Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1969, Blaðsíða 20

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1969, Blaðsíða 20
Páll Sigurðsson, tryggingayfirlæknir: Fjármögnun heilbrigðismála Grein þessi birtist í tímariti Sambands íslenzkra sveitafélaga SVEITASTJÓRNARMÁL. T. H. í. hefur fengið leyfi höfundar til að birta greinina, en við teljum liana eiga erindi til lijúkrunarkvenna. I eftirfarandi yfirliti um fjármögnun heilbrigð- ismála mun ég leitast við að gera grein fyrir því, hve mikið fé rennur til heilbrigðismála nú og hver þróun þeirra mála hefur verið undan- farin ár, reyna að upplýsa til hvaða þátta innan heilbrigðismálefna féð fer og frá hvaða aðilum það kemur. Einnig mun ég gera samanburð á fjármuna- myndun á sviði heilbrigðismála og annarra mála- flokka, bæði innan opinberra framkvæmda og annarra aðila. Eg mun bera saman fjármögnun til félags- og heilbrigðismála innan Norðurlanda og sýna eftir hvaða leiðum grannþjóðirnar afla fjár til þess- ara mála. Að lokum mun ég svo sýna á teikningu, hvern- ig sjálft kerfið kemur mér fyrir sjónir í heild. Ég mun ekki koma fram með tillögur að neinu marki, aðeins benda á þær leiðir, sem ég tel, að um sé að ræða til einföldunar á því fjárrennsli milli opinberra stofnana, sem nú á sér stað. Á það er rétt að minna í upphafi, að heilbrigð- ismál verða varla talin lengur sjálfstæður og ein- angraður málaflokkur við hlið félagsmála, svo mjög eru þessir málaflokkar samtengdir, og raun- ar tel ég heilbrigðismál eðli sínu samkvæmt fé- lagsmál. Þetta kemur skýrt fram í skipulagsstarfi þeirra þjóða, sem lengra eru komnar en við á braut félagslegra umbóta. Þetta er nauðsynlegt að hafa í huga, því að í sumum þeim töflum, er greininni fylgja, eru þessi mál sett í flokk sam- an, en annars fylgi ég að sjálfsögðu þeim megin- skilum milli þessara málaflokka, sem venja er. Fjúrnnifin iil hvilbvigúisináln. Lítum þá fyrst á það, hve mikið fé fer til heil- brigðismála og frá hvaða aðilum það kemur. Tafla 1 sýnir 5 ára bilin frá 1950—1965 og árið 1967. Aðilarnir, sem greiða, eru ríkissjóður, sjúkra- samlög, sveitarfélög, einstaklingar og svo ýms- ir aðilar, og loks eru sjúkrahúsabyggingar tekn- ar í lið sér. Þess ber að geta, að útgjöld sjúkrasamlaga eru að frádregnu ríkisframlagi, útgjöld sveitarfélaga að frádregnu framlagi til sjúkrasamlaga og sjúkrahúsabygginga, sjúkrahúsabyggingar að frádregnum beinum framlögum ríkis og útgjöld einstaklinga að frádregnum sjúkrasamlagsið- gjöldum. Sé litið á tímabilið í heild, sézt, að hlutfalls- breyting verður veruleg á tímabilinu 1960—1965. Sýnd er hlutfallstala heildarútgjalda til heilbrigð- ismála af þjóðarframleiðslu, sem einkum fer vax- andi eftir 1963. Fruinlafi ríkisins. Hæsta talan á töflu I er framlag ríkisins til heilbrigðismála árið 1967. Fi’óðlegt er að kanna nánar, hvað þessi tala táknar og í töflu II er sýnt, hvernig framlög greinast til einstakra þátta. Heildarskipting er í rekstursliði og fjárfestingar- liði og er rekstursþátturinn eins og vænta mátti stórum meiri. Aðalútgjaldaliðirnir eru greiðslur til ríkis- spítala, sjúkratrygginga og ríkisframfærslu eða 478,5 af 556,9, en af fjárfestingarlið er framlag til byggingar ríkisspítala mest eða 40,7 milljónir. TAFLA I. — ÚTGJÖLD TIL HEILBRIGÐISMÁLA 1950 1955 1960 1965 1967 1. Ríkissjóður 24.1 53.4 131.8 398.1 626.9 2. Siúkrasamlög 19.5 41.3 57.9 148.9 204.5 3. Sveitarsjóðir 6.8 15.3 29.2 71.6 111.6 4. Einstaklingar 11.0 24.3 47.0 171.0 205.0 5. Sjúkrahúsbyggingar 1.0 12.1 15.6 59.7 80.4 6. Aðrir 3.8 7.3 15.8 44.8 64.5 Samtals 66.2 153.7 297.3 894.1 1292.9 Heildarútgjöld til heilbrigðismála sem hlutfall þjóðarframl. 3.29'c 3.5% 3.7% 4.4% 5.4% 84 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.