Fréttablaðið - 13.04.2017, Page 2
Komu færandi hendi
Meðlimir Brunavarðafélagsins, starfsmannafélags Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, mættu færandi hendi á Barnaspítala Hringsins í gær og færðu
börnum páskaegg. Félagið hafði verið með páskabingó og átt afgangspáskaegg. „Okkur fannst tilvalið að fara á barnaspítalann og gefa krökkunum
sem eru inniliggjandi páskaegg sem við gerðum svo og vakti mikla lukku,“ segir Ari Jóhannes Hauksson slökkviliðsmaður. Fréttablaðið/Vilhelm
Veður
Útlit fyrir norðaustlæga átt 8 til 15
metra á sekúndu með snjókomu
austan til og éljum nyrst um kvöldið,
en þurrt veður og bjart með köflum
annars staðar. sjá síðu 22
PÁSKATILBOÐ
Vegna hagstæðs gengis og
tollalækkana þá lækkum við
verðin á grillum
Við lækkum verðin!
Smiðjuvegi 2, Kópavogi - www.grillbudin.is - Sími 554 0400
69.900
Grillbúðin
• 3 brennarar úr ryðfríu stáli
• Postulínsemalerað eldhólf
• Grillgrindur úr pottjárni
• PTS hitajöfnunarkerfi
• Kveiking í öllum tökkum
• Niðurfellanleg hliðarborð
• Tvöfalt einangrað lok
• Postulínsemaleruð efri grind
• Hitamælir
• Auðveld þrif - Bakki fyrir fitu
undir öllu grillinu
• Vönduð yfirbreiðsla fylgir
Niðurfellanleg
hliðarborð
• Afl 10,5 KW
Skírdag 12-16
Laugardag 11-16
Nr. 12934
Opið
LögregLumáL Yfirmaður kyn-
ferðisbrotadeildar segir að ástæða
þess að ráðist sé í umfangsmiklar
lögregluaðgerðir sem beinast að
þolanda í kynferðisbrotamáli, sé sú
trú lögreglu að um alvarlegt brot sé
að ræða sem beri að upplýsa. Frétta-
blaðið greindi frá því í gær að þol-
andi í nauðgunarmáli upplifði sig
sem glæpamann eftir samskipti við
lögreglu en lögregla heldur áfram
að rannsaka ætlaða nauðgun gegn
vilja konunnar. Konan var hleruð á
meðan á rannsókn stóð og þá lagði
lögregla hald á tölvu í eigu sonar
hennar og síma á heimilinu.
Konan leitaði á Neyðarmóttöku
fyrir þolendur nauðgana eftir kynni
sín af manni þann 10. desember síð-
astliðinn. Þá voru myndaðir miklir
áverkar á konunni og tekin af henni
skýrsla. Nokkrum dögum síðar dró
konan framburð sinn til baka og bar
við að menn vopnaðir skotvopnum
hefðu mætt heim til hennar vegna
málsins. Maðurinn sem grunaður er
um að nauðga konunni hefur áður
hlotið dóm fyrir nauðgun og var
gert að sitja eftirstöðvar dóms síns,
samtals 630 daga, en maðurinn var
á reynslulausn þegar atvikið átti sér
stað.
„Það er alltaf hægt að teygja það
í allar áttir hvort [aðgerðirnar] eru
miklar eða ekki. Við erum að rann-
saka mjög alvarlegt brot sem við
lítum alvarlegum augum og notum
þau úrræði sem við þurfum til þess
að upplýsa þannig mál,“ segir Árni
Þór Sigmundsson, yfirmaður kyn-
ferðisbrotadeildar lögreglunnar.
„Allt það sem við gerum í þágu
rannsóknar eru úrræði sem eru
studd dómsákvörðun,“ tekur Árni
fram varðandi þá fordæmalausu
ákvörðun að hlera þolandann í mál-
inu. Konunni var greint frá hlerun-
inni á þriðjudag en hún stóð yfir í
um það bil einn mánuð, frá miðjum
desember og fram í miðjan janúar.
Konan var eitt nokkurra vitna sem
leidd voru til yfirheyrslu samtímis
á þriðjudag, aðgerð sem var ráðist í
svo vitnin gætu ekki samræmt fram-
burð sinn í málinu. Konan hefur
neitað að tjá sig frekar við lögreglu
um málið. Fréttablaðið hefur heim-
ildir fyrir því að í yfirheyrslum hafi
hún sagt atvikið hafa átt sér stað
með hennar vilja.
