Fréttablaðið


Fréttablaðið - 13.04.2017, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 13.04.2017, Qupperneq 4
Eigum Jeep® Grand Cherokee Limited og Overland dísel og bensín til afgreiðslu strax. Verðlaunaðasti og einn öflugasti jeppi sem framleiddur hefur verið. Áttu eldri Jeep® Grand Cherokee upp í? Spjallaðu þá við okkur, því við vitum hvað Jeep® Grand Cherokee er góður í endursölu. Tökum upp í allar gerðir bíla. Umboðsaðili Alfa Romeo, Chrysler, Dodge, Fiat, Fiat Professional, Jeep og Ram Trucks á Íslandi - Þverholti 6 270 Mosfellsbær - s. 534 4433 - www.isband.is - isband@isband.is - Opið virka daga 10-18 - Laugardaga 12-16 *B íll á m yn d m eð 3 2” br ey tin gu 1 3 . a p r í l 2 0 1 7 F I M M T U D a G U r4 F r é T T I r ∙ F r é T T a B l a ð I ð saMFélaG Samfélagsverðlaunin eru veitt í fimm flokkum og þetta var í tólfta skipti sem þeim var úthlutað. Lesendur blaðsins sendu inn hátt í hundrað tilnefningar, dómnefnd valdi fyrst þrjár í hverjum flokki og síðan eina af þeim þremur. Í dóm- nefnd að þessu sinni sátu Þórey Vil- hjálmsdóttir, ráðgjafi hjá Capacent, Davíð Þór Jónsson sóknarprestur og Kristín Þorsteinsdóttir, ritstjóri Fréttablaðsins. Lótushús er hugleiðslu- og fræðslumiðstöð þar sem boðið er upp á fjölda námskeiða og fyrir- lestra árið um kring og þúsundir hafa nýtt sér. Starfið hefur að mark- miði að hjálpa einstaklingum að tileinka sér jákvætt lífsviðhorf og byggja upp innri frið til að takast á við áskoranir daglegs lífs. Ekkert gjald er tekið fyrir námskeiðin en kostnaði mætt með frjálsum fram- lögum. Í einni tilnefningunni segir: Lótushús er griðastaður þar sem fallegar, kærleiksríkar og umhyggju- samar sálir starfa. Hjálpar mörgum „Lótushús á marga vini og starfsem- in er alltaf að aukast. Við byrjuðum tvö fyrir tæpum tuttugu árum en nú eru um tíu kennarar þar. Já, það eru samfelld námskeið í gangi, jákvæð hugsun og hug- leiðsla. Hugleiðslan er svo gagnleg í dag, þar sem fólk er í tilvistarkreppu og mörgum líður illa yfir ástandi heimsins. Lótushús hefur hjálpað mörgum,“ sagði Sigrún Olsen hjá Lótushúsi sem mætti til að taka á móti verðlaununum ásamt Þóri Barðdal. Aðrir sem tilnefndir voru til Sam- félagsverðlaunanna voru Vakandi, samtök sem vinna að því að sporna gegn matarsóun, og Kaffistofa Sam- hjálpar sem býður upp á mat og kaffi fyrir utangarðsfólk og aðstöðu- lausa. Ljónshjarta hlaut verðlaunin í flokknum Frá kynslóð til kynslóðar. Þar er um samtök að ræða fyrir fólk á öllum aldri sem misst hefur maka sína og börn þess. Samtökin hafa starfað í rúm þrjú ár og aðallega í sjálfboðavinnu og hyggjast efla starfsemina í framtíðinni. Magnús Þorkelsson, skólastjóri Flensborgarskóla, og Þórhalla Guð- bjartsdóttir, skólastjóri Blönduskóla á Blönduósi, voru einnig tilnefnd í þessum flokki. Komust ekki vegna anna Sigrún Steinarsdóttir og Sunna Ósk Jakobsdóttir hlutu verðlaunin í flokknum Hvunndagshetjan. Fyrir þremur árum stofnuðu þær Face- book- hóp sem nefnist „Matargjafir Akureyri og nágrenni“. Í hópnum getur fólk sem vill gleðja aðra aug- lýst ef það á eitthvað aflögu og fólk sem þarfnast hjálpar getur sömu- leiðis skráð sig. Þær Sigrún og Sunna Ósk sjá svo um að deila gjöfunum til fjölskyldna sem hafa lítið milli handanna. Í dag eru 1.500 manns skráðir á síðuna, sem er uppfærð reglulega. „Við erum þakklátar fyrir viðurkenninguna. Það er mikið að gera núna og þetta er hvatning. Það er mikið leitað til okkar þessa dagana, núna eru að koma páskar. Það er oft álag á fjölskyldum fyrir hátíðir,“ segir Sigrún í símaviðtali við blaðamann en þær Sunna Ósk máttu ekki vera að því að koma suður vegna anna við úthlutanir. Það var því móðir Sigrúnar, Guðný Jóhanna