Hjúkrunarkvennablaðið - 01.12.1947, Side 10

Hjúkrunarkvennablaðið - 01.12.1947, Side 10
8 HJÚKRUNARKVENNABLAÐIÐ og við venjulega heimakomu er peni- cillin alveg óþarft. Ef sulfalyf þolast illa, er sjálfsagt að gefa penicillin, og sömuleiðis við heima- komu þeirri, sem stundum fylgir uræmi, þar sem sulfalyf koma oft að mjög litlu gagni. Þetta er mikilvægt sökum þess, að sum tilfelli af uræmi stafa ekki af sjúkdómum í nýrunum sjálfum, heldur sjúkdómum í öðrum líffærum (extra- renal uræmi), sem þá oft er hægt að lækna. Nýlega liafði ég sjúkling hér á spitalanum, 58 ára gamlan karlmann, með heimakomu, er balnaði við peni- cillingjöf, en sulfadiazin hafði engin á- hrif liaft á. Sjúklingur þessi var með uræmi, er stafaði af þvagteppu. Um barnsfararsótt get ég lítið sagt, því að sá sjúkdómur sést sjaldan hér á spítalanum. Sulfalyf liafa reynzt vel við barnsfar- arsótt, og líklegt er, að þau verði notuð alhnikið við benni i framtíðinni. Peni- cillin hefur einnig mjög mikil áhrif á gang sjúkdómsins, jafnvel væg tilfelli, og styttir hann að mun. Er sjálfsagt að gefa penicillin í slæmum tilfellum og ef sulfalyf þolast illa. Sömuleiðis er sjálfsagt að gefa þeini sjúkl. penicillin, sem batnar ekkert eftir sólarlirings sulfagjöf. Þar sem penicillin er gagnslaust. Penicillin verkar ekki á bac. coli og skyldar bakteríur, sem valda niðurgangi (taugaveiki og paratyfus) og blóð- kreppusótt. Ekki heldur útbrotatauga- veiki né á sjúkdóma, sem virusar valda. Penicillin er gagnslaust við eftirfarandi sjúkdóma m. a.: Hettusótl, rauða hunda, mænuveiki, ristil, bólusótt. lilaupabólu, inflúenzu og mislinga. Við venjulega inflúenzu er penicillin gagnslaust. Inflúenzulungnabólga er mjög alvarlegur sjúkdómur, og sulfalyf eru mjög oft gagnslítil við benni. Peni- cillin ætti því að reyna við slík tilfelli. fíólusótt. Af bólusótt bef ég enga reynslu, en þar sem ígerð sú, er á vissu stigi sjúk- dómsins kemur í bólurnar, stafar af keðjusýklum, sem sulfalyf verka á, virð- ist skynsamlegt að nola penicillin á þessu stigi veikinnar, ef um alvarleg tilfelli er að ræða. í nokkur ár höfum við á þessum spít- ala verið vanir að gefa öllum mislinga- sjúklingum sulfalyf, jafnvel þólt engir fylgikvillar komi i Ijós. Þessir sjúkling- ar fá hérumbil aldrei alvarlega fylgi- kvilla, eins og lungnabólgu, iðrakvef eða miðeyrabólgu. Að nokkru leyti kann það að vera því að þakka, að við ein- angrum öll slík tilfelli og komum þann- ig i veg fyrir, að sjúklingarnir smiti bverir aðra, en líklegt er, að það sé að nokkru leyti sulfalyfjunum að þakka. Það er að minni byggju þess vert, að minnzt sé á það, að eklci hefur eitt ein- asla mislingatilfelli með fylgikvillum endað með dauða síðan sulfalyf voru fyrst notuð liér á spítalanum fyrir 6—7 árum, og höfum við þó baft mjög marga mislingasjúklinga, suma allveika. Þýtt úr Nursing Times. Tilkyniiing: Samþykkt var á aðalfundi F.Í.H. 24. nóv. s.l. ósk um að hver félagskona greiddi í eitt skipti kr. 35,00, til að ljúka rúmlega 5 þús. kr. skuld, sem fé- lagið er í við Landsbanka íslands, vegna lagfæringar á sumarhúsinu og lóð kring- um það. Þær félagskonur, sem vinsam- lega vildu leggja þetta fram, eru beðnar að koma uppliæðinni til frk. Þórunnar Þorsteinsdóttur, liandlæknisdeild Lands- spítalans.

x

Hjúkrunarkvennablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hjúkrunarkvennablaðið
https://timarit.is/publication/1238

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.