Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1963, Síða 13

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1963, Síða 13
TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS vetrum en sýningarstaður á sumrin, er margt að sjá m. a. höggmyndir, málverk og tréskurð eftir Svalastoga, en hans hefur áður verið getið. Eftir að hafa feng- ið þama nokkra andlega næringu, sný ég heim — 9 km. leið. Engan áætlunarbíl er hægt að fá á þessum tíma dags og þótt einkabílarnir þjóti framhjá hver af öðr- um, virða þeir ekki viðlits litla, lúna kellingu, jafnvel ekki þótt hún kreppi hnefana í bræði þegar einhverri frúnni verður iitið aftur. Loks, þegar líklega er eftir 1 km., fer áætlunarbíll framhjá og stanzar þegar ég veifa. Það er með herkju- brögðum að ég fæ eitthvað af kvöldmatn- um. — Á þessum degi hef ég gengið a. m. k. 20 km á norskri grund. Annan ágúst er sólskin og nógu heitt fyrir Islending, sem ekki er uppalinn við hitaveituvatn. En blöðin segja reyndar að þetta sé kaldasti júlí sem komið hafi í 30 ár. Ég byrja á að baða mig, þvæ nær- fötin mín eftir morgunverð, hengi þau út á snúru og sest á stein í túninu með bók í hendi. Kunningjakona mín fór í morgun og þakkaði þúsund sinnum og hjartanlega fyrir samveruna. Ann- an borðfélaga fékk ég um kvöldið, apótekara frá syðsta bæ í Noregi — og segir fátt af henni, nema hvað hún sendi mér óvænt jóla- kort í vetur. Þriðja ágúst er 15 stiga hiti og sólskin. Þennan dag skyldi nota til þess að heimsækja Rjúkan með áætlunar- bíl, en þangað er 8 km. leið.Við förum meðfram Mös, sem er eitt stærsta vatn í Evrópu (20 km.), 11 síðan ökum við m. a. Maristíg, en hann liggur meðfram hrikalegu gljúfri, svo hrikalegu, að mér dettur ósjálfrátt í hug staður sá er Norðmennirnir óku síð- asta spölinn með Þjóðverjana og sjálfa sig forðum. Rjúkan er u. þ. b. 6000 íbúa þorp á milli svo hárra fjalla, að sólin sést þar ekki hálft árið, eða frá því í september og þar til í marz. Þetta er myndarlegt og að mörgu leyti merkilegt þorp. Rjúkanfoss- inn frægi geysist nú í gegnum firnastór rör, er sjást hátt uppi í fjalli, og verk- smiðjur í Rjúkan eru meðal hinna stærstu í heimi. Þar er t. d. þungavatnsverksmiðj- an „Vemork“. Bíllinn stanzar 5 klst. í Rjúkan og nota ég nokkuð af þeim tíma til þess að fara með f jallalyftu upp í Gvepseborg; sá stað- ur er 900 metra yfir sjó og guð má vita hve marga metra yfir dalnum. Ekki vil ég ráðleggja þeim sem lofthræddir eru að fara svona ferð, þótt hún taki aðeins 5 mínútur aðra leið. A. m. k. leið ég vítis- kvalir. — En útsýnið uppi er stórkostlegt. Fjallalyftan i Rjúkan í gangi. Við sjáum Gaustatoppinn — 1.883 m. yfir sjávarmáli.

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.