Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1963, Blaðsíða 14

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1963, Blaðsíða 14
Hjúkrun og bróburleg umhyggja á tækniöld Eftir MARIT NYRUD skólastjóra VancUmiálið athugað. Að hve miklu leyti gegna hjúkrunar- skólar hlutverkum sínum, — að veita þeim nemum menntun, sem síðan sýna sjúkl- ingum bróðurlega umhyggju með fram- komu sinni og starfi? f erindi sínu leiðir dr. Fröshaug1) í ljós nokkur mikilvæg atriði, sem snerta þær alvarlegu aðstæður, sem við búum við. En við lifum á tíma geysilegrar framvindu tæknivísinda og einnig á þeim tíma, er samfélög okkar taka stórstígum breyt- ingum, sem gera auknar kröfur til aSlög- unarhæfni okkar. Náttúruvísindi og tækni veita nú stærri tækifæri, en nokkum gat grunað fyrir fáeinum árum. En við verð- um einnig að viðurkenna, að mikið ósam- ræmi er á milli sigra tækninnar og hæfi- leika mannanna að ráða viö þær breyt- ingar, er verSa. Slík þróun krefst þess, — að við köstum á glæ hefðbundnum venjum og skipulagi, sem fram að þessu hefur verið undirstaða okkar þægilega lífs, — að við leggjum meiri rækt við sjálfstæða hugsun, þroska og ábyrgðartilfinningu sérhvers einstald- ings. Hinum megin við dalinn gnæfir Gausta- toppurinn, 1885 meti’a yfir hafinu. Þeir sem þangað komast, geta að sögn séð yfir allan Suður-Noreg. Þegar ég nú í skammdeginu hugsa til þessara fáu, en viðburðaríku sumardaga, sé ég á ný víðáttuna og fjöllin fögru í hinu forna landi feðra vorra og gleðst yfir því, að bráðum skuli vora á ný. Góðar stundir! !) Grein eftir dr. Fröshaug birtist í 3. tbl. T. H. f. 1962. Á sviði uppeldismála, í blöðum og út- varpi og í öðrum málgögnum uppfræðsl- unnar, verðum við var við ákafa leit að grundvelli að nýju fræðslukerfi, undir- stöðu, sem getur aðstoðað við að uppræta það öryggisleysi og upplausn, sem ríkir. Sú staðreynd vinnur sér æ meira fylgi, — að í allri kennslu beri að leggja meiri áherzlu á aukna þekkingu og skilning, — að andlegum þroska beri að veita enn meiri athygli, — og að vöxt persónuleik- ans beri að styrkja. Við verðum að gefa upprennandi kynslóð einfalda og auðskilj- anlega lífsskoSun, sem skýrir ætlan og tilgang lífsins. Af sjónarhóli uppeldismála séð, á viðurkenning á manngildi og um- hyggja fyrir einstaklingnum að vera af kristilegum toga spunnin. Þróunin hefur haft það í för með sér, að aðalsjónarmið- ið, hin bróðurlega umhyggja, umhyggjan fyrir öllu varðandi einstaklinginn, lík- ama hans og andlegu lífi, hefur lent í skugganum af tæknilegri kunnáttu. Hin harða lífspeki efnishyggjunnar hefur sett sín spor á samfélagið og að nokkru leyti á hjúkrunarfólkið. Til þess að gera okk- ur grein fyrir aðstöðu okkar, verðum við að vita, hvar við stöndum og hvert við ætlum. Það er mikilvægt að stefna að vissu marki — og hafa ákveðið og vel afmark- að starfssvið. Til þess að vera fær um að veita mjög góða menntun — verðum við að skilgreina hjúkrunarstarfið nákvæmlega, hvað það er eða ætti að vera. Við verðum einnig að gefa hjúkrunarfólkinu skýr fyrirmæli um í hverju verkefni þeirra séu fólgin — og hvað ekki megi fela öðrum. Það er ekki

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.