Fréttablaðið - 13.04.2017, Qupperneq 48
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir
Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
mest lesna dagblað landsins.
ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF
FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ.
Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu.
FERSKT Á FERÐINNI * FRESH TO GO
*GERIR KRAFTAVERK*
/ Fyrir DAGLEGT BRAUÐ /
Sómasalat
4499 kr.kg
Ungnautalund, Nýja-Sjáland
- 25%
Verð áður 5999 kr. kg
OPIÐ ALLAN SÓLARHRINGINN
Í ENGIHJALLA,
VESTURBERGI
OG ARNARBAKKA
Síðustu jól voru sannkölluð atvinnurekendajól. Vinnu-dagarnir teygðu sig langt inn á
það sem gæti talist eðlilega nálægt
jólum og svo unnu launþegar eins
og skepnur á milli jóla og nýárs. Til
að kóróna ástandið var ekkert frí af
viti eftir áramót. Einu launþegarnir
sem voru ánægðir voru kennarar sem
alltaf fá almennilegt frí um jól, sumar,
páska, í vetrarfríinu og á þemadögum
tvisvar á ári.
Má ég þá heldur biðja um páska.
Stjúpdóttir mín, tólf ára, kom
hneyksluð heim fyrir viku síðan og
sagði það skandal að páskafríið í
ár væri bara ellefu dagar. Bara. Eins
og páskafrí grunnskólanna sé ekki
alltaf alveg nákvæmlega jafn langt,
frá skólalokum á föstudegi út alla
dymbilvikuna og svo bætist einn
starfsdagur við svo kennarar nái
að rétta úr sér eftir súkkulaðibríma
helgarinnar.
Við hin erum líka kampakát í fríi
frá miðvikudegi og fram á þriðjudag.
Eins og alla aðra páska. Í ár ákváðu
svo séríslenskar hefðir að kitla okkur
enn betur með sumardeginum fyrsta
á fimmtudegi eftir páska. Sárabætur
fyrir glötuð jól. Launþegar með smá
hyggjuvit eru því búnir að tryggja sér
frí á föstudeginum og geta byrjað á
fimm daga páskahelgi og dembt sér
beint í fjögurra daga sumarhelgi. Þeir
sem eru flinkastir í fríi gætu sótt sér
frí frá 7. apríl til 24. apríl.
Sumardagurinn fyrsti er frábær
uppfinning. Hvers vegna er ekki frí á
fyrsta vetrardegi? Hefði almenning-
ur ekki gott af fríi á sumarsólstöðum,
vetrarjafndægrum og öðrum í þorra-
þræl? Það eru mannréttindi að eiga
frí á afmælinu sínu, afmæli barna
sinna og afmæli maka síns (frí á
konudag eða bóndadag fyrir þá sem
ekki eiga maka). Svo vantar sárlega
frí á fyrsta alvöru sólardegi ársins,
svona í sárabætur fyrir rigninguna á
sumardaginn fyrsta.
Páskar eru betri
en jól
Snærósar
Sindradóttur
BAkþAnkAR
1
3
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:3
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
A
9
-1
D
8
8
1
C
A
9
-1
C
4
C
1
C
A
9
-1
B
1
0
1
C
A
9
-1
9
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
1
2
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K