„Við rannsökum málin í sam-
ræmi við þau gögn sem liggja fyrir
hverju sinni. Ef við höfum gögn til
að styðjast við þá förum við eins
langt og við getum í öllum málum.
Rannsókn í þessu máli miðar vel.
Við erum að rannsaka mjög alvar-
legt brot og gerum það sem við
getum til að upplýsa hvað átti sér
þarna stað í samræmi við þau gögn
sem við höfum,“ segir Árni.
snaeros@frettabladid.is
Ganga langt vegna
alvarleika brotsins
Yfirmaður kynferðisbrotadeildar segir lögreglu hafa fulla ástæðu til að fara fram
á hlerun brotaþola í nauðgunarmáli. Grunur leikur á að brotið sé alvarlegt og
lögreglan muni því beita öllum tiltækum meðulum til að upplýsa um brotið.
Nokkur vitni voru samtímis leidd til yfirheyrslu á þriðjudag svo þau hefðu
ekki tækifæri til að samræma framburð sinn. Fréttablaðið/GVa
Við erum að rann-
saka mjög alvarlegt
brot sem við lítum alvar-
legum augum.
Árni Þór
Sigmundsson,
yfirmaður kyn-
ferðisbrotadeildar
ferðaþjónusta Umhverfisstofnun
hefur sett upp teljara í Dimmuborg-
um í Mývatnssveit. Hann mun telja
alla sem ganga inn um aðalhliðið
niður í borgirnar. Fyrir var teljari
sem telur bíla sem koma í Dimmu-
borgir.
Davíð Örvar Hansson, sér-
fræðingur Umhverfisstofnunar
í Mývatnssveit, segir í frétt á vef
Umhverfisstofnunar að samkvæmt
fyrstu tölum hafi um 100 ferðamenn
notið náttúrufegurðar Dimmuborga
á mánudagskvöld eftir að mælirinn
var settur upp.
Mælirinn er færanlegur og er
ætlað að gefa upplýsingar um fjölda
fólks á friðlýstum svæðum á vegum
Umhverfisstofnunar. Byrjað er í
Dimmuborgum en svo fer mælirinn
á flakk, eins og segir í fréttinni.
„Upplýsingarnar nýtast til að sjá
hvenær fólk er flest í Dimmuborg-
um. Við getum nýtt þær upplýsingar
til að ákvarða hvenær við viljum
hafa landvörð á svæðinu, hvenær
við viljum bjóða upp á fræðslu-
göngur til að ná til sem flestra og
ekki síst mun koma í ljós hvenær
mannfjöldaálag fer að valda nei-
kvæðum áhrifum á náttúrufar, t.d.
ef gróðurþekja við stígana fer að
rofna,“ segir Davíð Örvar.
Samkvæmt mælingum lögðu yfir
350.000 manns leið sína í Dimmu-
borgir á síðasta ári. – shá
Setja upp
mæla
og telja
ferðamenn
talningar eru hluti af rannsóknum
á komum ferðamanna.
myNd/UmhVerFisstoFUN
þýskaLand Saksóknarar í Þýskalandi
telja að sprengjuárásin á rútu knatt-
spyrnuliðsins Borussia Dortmund
hafi verið hryðjuverk. Þá greindi
lögregla frá því að hún hefði hand-
tekið mann með tengsl við herskáa
íslamista í tengslum við árásina.
Þrjár sprengjur sprungu nærri
rútunni á þriðjudagskvöld. Hafði
litlum málmstykkjum verið komið
fyrir í þeim til að valda sem mestum
skaða. Enginn særðist alvarlega í
árásinni en fresta þurfti leik liðsins
við AS Monaco í Meistaradeildinni.
Talsmaður ríkissaksóknara Þýska-
lands sagði í gær að tveir menn væru
grunaðir um að standa að árásinni.
25 ára Íraki og 28 ára Þjóðverji.
Þrjú eintök af sama bréfi fundust
á vettvangi sem bentu til tengsla
árásarmanna við ISIS. Í þeim var
meðal annars farið fram á brott-
hvarf þýskra orrustuflugvéla frá
Sýrlandi. – þea
Telja árásina
hryðjuverk
1 3 . a p r í L 2 0 1 7 f I m m t u d a g u r2 f r é t t I r ∙ f r é t t a B L a ð I ð
1
3
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:3
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
A
9
-2
2
7
8
1
C
A
9
-2
1
3
C
1
C
A
9
-2
0
0
0
1
C
A
9
-1
E
C
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
1
2
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K