Fréttablaðið - 13.04.2017, Síða 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Mótið í ár var það stærsta hingað til með um 340 keppendur. Ég keppi í fitness-flokki kvenna
og vann þann flokk. Ég vann „over-
all-ið“ líka en það er þegar sigur-
vegarar úr hverjum hæðar- eða
aldursflokki eru bornir saman í lok
mótsins, stigahæsti keppandinn þar
er þá heildarsigurvegari mótsins.
Þannig að þetta var mjög stór sigur
og maður er alveg í skýjunum yfir
þessu,“ segir Inga Hrönn Ásgeirs-
dóttir um mótið sem hún vann á
dögunum.
Spurð út í hvað sé skemmtilegast
annars vegar og erfiðast hins vegar
við sportið segir Inga Hrönn: „Það
skemmtilegasta við sportið er bara
að sjá þessar breytingar á líkam-
anum, það er magnað að fylgjast
með því hvernig maður getur mótað
líkamann með þessum hætti. Það
erfiðasta er náttúrulega niðurskurð-
urinn sem hefst tólf vikum fyrir mót.
Þá fer maður að skera niður hitaein-
ingar, en þó ekki þannig að maður
verði neitt svangur. Ég er alveg að
borða á tveggja tíma fresti yfir dag-
inn en fæðið er einhæft og leiðin-
legt. Ég er algjör nammigrís svo ég
vakna yfirleitt á hleðsludögum, sem
sagt nammidögum, eins og barn á
jólum! Ég missi mig samt ekkert,“
segir Inga Hrönn og hlær.
„Ég myndi segja að skipulag væri
númer 1, 2 og 3 en forgangsröðun
númer 4,“ segir Inga Hrönn spurð
út í hver galdurinn sé á bak við að
ná góðum árangri. „Þú þarft í fyrsta
lagi að vilja ná árangri því þetta
tekur hellingstíma og þú þarft að
vera tilbúinn að fórna ýmsu. Maður
má ekki detta í þann pakka að fara
að vorkenna sér af því að maður
má ekki fá sér súkkulaðiköku með
kaffinu, maður þarf bara að minna
sig á að það má alveg borða þessa
köku, en maður kýs að gera það
ekki á þessum tímapunkti. Svo
þarf maður að skipuleggja nokkra
daga fram í tímann, elda máltíðir
fyrir næstu daga og raða æfingum
í kringum vinnu og fjölskyldu. Svo
skemmir auðvitað ekki að vera með
góða aðila á bak við sig,“ útskýrir
Inga Hrönn. Hún segir að mamma
hennar og pabbi séu hennar stærstu
aðdáendur.
Vaknar klukkan 6.00 og er
sofnuð fyrir 22.00
Inga hefur náð góðum tökum á
skipulaginu þrátt fyrir að það sé
mikið að gera hjá henni. „Það er allt-
af nóg að gera hjá mér! Ég er í fullri
vinnu ásamt því að reka verslunina
Momo með mömmu minni. Og ég
á sjö ára barn, Óðin Hrafn. Ofan á
allt er ég nýútskrifuð úr masters-
námi, svo það er aldrei lognmolla í
kringum mig.“
Í undirbúningi fyrir mót byrjar
dagurinn alltaf snemma hjá Ingu,
eða klukkan 6.00. „Þá tek ég morg-
unbrennslu, ég nenni yfirleitt ekki
út í rækt til að brenna svo ég keypti
mér þrekstiga sem ég er með í
svefnherberginu, voða eðlilegt allt
saman. Svo þarf að gefa stráknum
morgunmat, útbúa nesti og græja
sig í vinnuna. Tvisvar í viku tek ég
æfingu í hádeginu, aðra daga erum
við mæðginin mætt á æfingu í
Egilshöllinni strax eftir vinnu. Eftir
vinnu eða æfingu tekur heimanám-
ið og kvöldmaturinn við. Það getur
verið hálfgert púsl rétt fyrir mót
þar sem það þarf að elda þríréttað
á hverju kvöldi. Ég og kærastinn
stillum yfirleitt mótin okkar saman
þannig að við erum oftast bæði í
niðurskurði en erum ekki að borða
sama matinn. Sonurinn fær svo bara
venjulegan heimilismat. Eftir að
Óðinn er kominn upp í rúm þarf að
undirbúa næsta dag, svo ég er yfir-
leitt komin upp í rúm ekki seinna
en 22.00,“ útskýrir Inga sem leggur
mikla áherslu á að verja góðum tíma
með syni sínum. „Ég æfi á morgnana
þegar hann er sofandi eða á meðan
hann er sjálfur á fótboltaæfingum,
þá er ég ekki að taka tíma af „okkar
tíma“ til að æfa. En félagslífið situr
oft á hakanum, en þegar tími gefst þá
reyni ég að hitta vinkonurnar.
