Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1969, Qupperneq 13

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1969, Qupperneq 13
María Pétursdóttir, íslandi, I. Kamal, Pakistan og M. C. Bergquist, Svíþjóð. sjúkraliða (state enrolled nurse, practical nurse). Á hvaða grundvelli starfssvið þeirra er byggt? Eiga þær að gerast með- limir Alþjóðasambands hjúkr- unarkvenna? Um þessa tillögu urðu miklar umræður á þing- inu, en ákvörðun um hana var frestað til næsta þings. E. A. Girard minntist fögrum orð- um á Helenu Nussbaum, sem hefur hætt störfum sem fram- kvæmdastjóri vegna lélegrar heilsu. — Samþykkt var að mæla með inntöku 11 félaga í sam- bandið. — Rut Elster, 2. vara- formaður, flutti skýrslu. Sheila Quinn framkvæmdastjóri flutti skýrslu. — Hr. Roy Keely (Ex- cutive Vicepresident 3/M. Minnesota Mining and Manu- facturing Company), Minne- sota hélt stutt ávarp. Lauk hann ávarpi sínu með þeim orðum, að veigamesta fólkið á spítal- anum fyrir utan sjúklingana væru hjúkrunarkonurnar, sem vakti mikla ánægju meðal þing- heims. Vel var haldið áfram, en þrátt fyrir það var tíminn ekki nógur og því fundartími framlengdur til kl. 17.30. Hit- inn var mikill þennan dag. Varð okkur því heldur hverft við, er við gengum út úr fundarsal, þar sem loftræstingin var með af- burðum góð, út í hitann fyrir utan, sem var yfir 30 gráður á Celsíus. Þannig var hitinn út fundarvikuna. Veðurguðirnir gerðu því einnig sitt okkur í hag. Kl. 19.30—21.00 var móttaka hjá formanni og hjúkrunarkon- um enska hjúkrunarfélagsins, er fór fram á Queen Elizabeth Hoteli. Þriðjudagur 2U. júní. Þennan morgun blasti við okkur breyttur fundarsalur. Hafði verið komið upp tjöldum meðfram veggjum fundarsalar- ins, allan hringinn. 1 þessum tjöldum voru til sýnis alls kyns nýjungar hvað viðkemur spít- alamálum. Þarna var hægt að fá upplýsingar og sýnishorn eftir vild. Gáfust þarna góð tækifæri til fróðleiks, sem fund- argestir notfærðu sér óspart. Margrethe Kruse, formaður (Professional service commit- tee) flutti skýrslu. Las hún upp eftirfarandi tillögu um starfs- skipti milli landa, sem síðar var samþykkt: 1. Að í staðinn fyrir starfsskipti á hjúkrunarkonum milli landa (Exchange privileges program), komi hjúkrun er- lendis á vegum sambandsfé- laga (Nursing abroad throug I.C.N. number asso- ciation). 2. Að samningar verði gerðir með gagnkvæmu samkomu- lagi milli viðkomandi aðild- arfélaga. 3. Að hjúkrun erlendis verði skilgreind þannig: „Að það verði h j úkrunarkonur, sem bjóðast til hjúkrunar sam- kvæmt samkomulagi milli sambandsfélaga um launuð störf og/eða nám erlendis“. 4. Að tilgangurinn með hjúkr- un erlendis sé „að skapa möguleika til aukins alþjóða- skilnings hjá hjúkrunarkon- um með því að veita tækifæri til starfsreynslu og náms er- lendis. 5. Að I.C.N. láti gera bækling með almennum upplýsingum og fræðslu. Sheila Quinn flutti skýrslu um International Nursing Re- view, I.C.N. Calling og hjúkr- unarlöggjöf. Helen Mussallem, framkvæmdastjóri C. N. A. (Canadian nurses association), flutti stutt ávarp. Ákveðið var að halda næsta formannafund í Dublin í írlandi 1971. Formað- ur hjúkrunarfélagsins í Mexico talaði um komandi mót í Mexi- co 1973. Frú Guðrún Marteinsson kom þennan dag frá íslandi. Við Is- lendingarnir settumst að góðu matborði að loknum fundi og var spjallað langt fram eftir kveldi. TÍMAHIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 77

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.