Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1963, Síða 17

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1963, Síða 17
TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 15 Raddir líjúkrunamema ÍGuðrún Broddadóttir Ingfibjörg Holgadóttir Sigurveig Sigurðardóttir Jól í sjúkrahúsi Við finnum það oft, að trú gamals fólks og sjúklinga er sterkari og meiri en ungs og heil- brigðs fólks, hún er lík barnstrúnni. Það er eins og trúin verði að vera til, þar sem þrekið er lamað og mannlegur máttur orðinn lítill eða eng- inn í mótlæti lífsins. Við, sem heilbrigð erum og sjálfum okkur næg, gefum okkur ekki tíma til að hugsa nema um líðandi stund. Jafnvel hæð- umst að þeim orðum, sem lýsa vanmætti okkar. Við getum ekki glaðzt meira á einum degi en öðrum, því hver stund er gleðirík. En við, sem störfum við hjúkrun, getum ekki afneitað sælu trúarinnar. Til þess höfum við of mikla reynslu um kraft hennar og huggun, sem hún færir þeim sem hjálpar eru þurfi. Jólin eru hátíð trúar- innar og þar sem þau eru svo nýliðin, að andi þeirra sveimar enn í loftinu, væri gaman að lýsa jólum á sjúkrahúsi. Hjúkrunarneminn þekk- ir sig bezt á Landsspítalanum og því verður hann fyrir valinu. Gangar og stofur eru skreytt fallegum mynd- um, grænum greinum og bómullin, sem alltaf hefur orðið að lúta því, að verða að lítilfjörleg- um tampónum, er nú aðalefnið í jólaskrautinu. Orgeli er komið fyrir á stigapallinum milli handlæknis- og lyflæknisdeildar, því þar skal sungin messa í kvöld, klukkan hálf sex. Hjúkrunarnemarnir eiga að syngja jólasálm og það er ekki laust við að það sé hrollur í okkur. Það hefur lítt verið æft og hver verður að syngja með sínu nefi. Það er reyndar ekki ætlast til að þetta verði neinn listasöngur, en söngur verð- ur það að vera samt og það er meinið. Sjúkl- ingarnir hafa verið á léttu fæði um daginn, því klukkan fjögur er aðalmaturinn. Það er heldur enginn smáræðis matur, jólamaturinn. Svína- kjöt og allt mögulegt því til bragðbætis, því það þykir ómissandi nú til dags, þar á eftir er hnaus- þykkur rúsínugrautur, og svo auðvitað mandla í, og sá sem fær möndluna, er verðlaunaður. Grautarátið verður spennandi, aldrei þessu vant. Á eftir gi’autnum kemur ábætirinn, hvítur og freistandi. Það eru meiri ósköpin, sem ætlast er til, að fólk borði á jólunum. Þó eru nokkrir í þessu stóra húsi, sem enga lyst hafa á kræs- ingunum, þeir, sem ekki hafa haft matarlyst svo dögum skiptir. Það verður ekki allt gott, þótt það séu jól. Hjúkrunarnemarnir drífa matarílátin út af stofunum, því nú er timinn naumur til messu og eitthvað verða vesalings nemarnir að fá ann- að en reykinn af réttunum. Allt í einu eru gangarnir fullir af börnum og fullorðnu fólki og maður verður bara steinhissa þegar það rennur upp fyrir manni, að þetta eru læknarnir, sem við umgöngumst daglega. Þetta er þeirra annað líf, konur þeirra og börn. Það er gaman að sjá og finna að þeir eru samt sem áður ósköp venjulegt fólk. Nemarnir stilla sér upp við orgelið, ræskja sig og draga andann djúpt og rólega, slappa vel af fyrir komandi þrekraun. Prestur er séra Sig- urjón Árnason og segir, að nú skuli sunginn sálmurinn „Heims um ból“. Nemarnir syngja af öllum kröftum, ósamstillt og hnökrótt. En sálmurinn er öllum kunnur, og þá gerir þetta ekkert til. „Því yður er í dag frelsari fæddur". Hún er undarleg þessi saga. í dag verður hún ný á vör- um prestsins, þó kunna hana allir, gætu sagt hana hver öðrum án nokkurs undirbúnings og blaðalaust. „I Betlehem er barn oss fætt“, er sungið að síðustu. Gleðileg jól, ómar frá manni til manns; það eru allir glaðir, brosandi og lítillátir, því þetta kvöld eru öll vopn slíðruð. Skurðhnífurinn ligg- ur þreyttur og hreinn í sakleysi inni á lokaðri skurðstofunni og skurðlæknirinn er ósköp gæða- legur maður. Herská vopn tungunnar liggja í dvala og það er gaman að vera hjúkrunamemi í kvöld. En þótt gleði og friður virðist ríkja í þeirri stóru stofnun, Landsspítalanum, þetta kvöld, er ekki þar með sagt, að öllum þar líði vel. Margir þeirra eru samt nokkurn veginn hressir. Ef til vill með brotinn fót, sem hamlar heimferð þeirra, eða eitthvað enn smávægilegra. En það eru aðrir, sem eiga sorglegri jól. Ef til vill brosa varir þeirra við jólagleðinni, en aug- un glampa af sársauka og sýnast enn þjáning arfyllri í kvöld í allri ljósadýrðinni. Jólin eru gleðinnar hátíð, en þeir eru margir, sem er mein- að að njóta hennar og þó eru þetta e. t. v. hinztu jólin þeirra.

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.