði ........ 15.000 kr.
heimavist .......... 4.000 "
alls 19.000 kr
Menntaskólinn við Hamrahlíð:
herb á leigu ..... 13 000 kr
fæði (sjálf) ..... 12.000 ”
alls 25.000 kr.
Menntaskólinn á Laugarvatni
fullt fæði og
húsnæði ........ 13.500 kr.
Fjölbrautaskólinn á Akranesi:
a)
heimavist ........... 1.500 kr
1 máltíð á dag ..... 4.000 "
fæði (sjálfur) ..... 4.700 ”
alls 10.200 kr.
b)
heimavist ........... 1.500 kr.
fullt fæði ......... 11.200 ”
alls 12.700 kr.
SSG
FERÐAMENN
Vorum að breyta og bæta.
Lítið inn og látið fara vel um
ykkur á þægilegu hótelher-
bergi og yfir indælum
málsverði.
Leggjum áherslu á hlýlegt og
gott viðmót.
Hótel Nes
Ólafsvík Sími 93-61300
7