Ég þarf á þessari rútínu að halda til
að mér líði vel bæði andlega og lík-
amlega. Ég lenti í bílslysi fyrir nokkr-
um árum þar sem ég hálsbrotnaði
og ég tel að öll þessi hreyfing sé það
sem heldur mér gangandi. Ég finn ef
ég tek langa hvíld hvernig bólgurnar
magnast upp í bakinu og ég hætti að
geta snúið höfðinu en það gengur
fljótt til baka um leið og ég byrja að
hreyfa mig aftur,“ segir Inga.
Fram undan hjá Ingu eru svo
frekari keppnir. „Ég er að fara að
keppa á Íslandsmeistaramótinu í
Háskólabíói á föstudaginn langa og
svo stefni ég á Evrópumeistaramót á
Spáni í byrjun maí. Ég ætla samt að
leyfa mér smá páskaegg eftir mótið
hér heima. En eftir mót tek ég svo
alltaf smá hvíld, gef líkamanum smá
stund til að jafna sig eftir keyrsluna.“
gudnyhronn@365.is
Þýðir ekkert að
vorkenna sjálfri sér
Inga Hrönn Ásgeirsdóttir fékk áhuga á líkamsrækt í kringum fermingaraldur
og þá varð ekki aftur snúið. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Ég er algjör
nammigrís svo Ég
vakna yfirleitt á hleðslu-
dögum, sem sagt nammi-
dögum, eins og barn á
jólum!
Í byrjun mánaðar
bar Inga Hrönn Ás-
geirsdóttir sigur úr
býtum í sínum flokki
á Oslo Grand Prix
fitness-mótinu. Ekki
nóg með að Inga
hafi unnið sinn flokk
heldur vann hún líka
„overall“ keppnina.
Inga segir gott skipu-
lag vera lykilinn á
bak við velgengnina.
SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í PENNANUM EYMUNDSSON UM LAND ALLT
METSÖLULISTI EYMUNDSSON
05.04.17 - 11.04.17
1 2
5 6
7 8
109
43
Í skugga valdsins
Viveca Sten
Sterkari í seinni hálfleik
Árelía Eydís Guðmundsdóttir
Löggan
Jo Nesbø
Örvænting
B.A. Paris
Risasyrpa - Glóandi gull
Walt Disney
Ævinlega fyrirgefið
Anne B. Ragde
Heimför
Yaa Gyasi
Ör (kilja)
Auður Ava Ólafsdóttir
Sonur Lúsífers
Kristina Ohlsson
Dalalíf 5 - Logn að kvöldi
Guðrún frá Lundi
1 3 . a p r í l 2 0 1 7 F I M M T U D a G U r38 l í F I ð ∙ F r É T T a B l a ð I ð
1
3
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:3
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
A
9
-3
1
4
8
1
C
A
9
-3
0
0
C
1
C
A
9
-2
E
D
0
1
C
A
9
-2
D
9
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
1
2
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K