Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1960, Síða 4
Ársskýrsla Hmkrunarfélags Islands
Stjórnardr félagsins frd 24. nóv. 1958 til 9. des. 1959
Hjúkrunarfélag Islands hefur á stjórn-
ári sínu frá 24. nóv. 1958 til 9. des. 1959
haldið 11 stjórnarfundi og 4 félagsfundi.
Á aðalfundi félagsins 24. nóv. 1958 voru
mættar 70 félagskonur og 4 hjúkrunar-
nemar. Formaður las upp ársskýrslu fé-
lagsins og var hún samþykkt. Síðan voru
reikningar félagsins lesnir upp og voru
þeir einnig samþykktir.
Þá hófs.t stjórnarkosning. Úr stjóm
áttu að ganga Sigrún Magnúsdóttir og
Ragnhildur Jóhannsdóttir, og gáfu þær
hvorugar kost á sér til endurkjörs. Kosn-
ar voru Margrét Jóhannesdóttir og Anna
Loftsdóttir. Varamaður í stjórn var kosin
Hrefna Jóhannsdóttir.
Ritstjórn: í ritstjórn voru kosnar Aðal-
heiður Árnadóttir, Bergljót Líndal og Sig-
rún Jónatansdóttir. Fyrir voru Elín Egg-
erts Stefánsson og Rristín Gunnarsdóttir.
Þegar leið á árið, voru 4 ofannefndra
hjúkrunarkvenna ýmist farnar af landi
burt eða fluttar út á land og var Bergljót
Líndal ein eftir í ritstjórn. Tók Margrét
Jóhannesdóttir þá að sér að koma út blöð-
um þeim sem eftir voru af árinu, með
aðstoð Bergljótar Líndal og Hólmfríðar
Ólafsdóttur.
SumarhúsnefncL var endurkosin en í
henni sitja Valgerður Helgadóttir, Guðrún
Árnadóttir, Sigríður Jakobsdóttir og Jóna
Hall.
Trúnaðarnefnd var endurkosin, en í
henni sitja: Kristín Thoroddsen, Þuríður
Þorvaldsdóttir og Jóna Guðmundsdóttir.
Stjórn Minningarsjóós Guðrúnar Gísla-
dóttur Björns er skipuð þeim: Jónu Guð-
mundsdóttur, Halldóru Andrésdóttur og
Guðrúnu Lilju Þorkelsdóttur, og voru þær
allar endurkjörnar.
Stjórn félagsheimilissjóðs var einnig
endurkosin, en í henni sitja: Anna John-
sen, Salóme Pálmadóttir, Bjarney Samú-
elsdóttir, Geirþrúður Kúld og Guðrún Lilja
Þorkelsdóttir.
Fulltrúar í Bandalagi lcvenna voru kosn-
ar auk formanns Guðmundína Guttorms-
dóttir, Arndís Einarsdóttir. Varafulltrú-
ar: Kristín Gunnarsdóttir og Ragnhildur
Jóhannsdóttir.
Hallveigarstaðanefnd: Sólveig Halldórs-
dóttir og Guðrún Árnadóttir (Landsspít-
alanum), voru endurkjörnar.
Áfengisvarnarnefnd var einnig endur-
kosin, en í henni eru Halldóra Þorláks-
dóttir, Ragnhildur Guðmundsdóttir og Sig-
ríður Erlingsdóttir. Til vara: Jóna Guð-
mundsdóttir.
Endurskoðendur reikninga voru endur-
kosnar Guðmundína Guttormsdóttir og
Salóme Pálmadóttir.
Fulltrúar í Samvinnu hjúkrunarkvenna
á Norðurlöndum eru nú (kosnar í júní
1958) auk formanns Aðalheiður Árna-
dóttir og Margrét Jóhannesdóttir. Til
vara: Guðríður Jónsdóttir, Elín Eggerts
Stefánsson og Anna Loftsdóttir.
Fulltrúar í Alþjóðasamvinnu hjúknm-
arkvenna (I.C.N.) eru auk formanns Þor-
björg Árnadóttir, María Pétursdóttir,
Margrét Jóhannesdóttir og Sigríður Bach-
mann. Varafulltrúar: Guðríður Jónsdóttir,
Ólöf Sigurðardóttir, Sigríður Erlingsdótt-
ir og Valgerður Helgadóttir.