Jónsdóttir, sem veitti verð- laununum viðtöku og vissi af ferð norður með þau strax í gærkvöldi. Þau Ástrós Rut Sigurðardóttir, varaformaður Krafts, og þeir Dagur Egonsson og Pétur Helgason sem hafa staðið fyrir Powerade-hlaup- um árum saman voru líka tilnefnd í þessum flokki. Dregur fram styrkleikana Verðlaunin í flokknum Til atlögu gegn fordómum runnu til Foreldra- félags Breiðholtsskóla. Það hefur staðið fyrir fjölmenningarhátíðum fyrir nærsamfélagið þar sem öllum íbúum hverfisins er boðið í skól- ann. Tilgangurinn er að tengjast betur foreldrum og börnunum sem þar búa, kynnast ólíkum uppruna þeirra, tungumáli og ekki síst að fagna fjölbreytileikanum. „Þetta er viðurkenning á mikilli vinnu og hvatning til fólks sem hefur staðið vaktina,“ segir Sara Björg Sigurðar- dóttir. „Ég vil draga fram styrkleika samfélagsins í Breiðholti,“ segir hún og segir umfjöllunina um hverfið of oft á neikvæðum nótum. Flóttamenn fengu viðurkenningu Í flokknum voru einnig tilnefndir sýrlensku flóttamennirnir Kinan Kadoni og Jamil Kouwatli sem báðir hafa lagt fram krafta sína í eldamennsku í þágu góðra mál- efna og Morteza Songolzadeh sem hefur boðið fram ómetanlega túlka- þjónustu. Heiðursverðlaunin gengu að þessu sinni til Guðmundar Haraldssonar sem hefur helgað sig brunaöryggis- málum í marga áratugi, fyrst sem slökkviliðsmaður, síðar eftirlitsmað- ur brunavarna og loks sem skóla- stjóri Brunamálaskólans. Hann hefur þjálfað nokkrar kynslóðir slökkvi- liðsmanna. „Það er vel að þessum verðlaunum staðið og gaman að sjá að það er verið að veita þau hinum og þessum hópum sem eru að gera góða hluti. Það er alltaf gaman þegar fólk passar upp á hlutina og hefur þá í lagi, sama á hvaða sviði það er. Ég þakka bara innilega fyrir mig,“ sagði Guðmundur. – gun, kbg Fjölbreyttur hópur verðlaunaður Lótushús hlaut aðalverðlaun Samfélagsverðlauna Fréttablaðsins við hátíðlega athöfn á Hótel Reykjavík Natura í gær. Guðni Th. Jóhannesson forseti afhenti verðlaunin, 1,2 milljónir króna. Fjölbreyttur hópur fólks hlaut einnig viðurkenningar fyrir störf sín. Afar stór og fjölbreyttur hópur fólks fékk viðurkenningar og verðlaun fyrir störf sín í þágu samfélagsins. FréttAblAðið/Eyþór Hélt að verðlaunin væru gabb Heiðursverðlaunahafinn í ár, Guðmundur Haraldsson, hélt að það væri verið að gabba hann þegar haft var samband við hann vegna verðlaunaafhend- ingarinnar. „Ég hélt fyrst að þetta væri gabb, þegar haft var samband við mig. Því bað ég mágkonu mína að hringja og athuga hvort ég þyrfti að mæta hér en eftir að ég var búinn að fá staðfestingu lét ég náttúrlega sjá mig og þakka innilega fyrir heiðurinn. Það er gaman að fá viðurkenningu fyrir sín störf,“ sagði Guðmundur. Gáfu forsetanum heimagerða orðabók Tveir synir Jamils Kouwatli, sem hlaut viðurkenningu fyrir baráttu sína gegn fordómum, stigu óvænt fram á verðlaunaafhendingunni og vildu gefa forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessyni, gjöf. Gjöfin var orðabók sem þeir hafa unnið ötullega að og á að aðstoða innflytjendur og Íslendinga við að skilja hverjir aðra. Í bókinni er að finna orð, hugtök og ýmis- legt fleira er tengist daglegu lífi á nokkrum tungumálum, svo nefnd séu nokkur: arabísku, pólsku, íslensku og dönsku. Þeir bræður hafa fengið stuðning frá mennta- málaráðuneytinu til að gefa orðabókina út. Forsetinn gladdist yfir gjöfinni og ræddi lengi við þá bræður um dugnað þeirra. 1 3 -0 4 -2 0 1 7 0 4 :3 5 F B 0 4 8 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C A 9 -3 6 3 8 1 C A 9 -3 4 F C 1 C A 9 -3 3 C 0 1 C A 9 -3 2 8 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 8 s _ 1 2 _ 4 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.