Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1963, Qupperneq 12

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1963, Qupperneq 12
10 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS Næsta dag er þoka, rigning, kuldi. Þá lesa gestirnir, skrifa eða spila borðtennis. En miðvikudaginn 1. ágúst er gott veð- ur á ný. — Frá hótelinu sést ævintýra- legur bær í nokkrum fjarska. Hann stend- ur einn sér í skógarrjóðri og ber hátt. Ómótstæðileg löngun til að kynnast þessu litla fjallabýli rekur mig af stað eftir morgunverð. Ég labba nærri beint af aug- um, spyr samt menn við byggingarvinnu hvernig hægast verði að komast þetta, en lítið vita þeir. Það er votlent og veglaust og girðing á veginum, en hana er auðvelt að klifra yfir, því það er ekki gaddavír. Verra er, að í gljúfri leynir sér býsna straumhörð á sem yfir þarf að fara. Að vísu er brú yfir ána, en hún er svo mjó og hallandi, að ég kýs heldur að leita eftir vaði; fer síðan úr sokkum og skóm og veð á skóhlífunum. — En þegar þessi þraut er unnin, sést bærinn ekki lengur. Ég klifra af hæð ofan í dal og úr dal upp á hæð, en trjágróðurinn er svo þéttur, að ekkert sést, og sumir eru orðnir áttavillt- ir. ,,Ef nú kæmi þoka“, hugsa ég með mér, „hvað þá?“ En eftir dálítið hugar- víl og langa leit, kemur flaggstöng í Ijós, og síðan dimmrauður bær með grasivöxnu þaki. Guði sé lof. Og húsfreyjan á bæn- um veitir upplýsingar: Þetta er bara gam- alt yfirgefið sel, sem fjölskylda frá Rjúk- an hefur fengið fyrir sumarbústað. Á leiðinni til baka veð ég alls ekki ána, heldur tek mér lurk í hönd og iabba yfir brúna. Stafurinn góði er svo stöðugur í ánni. Alltaf er maður eitthvað að læra, og nú síðast af húsfreyjunni í selinu. En dagurinn er ekki hálfnaður. Við matborðið ákveðum við kunningjakona mín að fara á sýningu sem haldin er langt inni í Þelamörk. Og um 3 leytið höldum við af stað. Leiðin liggur niður í móti og gatan er greið. Nokkrar beljur slást í för með okkur og við losnum lengi vel ekki Ragnar við lcofann sinn. úr þeirra félagsskap. Við hittum líka hann Ragnar, 8 ára gamlan, fyrir utan kofann sinn. Hann horfir á og spjallar við þessar förukonur eins og íslenzkur sveitadrengur, sem sjaldan á þess kost að sjá ókunnuga á ferð. Þegar ég fór til baka var hann á sama stað, jafn forvit- inn og skrafhreyfinn og áður. Loks komum við að samvinnuverzlun og er þá samferðakona mín svo þreytt og sárfætt orðin, að hún vill snúa við. Það er fjarri mér að gefast upp, en í Fjalla- stofu Raulandfylkis hvíli ég mig og ét epli. Þetta er vistlegt og vingjarnlegt gistihús og hér geta dvalið 30 gestir, en á Raulandhóteli er pláss fyrir 80. Á báð- um þessum stöðum ganga þjónustustúlkur um beina í grænum þjóðbúningum Þela- merkur. Enn eru eftir 3 km. Og þegar komið er loks á áfangastaðinn, sem er skóli á

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.