Kvennalistinn á Vesturlandi - 01.05.1986, Side 7
Ályktanir landsfundar
Landsfundur Kvennalistans
haldinn 8.-9. nóvember 1986 aö
Geröubergi, Reykjavík ályktar:
Kjör og laun kvenna í landinu
eru þjóöarskömm, sem verður að
ráöa bót á meö sameiginlegu
átaki allra landsmanna.
Vandi fjölmargra fjölskyldna í
landinu vex í réttu hlutfalli viö að-
gerðir stjórnvalda og annarra
ráöamanna til aö koma fjármálum
þjóöarinnar á „heilbrigöan
grundvöll" eins og þeir nefna þaö.
Æskufólk, sem setja vill saman
bú og eignast eigiö húsnæöi, á
viö svo mikla öröugleika aö etja
aö margir grípa til þess örþrifa-
ráös aö flýja land.
Slíkt er ósamræmiö milli launa
og framfærslukostnaöar aö um
fjórða hver fjölskylda í landinu býr
viö kjör sem eru viö fátæktar-
mörk, enda hefur vinnutími lengst
svo á undanförnum misserum hjá
þorra launafólks aö um hreina
vinnuþrælkun er að ræöa.
Viö vörum alvarlega viö þeim
afleiöingum sem þessi vinnu-
þrælkun hefur á hag fólks, eink-
um barna í landinu.
Eitt af því sem lesa má úr síö-
ustu launakönnunum Kjararann-
sóknarnefndar er staöfesting á
auknum yfirborgunum og vaxandi
launamisrétti.
Stjórnvöld og aðrir ráöamenn í
launamálum virðast hafa tekiö
höndum saman um aö festa þetta
misrétti í sessi.
Málamyndaleiöréttingar í kjara-
samningum á þessu ári hafa litlu
sem engu skilað launafólki —
allra síst konum.
Allt er þetta í hrópandi ósam-
ræmi viö þá stööu þjóðarbúsins
sem nýjustu hagtölur sína.
Konur sætta sig ekki viö þetta
ófremdarástand og ítreka kröfur
um:
a) aö kjör og aðbúnaður aldraðra
og öryrkja veröi bættur. Aö tryggt
veröi aö aldraðir njóti ætíð a.m.k.
lágmarks framfærslueyris.
b) aö stórátak veröi gert í launa-
og kjaramálum þannig aö lág-
marks dagvinnulaun nægi ætíö til
framfærslu og aö bónus og önnur
afkastahvetjandi launakerfi verið
afnumin og óþörf.
c) aö lífeyrisréttindi veröi sam-
ræmd þannig aö allir landsmenn
eigi jafnan lífeyrisrétt, og gerö
verði áætlun um sameiginlegan
lífeyrissjóö fyrir alla.
e) að komiö veröi á staðgreiðslu-
kerfi skatta hiö fyrsta.
f) aö húsnæöis- og lánamál veröi
meö þeim hætti aö almenningur
geti valiö um leigu- eöa eignar-
húsnæði og öryggi fólks í hús-
næðismálum verði tryggt hvorn
kostinn sem þaö velur.
g) aö láglaunastörf veröi endur-
metin í samræmi viö þaö gildi
sem þau hafa fyrir líf fólks í land-
inu.
h) aö samþykktar veröi þær tillög-
ur sem fyrir Alþingi liggja um lág-
markslaun og endurmat á störf-
um kvenna.
Konur, berum fram til sigurs
kröfuna um sæmandi dagvinnu-
laun og jöfnuö milli kynja. Sláum
samningum ekki á frest. Krefj-
umst lífvænlegra lágmarkslauna.
Landsfundur Kvennalistans
ályktar einnig:
Kvennalistinn lýsir þungum
áhyggjum yfir því hvernig búið er
aö börnum á íslandi.
Mikið vinnuálag foreldra, ónóg
dagvistarrými, skortur á samfelld-
um skóladegi og skólamáltíðum
og sinnuleysi í umferöarmálum
eru dæmi um hirðuleysi stjórn-
valda gagnvart börnum. Slíkt get-
ur ekki viðgengist lengur og krefst
Kvennalistinn þess aö réttindi
barna séu virt og velferð þeira
sett í öndvegi.
Margt bendir til þess að ofbeldi
sé meira gagnvart börnum hér-
lendis en áöur var haldið.
Kvennalistinn telur brýnt aö
viðurkenna þann vanda, kanna
hve víðtækur hann er og beita
þegar í staö aðgeröum til úrbóta.
I MATVÖRUDEILD MATVÖRUDEILD
Kaupfélag Hvammsfjarðar STÓRVEISLA!
Búðardal HÁDEGISMATUR EÐA KVÖLDKAFFI
sendir öllum viðskiptavinum sínum bestu kveðjur ÞAÐ ER SAMA HVAÐ ÞIG VANTAR ÞÚ VERÐUR í ENGUM VANDRÆÐUM MEÐ MAT I
Sími4180 MATVÖRUDEILD VÖRUHÚSS VESTURLANDS
| VÖRUHÚS VESTURLANDS SÍMI 7200
7