Fréttablaðið - 13.04.2017, Síða 4
Eigum Jeep® Grand Cherokee
Limited og Overland dísel og
bensín til afgreiðslu strax.
Verðlaunaðasti og einn öflugasti
jeppi sem framleiddur hefur verið.
Áttu eldri Jeep® Grand Cherokee upp í?
Spjallaðu þá við okkur, því við vitum hvað
Jeep® Grand Cherokee er góður í endursölu.
Tökum upp í allar gerðir bíla.
Umboðsaðili Alfa Romeo, Chrysler, Dodge, Fiat, Fiat Professional, Jeep og Ram Trucks á Íslandi - Þverholti 6
270 Mosfellsbær - s. 534 4433 - www.isband.is - isband@isband.is - Opið virka daga 10-18 - Laugardaga 12-16
*B
íll
á
m
yn
d
m
eð
3
2”
br
ey
tin
gu
1 3 . a p r í l 2 0 1 7 F I M M T U D a G U r4 F r é T T I r ∙ F r é T T a B l a ð I ð
saMFélaG Samfélagsverðlaunin eru
veitt í fimm flokkum og þetta var í
tólfta skipti sem þeim var úthlutað.
Lesendur blaðsins sendu inn hátt
í hundrað tilnefningar, dómnefnd
valdi fyrst þrjár í hverjum flokki og
síðan eina af þeim þremur. Í dóm-
nefnd að þessu sinni sátu Þórey Vil-
hjálmsdóttir, ráðgjafi hjá Capacent,
Davíð Þór Jónsson sóknarprestur
og Kristín Þorsteinsdóttir, ritstjóri
Fréttablaðsins.
Lótushús er hugleiðslu- og
fræðslumiðstöð þar sem boðið er
upp á fjölda námskeiða og fyrir-
lestra árið um kring og þúsundir
hafa nýtt sér. Starfið hefur að mark-
miði að hjálpa einstaklingum að
tileinka sér jákvætt lífsviðhorf og
byggja upp innri frið til að takast
á við áskoranir daglegs lífs. Ekkert
gjald er tekið fyrir námskeiðin en
kostnaði mætt með frjálsum fram-
lögum. Í einni tilnefningunni segir:
Lótushús er griðastaður þar sem
fallegar, kærleiksríkar og umhyggju-
samar sálir starfa.
Hjálpar mörgum
„Lótushús á marga vini og starfsem-
in er alltaf að aukast. Við byrjuðum
tvö fyrir tæpum tuttugu árum en nú
eru um tíu kennarar þar.
Já, það eru samfelld námskeið
í gangi, jákvæð hugsun og hug-
leiðsla. Hugleiðslan er svo gagnleg í
dag, þar sem fólk er í tilvistarkreppu
og mörgum líður illa yfir ástandi
heimsins. Lótushús hefur hjálpað
mörgum,“ sagði Sigrún Olsen hjá
Lótushúsi sem mætti til að taka á
móti verðlaununum ásamt Þóri
Barðdal.
Aðrir sem tilnefndir voru til Sam-
félagsverðlaunanna voru Vakandi,
samtök sem vinna að því að sporna
gegn matarsóun, og Kaffistofa Sam-
hjálpar sem býður upp á mat og
kaffi fyrir utangarðsfólk og aðstöðu-
lausa.
Ljónshjarta hlaut verðlaunin í
flokknum Frá kynslóð til kynslóðar.
Þar er um samtök að ræða fyrir fólk
á öllum aldri sem misst hefur maka
sína og börn þess. Samtökin hafa
starfað í rúm þrjú ár og aðallega
í sjálfboðavinnu og hyggjast efla
starfsemina í framtíðinni.
Magnús Þorkelsson, skólastjóri
Flensborgarskóla, og Þórhalla Guð-
bjartsdóttir, skólastjóri Blönduskóla
á Blönduósi, voru einnig tilnefnd í
þessum flokki.
Komust ekki vegna anna
Sigrún Steinarsdóttir og Sunna Ósk
Jakobsdóttir hlutu verðlaunin í
flokknum Hvunndagshetjan. Fyrir
þremur árum stofnuðu þær Face-
book- hóp sem nefnist „Matargjafir
Akureyri og nágrenni“. Í hópnum
getur fólk sem vill gleðja aðra aug-
lýst ef það á eitthvað aflögu og fólk
sem þarfnast hjálpar getur sömu-
leiðis skráð sig. Þær Sigrún og Sunna
Ósk sjá svo um að deila gjöfunum
til fjölskyldna sem hafa lítið milli
handanna. Í dag eru 1.500 manns
skráðir á síðuna, sem er uppfærð
reglulega. „Við erum þakklátar fyrir
viðurkenninguna. Það er mikið að
gera núna og þetta er hvatning.
Það er mikið leitað til okkar þessa
dagana, núna eru að koma páskar.
Það er oft álag á fjölskyldum fyrir
hátíðir,“ segir Sigrún í símaviðtali
við blaðamann en þær Sunna Ósk
máttu ekki vera að því að koma
suður vegna anna við úthlutanir.
