Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1960, Qupperneq 14
Lisa Köheritz ritstjóri:
Frá samvinnu hjúkrunarkv enna á Norður-
löndum til Tímarits H.F.Í.
M. J. þýddi
Um áramótin 1958—1959 urðu ritara-
skipti hjá Samvinnu hjúkrunarkvenna á
Norðurlöndum. Karin Elverson hætti rit-
arastörfum, en við tók Iva Bondeson.
Stjórnarfundi SSN, sem haldinn var í
Stokkhólmi rétt fyrir jólin 1958, lauk með
kveðjuhátíð til heiðurs Karin Elverson, er
verið hefur stjórnarmeðlimur og ritari til
margra ára. Margar ræðu voru haldnar
af þessu tilefni og færði varaformaður
SSN, Kyllikki Pohjala, Karin Elverson
þakkir stjórnarinnar. Gerða Höjer var
einnig boðin velkomin sem heiðursritari og
henni ráðlagt, að spyrja Karin ráða, ef
hún vildi verða enn fróðari en hún þegar
væri.
Sem þakklætisvott fyrir óeigingjarnt og
ólaunað starf hjá SSN var Karin Elver-
son afhent peningaupphæð, og henni ráð-
lagt að nota peningana til ferðalaga. Karin,
sem bæði var hrærð og þakklát, lét það í
ljósi í ræðu, og gerði jafnframt grein fyrir
hinu langvarandi starfi sínu hjá SSN.
Starfið hefði auðgað líf hennar í fyllsta
máta og átti að vera gjöf til norrænna
hj úkrunarkvenna.
Karin Elverson hefur starfað mikið fyr-
ir Samvinnuna. Ritari SSN var hún frá
1945—1948 og formaður frá 1948—1952.
Síðan varð hún ritari á ný og hafði þá
Ivu Bondeson sér til aðstoðar.
Það er Karin Elverson að þakka, að SSN
fékk eigið húsnæði og skrifstofur. 1 byrj-
un hafði SSN bækistöð sína á Nybrúgöt-
unni — þar sem Stokkhólmsdeild sænska
hjúkrunarfélagsins nú hefur húsnæði, en
þegar sænska hjúkrunarfélagið flutti á
Östermalmsgatan 19, árið 1957, fékk SSN
tvö herbergi til afnota þar. Innbúið er
að mestu nýtt, en sumt einnig gamalt. T. d.
er þar spegilgljáandi, gamaldags ofn, og
inni hjá Ivu Bondeson er skrifborð sem
Bertha Wellin, fyrsti formaður sænska
hjúkrunarfélagsins átti.
Frú Iva Bondeson hefur unnið hjá SSN
síðan á Gautaborgarkongressinum 1950.
Hún er fædd í Gautaborg, varð stúdent
1925 og Sophiasystir 1931. Fyrst starfaði
hún á Krónprinsessu Lovísu barnasjúkra-
húsi, en var síðan í 4 ár við sjúkraheimili
Stokkhólmsborgar. Þá vann hún í 6 mán-
uði við S:t Thomas Hospital í London,
en þegar Karolinska sjúkrahúsið í Stokk-
hólmi tók til starfa, varð hún ein af fyrstu
hjúkrunarkonunum þar. Eftir að hafa tek-
ið þátt í framhaldsnámskeiði SSF varð
hún kennari hjá S:t Eriks hjúkrunarskól-
anum í 21/2 ár, en gifti sig síðan. Ekki
fékk hún þó að vera lengi í friði á heim-
ili sínu, brátt tóku vinnutilboð að berast.
Sitt af hverju bauðst henni, t. d. það, að
sjá um námskeið fyrir gangastúlkur, að
vera staðgengill hjá barnaverndarnefnd o.
fl. o. fl. Iva Bondeson kaus að lokum fasta
vinnu hjá SSF og SSN, því að bæði félög-
in þurftu hennar með. Nú vinnur frú
Bondeson að mestu leyti hjá SSN, en fyrir
SSF hefur hún það þó á hendi að hjálpa