Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 15.05.1990, Blaðsíða 4
Ársskýrsla stjórnar
Hjúkrunarfélags Islands
1989 til fulltrúafundar 1990
— flutt á fulltrúafundi 10.—11. maí 1990
Félagar í Hjúkrunarfélagi íslands 1.1. 1989
Nýir félagar 1989 (þar af 1 erlendur) ...
Á árinu létust 10 félagsmenn ............
Úrsögn vegna biisetu erlendis ...........
Þar afbúsettar erlendis 1.1.1990 ........
Félagsmenn HFÍ innanlands 1.1. 1990 .....
Starfandi í fullu starfi............. 529
Starfandi í hlutastarfi.............. 953
(Afþeim eru 316 í 80% starfi
99 í minna en 50% starfi)
Félagar yfir 65 ára 1.1. 1990 ....... 169
þar af starfandi.................... 28
í framhaldsnámi:
Ljósmœðraskóli Islands .............. 3
+ UfráFHH
Nýi hjúkrunarskólinn -
Námsbraut í hjúkrunarfrceði í
Háskóla Islands frá 1.1.1990
Svœfingahjúkrun .................... 11
+ 2 fráFHH
(4 skráðar starfandi)
Skurðhjúkrun........................ 11
+ 1 frá FHH
2.134
2
10
9
2.117
159
1.958
1.482
141
(3 skráðar starfandi)
Erlendis í námi (svo vitað sé) 5
Alls í framhaldsnámi án launa 23
Starfandi sem kennarar
og á launakerfi FHH 16
Ekki taldir starfandi í ársbyrjun 1990 296
1.958
1.958
Um áramót voru hér starfandi 30
erlendir hjúkrunarfræðingar, sem
ekki eru félagsmenn í HFI.
Frá því að fulltrúafundur HFÍ
var haldinn í maí 1989 hafa eftir-
taldir félagsmenn látist:
Filippía Þórdís Hallgrímsdóttir
Ammendrup, en hún var fædd 4.
janúar 1946 á Akureyri. Hún lauk
ljósmæðranámi við Ljósmæðra-
skóla íslands árið 1971 og hjúkrun-
arnámi við Hjúkrunarskóla íslands
árið 1974. Hún lést 12. júlí 1989.
Oddný Lára Emilía Pétursdóttir,
en hún var fædd 3. nóvember 1912 í
Heydölum, Suður-Múlasýslu. Hún
lauk hjúkrunarnámi við Hjúkrun-
arskóla íslands árið 1940. Hún lést
27. september 1989.
Steinunn Ögmundsdóttir, en
hún var fædd 14. ágúst 1901 í Laug-
arási í Biskupstungum. Hún lauk
hjúkrunarnámi við Bispebjerg
Hospital, Kaupmannahöfn árið
1929. Hún lést 2. október 1989.
Sigrún Magnúsdóttir, en hún var
fædd 19. apríl 1899 á Gilsbakka í
Mýrasýslu. Hún lauk hjúkrunar-
námi við Nakskov Sygehus, Dan-
mörku árið 1925, framhaldsnámi í
fæðingarhjúkrun og geðhjúkrun í
Danmörku og verklegu námi í
heilsuvernd í Kanada. Sigrún var
fyrsta forstöðukona Heilsuvernd-
arstöðvar Reykjavíkur. Hún var
heiðursfélagi HFÍ. Hún lést 9. nóv-
ember 1989.
Guðrún Árnadóttir, en hún var
fædd 7. september 1911 á Húsavík.
Hún lauk hjúkrunarnámi við
Hjúkrunarskóla íslands árið 1938.
Hún lést 3. janúar 1990.
Sigrún Sigtryggsdóttir, en hún
var fædd 24. desember 1901 á Hall-
bjarnarstöðum í Suður-Þingeyjar-
sýslu. Hún lauk hjúkrunarnámi við
Hjúkrunarskóla Islands árið 1935.
Hún lést 9. mars 1990.
Ég vil biðja fulltrúa að rísa úr
sætum og minnast látinna félaga
með virðingu og þökk.
Erlendur heiðursfélagi í HFÍ,
Agnes Sinervo-Mantere frá Finn-
landi lést í nóvember 1989.
Islenskir heiðursfélagar eru:
Bjarney Samúelsdóttir, Sigríður
Bachman, Þorbjörg Jónsdóttir,
María Pétursdóttir, Guðríður Jóns-
dóttir, Ingibjörg R. Magnúsdóttir,
Sigurlín Gunnarsdóttir, Elísabet
Erlendsdóttir, systir Marie Hilde-
gardis. Sigrún Magnúsdóttir, fyrr-
verandi forstöðukona Heilsu-
verndarstöðvar Reykjavíkur og
heiðursfélagi HFÍ, en hún lést 9.
nóvember 1989.
4 HJÚKRUN 2/»—66. árgangur