Það var því móðir Sigrúnar, Guðný
Jóhanna Jónsdóttir, sem veitti verð-
laununum viðtöku og vissi af ferð
norður með þau strax í gærkvöldi.
Þau Ástrós Rut Sigurðardóttir,
varaformaður Krafts, og þeir Dagur
Egonsson og Pétur Helgason sem
hafa staðið fyrir Powerade-hlaup-
um árum saman voru líka tilnefnd
í þessum flokki.
Dregur fram styrkleikana
Verðlaunin í flokknum Til atlögu
gegn fordómum runnu til Foreldra-
félags Breiðholtsskóla. Það hefur
staðið fyrir fjölmenningarhátíðum
fyrir nærsamfélagið þar sem öllum
íbúum hverfisins er boðið í skól-
ann. Tilgangurinn er að tengjast
betur foreldrum og börnunum sem
þar búa, kynnast ólíkum uppruna
þeirra, tungumáli og ekki síst að
fagna fjölbreytileikanum. „Þetta
er viðurkenning á mikilli vinnu og
hvatning til fólks sem hefur staðið
vaktina,“ segir Sara Björg Sigurðar-
dóttir. „Ég vil draga fram styrkleika
samfélagsins í Breiðholti,“ segir hún
og segir umfjöllunina um hverfið of
oft á neikvæðum nótum.
Flóttamenn fengu
viðurkenningu
Í flokknum voru einnig tilnefndir
sýrlensku flóttamennirnir Kinan
Kadoni og Jamil Kouwatli sem
báðir hafa lagt fram krafta sína í
eldamennsku í þágu góðra mál-
efna og Morteza Songolzadeh sem
hefur boðið fram ómetanlega túlka-
þjónustu.
Heiðursverðlaunin gengu að þessu
sinni til Guðmundar Haraldssonar
sem hefur helgað sig brunaöryggis-
málum í marga áratugi, fyrst sem
slökkviliðsmaður, síðar eftirlitsmað-
ur brunavarna og loks sem skóla-
stjóri Brunamálaskólans. Hann hefur
þjálfað nokkrar kynslóðir slökkvi-
liðsmanna. „Það er vel að þessum
verðlaunum staðið og gaman að sjá
að það er verið að veita þau hinum
og þessum hópum sem eru að gera
góða hluti. Það er alltaf gaman þegar
fólk passar upp á hlutina og hefur þá
í lagi, sama á hvaða sviði það er. Ég
þakka bara innilega fyrir mig,“ sagði
Guðmundur. – gun, kbg
Fjölbreyttur hópur verðlaunaður
Lótushús hlaut aðalverðlaun Samfélagsverðlauna Fréttablaðsins við hátíðlega athöfn á Hótel Reykjavík Natura í gær. Guðni Th.
Jóhannesson forseti afhenti verðlaunin, 1,2 milljónir króna. Fjölbreyttur hópur fólks hlaut einnig viðurkenningar fyrir störf sín.
Afar stór og fjölbreyttur hópur fólks fékk viðurkenningar og verðlaun fyrir störf sín í þágu samfélagsins. FréttAblAðið/Eyþór
Hélt að verðlaunin væru gabb
Heiðursverðlaunahafinn í ár,
Guðmundur Haraldsson,
hélt að það væri verið að
gabba hann þegar haft
var samband við hann
vegna verðlaunaafhend-
ingarinnar. „Ég hélt fyrst
að þetta væri gabb, þegar
haft var samband við mig. Því
bað ég mágkonu mína að hringja
og athuga hvort ég þyrfti að
mæta hér en eftir að ég var
búinn að fá staðfestingu
lét ég náttúrlega sjá mig
og þakka innilega fyrir
heiðurinn. Það er gaman
að fá viðurkenningu fyrir sín
störf,“ sagði Guðmundur.
Gáfu forsetanum heimagerða orðabók
Tveir synir Jamils Kouwatli, sem
hlaut viðurkenningu fyrir baráttu
sína gegn fordómum, stigu óvænt
fram á verðlaunaafhendingunni
og vildu gefa forseta Íslands,
Guðna Th. Jóhannessyni, gjöf.
Gjöfin var orðabók sem þeir hafa
unnið ötullega að og á að aðstoða
innflytjendur og Íslendinga við
að skilja hverjir aðra. Í bókinni er
að finna orð, hugtök og ýmis-
legt fleira er tengist daglegu lífi á
nokkrum tungumálum, svo nefnd
séu nokkur: arabísku, pólsku,
íslensku og dönsku. Þeir bræður
hafa fengið stuðning frá mennta-
málaráðuneytinu til að gefa
orðabókina út. Forsetinn gladdist
yfir gjöfinni og ræddi lengi við þá
bræður um dugnað þeirra.
1
3
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:3
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
A
9
-3
6
3
8
1
C
A
9
-3
4
F
C
1
C
A
9
-3
3
C
0
1
C
A
9
-3
2
8
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
1
2
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K