Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1960, Blaðsíða 18
16
Fróðleikskorn
úr Epionu
1 Svíþjóð er nú háð orusta við „sjúkra-
húsasýkina" svokölluðu, en um það efni
birtist nýlega í Hjúkrunarkvennablaðinu
þýddur fyrirlestur eftir R. Eriksen, lektor,
Serumstofnuninni.
Hér koma fáorðar lýsingar á bardaga-
aðferð Svíanna, sem virðast tiltölulega
auðveldar og e. t. v. að mörgu leyti hag-
kvæmar víðar en í Svíþjóð.
Sjúklingar fá steypibað í stað kerlaugar
og fljótandi sápa er notuð í stað venju-
legrar sápu, því að hún getur borið smit.
Eftir baðið er líkaminn þurrkaður með
geislahitun.
Pappír er mikið notaður, m. a. í lök
á sjúkravagna og skipt er um lak fyrir
hvern sjúkling. Skurðstofulínið, sem áður
var staflað í sótthreinsunartínur með göt-
um, er nú haft hvað fyrir sig í plastum-
búðum.
Það er algengt, að meiri hluti starfs-
fólks í sjúkrahúsum í Svíþjóð (allt að
80%), gangi með ónæma stafylokokka í
nefi og koki og séu því heilbrigðir smit-
berar. Ekki borgar sig að nota antibiot-
ica gegn þessu, heldur skal reynt að hindra
smitun.
og aðhlynningu, en fá hana ekki, ef við
veitum hana ekki. Það yrði íslenzkri hjúkr-
unarkvennastétt sómi og verður minnis-
varði, ef hún víkkaði þannig starfssviðið
og léti svarta meðbræður og systur einnig
njóta góðs af starfsorku sinni og baráttu-
þreki.
Guð blessi ykkur allar við störf ykkar.
Með kærri kveðju frá konu minni og
frá Ingunni og undirrituðum.
Benedikt Jasonarson.
TIMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS
1 þessu sambandi er starfsfólkinu ráð-
lagt að nota olnbogana í stað handanna.
T. d. á að opna hurðir með olnbogunum
— það má ekki taka í handföngin — og
kranar eru þannig úr garði gerðir að
hægt sé að opna þá með olnbogum, hnjám
eða fótum.
Neglur starfsfólksins eiga að vera stutt-
klipptar og bannað er að nota naglalakk.
Það má heldur ekki ganga með stásshringi
eða armbönd, en giftingahringa er mönn-
um í sjálfsvald sett hvort þeir nota eða
ekki.
Nef- og munngrímur er gagnslaust að
nota lengur en í 1/2 klst. í einu, eftir það
þarf að skipta. Forðast ber að nota antib-
iotica í öryggisskyni.
Öll verkfæri á að sótthreinsa áður en
þau eru þvegin, hingað til hefur hið gagn-
stæða verið gert. Þannig er hægt að fyrir-
byggja, að þeir sem hreinsa verkfærin,
smitist af þeim, og breiði síðan út sýklana.
Blóm, sem sjúklingar oft fá frá vinum
og vandamönnum, geta einnig borið smit.
Þess vegna eru þau nú látin vera kyrr inni
á sjúkrastofunum á nóttunni. —
'»----------------------------------------<»
Hjúkrunarkonur og menn,
nær og fjær:
Gerið svo vel að greiða félagsgjöldin skilvis-
lega og sem fyrst eftir hver áramót, til gjald-
gerans, Guðrúnar Árnadóttur, Barónsstíg 65
(eða Barnaskóla Austurbæjar). Simi 18724.
Árstillagið er: kr. 50,00 fyrir félagsfólk, sem
ekki vinnur að hjúkrunarstörfum, — andvirði
Tímarits H.F.Í. innifalið.
Fyrir þá, sem vinna að hálfu — eða einhverju
leyti kr. 100,00.
Fyrir þá, sem vinna fulla vinnu kr. 200,00.
4>----------------------------------------$