Hjúkrunarkvennablaðið - 01.12.1947, Page 4

Hjúkrunarkvennablaðið - 01.12.1947, Page 4
2 HJÍJKRUNARKVENNABLAÐll) lljjiikriiiiarkoiian og sjúkrahúsin. Fyrstu árin, sem hjúkrunarkvenna- skólinn starfaöi, var aðsókn þar svo mik- il, að margir umsækjendur urðu að bíða eitt til tvö ár. Á þessu hefir orðið mikil breyting hin síðari árin og er nú vöntun- in á hjúkrunarkonum orðin alltilfinnan- leg. Þetta er ekki neitt einsdæmi fyrir ís- land. Síðasta skýrsla I.C.N. (Alþjóðaráðs hjúkrnnarkvenna) sýnir, að aðeins eilt land hqfir ekki kvartað um vöntun á hjúkrunarliði. Hvað eftir annað liefir þetla vandamál verið rætt á hjúkrunarkvennamótum víða um lönd og mikið verið um það ritað. Hafa öll þau skrif og allar þær umræður einna lielzt snúist um tilhögun hjúkrun- arkvennaskólans, og skoðanir vcrið ærið misjafnar og sundurleitar. Stofnaðir hafa verið margir tilrauna- skólar og svo hafa hjúkrunarkvennaskól- arnir yfirleitt reynt ýmsar mismunandi aðferðir máli þessu til lausnar, en telja má víst, að þólt þcssir skólar kunni að finna viðunandi lausn þess, hver fyrir sig, muni þó hin sama tilhögun ekki lienta alls staðar lijá öllum þjóðum. Hér hjá okkur er fyrirhuguð allveruleg hreyting á tilhögun hjúkrunarkvennaskólans inn- an skamms, og þá sérstaklega þegar skól- inn fær silt nýja liúsnæði. Þetta mun þó naumast reynast einhlítt, þótt vel kunni að takast, til þess að tryggja sjúkrahús- um landsíns nægilegt hjúkrunarlið. Ekki er líklegt, að ung stúlka, sem ætl- ar að leggja stund á hjúkrun, láti sér nægja að kynna sér kjör og starfsskil- yrði hjúkrunarnemans, lieldur miklu fremur það, liver kjör liennar munu verða og, hvað híði hennar yfirleitt að náminu loknu. Full ástæða er til þess að ætla, að þetta vegi meira, en tilhögun sjálfs hjúkr- unarnámsins. En hversu vel tekst um kjör og starfsskilyrði hjúkrunarkonunn- ar, er auðvitað komið undir hjúkrunar- kvennaliðinu sjálfu, svo og þeim aðilum í þjóðfélaginu, sem eiga að sjá þessu sem bezt borgið. Areiðanlega gætu flestar hjúkrunar- konunr lagt eitthvað til málanna og bent á ýmislegt, scm hetur mætti fara. Ég hefi lílca orðið þess vör hjá nemum og yngstu hjúkrunarkonunum, að þær hafa oft öðr- um fremur næma tilfinningu fyrir ágöll- um fyrirkomulagsins og ýmsu því, er het- ur mætti fara. Er þetla skiljanlegt, því að allur vani blindar fólk oftast að einhverju leyti. Félag hjúkrunarkvenna gefur út þetta blað einmitt til þess, meðal annars, að hjúkrunarkonum gefist þess kostur, að koma á framfæri skoðunum sínum varð- andi eitt og annað. Gætu þá hinar eldri og reyndari ýmist leiðrétt eða hagnýtt sér slíkar tillögur, er kynnu að koma frá liinu yngra starfsliðinu, allt eftir feng- inni reynslu, kröfu tímans og hlutdrægn- islausri og skynsamlegri athugun. Mér skilst, að hjúkrunarkonur hafi litt fært sér í nyt þetta tækifæri og meiri hluti lesmáls hlaðsins sé þýlt úr erlendum rilum að fráteknum dánarminningum eða þá, ef læknar okkar hafa lilaupið undir bagga. Eg vil nú gjarnan benda á aðeins tvennt að þessu sinni, sem gert hefir starf hjúkr- unarkonunnar erfiðara og leiðinlegra, en nauðsynlegt er. Þetta tvennt er, heim- sóknartíminn og hyrjun vinnudagsins. Hjúkrunarkonur þurfa engu síður að fá fulla hvíld, en aðrar vinnandi stéttir. Ekki er ævinlega auðvelt að komast snemma til hvíldar að kvöldi, eftir því, sem nútímalífi manna er háttað. Og hvers vegna skyldi lijúkrunarkonan þurfa að rífa sig á fætur fvrir allar aldir og hefja vinnudag sinn einni lil tveim klukku-

x

Hjúkrunarkvennablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hjúkrunarkvennablaðið
https://timarit.is/publication/1238

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.