Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1960, Blaðsíða 12
10
TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS
NATO-stelling: Sjúklingurinn er lagður á hægri hlið
með hxgra handlegg aftan við bakið og vinstri hendi undir hægri kinn. Annar fóturinn, helzt sá
sem neðar liggur, á að vera boginn; þessi stelling hindrar það, að sjúklingurinn velti á bakið og kafni.
ast í svokallaða NATO-stellingu, sem er
viðurkennd í öllum NATO-löndum Hann
er lagður á hægri hlið með hægri hand-
legg bak við hrygginn og vinstri hönd und-
ir hægri vanga. Annan fótinn, helzt þann
neðri, á að beygja um hnéð, þannig að
sjúklingurinn geti ekki oltið á bakið.
Ekkert má láta undir höfuðið, því ef
höfuðið liggur lágt, mun blóð, slím eða
uppsala frá maga síður renna ofan í barka.
E. t. v. geta beinbrot versnað í NATO-
stellingunni, en áhættan er hverfandi, ef
Við mikla slaglæðablæðingu getur verið nauðsyn-
legt að reira um liminn sem blæðir úr. Á þessari
mynd er sýnt, hvemig bundið er um upphand-
legginn til þess að stöðva blæðingu frá úlnliðn-
um. Nánari skýringar í texta.
tekið er gætilega á sjúklingnum. Auk þess
er rökrétt að hugsa sem svo: Betra er að
beinbrotið versni, en að sjúklingurinn
kafni.
Þvínæst er losað um öll föt sem þrengja
að, í hálsinn, um mittið o. s. frv. og ef
Til þess að losna við að sitja og
lialda við keflið, má — eins og
sýnt er á myndinni — binda það
fast með öðncm klút. En umbúð-
irnar mega ekki liggja hreyfing-
arlausar lengur en í 15—20
minútur. Að þeim tíma liðn-
um verður að losa bindið í
eina minútu, ella getur
hlaupið drep i liminn.
sjúklingurinn hefur meðvitund, spyr mað-
ur um og skrifar hjá sér nafn hans, heim-
ilisfang og fæðingardag. Það sparar lög-
reglunni mikla fyrirhöfn við að finna ætt-