Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 15.05.1990, Blaðsíða 14
»■>
•e
félagsmál
Úr Sigrídarstofu í húsakynnum HFÍ.
ósnertur í skápinn og bíður næsta
dags.
Þótt rekstrarreikingur félagsins
hafi sýnt talsverðan rekstrarhalla í
árslok 1989, er ekki annað hægt að
segja en að fjárhagur félagsins
standi í blóma. Efnahagskreikning-
ur sýnir eignir upp á rúmar 46 millj-
ónir króna, veltu- og fastafjármuni,
og þótt rekstartap hafi verið á árinu
er það tímabundið, þar sem árið
1989 var mjög „dýrt ár“. Kostnaður
við 70 ára afmæli félagsins, ferð for-
manns og varaformanns á alþjóða-
þing ICN í Seoul og tímarit HFÍ
reyndist mjög dýrt árið 1989 og var
auglýsingaöflun í lágmarki. Fram-
lög til námssjóðs og vísindasjóðs
voru hærri en áður hefur verið, lok-
ið var við eldhúsið, unnið var tölvu-
forrit fyrir félagaskrá HFÍ sem áður
var í tölvu úti í bæ og fleira kom til
sögunnar sem ekki verða kostnað-
arliðir í ár.
Einu skuldir félagsins eru líf-
eyrissjóðslán til 25 ára með tveimur
afborgunum á ári. Er þar eingöngu
um að ræða lán, sem tekin voru til
að gera hæðina tilbúna undir tré-
verk og málningu á árinu 1987.
Eins og ársreikningur ber með
sér eru einungis útistandandi fé-
lagsgjöld þeirra félagsmanna sem
ekki eru starfandi, eða hafa ekki
náð að greiða lágmarksfélagsgjald
á árinu, sem er kr. 2.000,oo. Gíró-
seðlar eru sendir í árslok og þess
vegna er stærsti hlutinn ekki kom-
inn inn fyrir áramót.
Hækkun félagsgjalda frá 1988 til
1989 er einungis rúm 8% en kostn-
aðarliðir hafa yfirleitt hækkað tals-
vert meira. Laun og launatengd
gjöld reyndust þó ekki hækka
meira en um 2% milli ára, en á það
ber að líta að tvöföld formannslaun
voru greidd hluta ársins 1988.
Á árinu 1989 greiddum við til
BSRB kr. 1.861.807,00 af félags-
gjöldum en iðgjald til BSRB lækk-
aði, var 4% af föstum launum, en
lækkaði í 3,5% í ársbyrjun 1989.
Starfandi félagsmenn um áramót
1988-1989 eru taldir 1.420, þannig
að við höfum greitt til BSRB sem
svarar 1.311 krónum fyrir hvern
starfandi félagsmann á árinu 1989.
í ársbyrjun 1988 voru 320 félags-
menn skráðir sem voru ekki starf-
andi. Við uppgjör félagsgjalda voru
sendir út 235 gíróseðlar innan-
lands, 159 til félaga sem skulduðu
lágmarksgjaldið kr. 2.000,00, 26 til
þeirra sem unnið höfðu eitthvað á
árinu og greitt lámgarksgjaldið að
hluta og 50 til félagsmanna sem
skulduðu að auki félagsgjald frá
fyrri árum. Gíróseðlar voru sendir
út til 158 félgsmanna erlendis; 87
skulduðu aðeins árið 1989 en 71 átti
einnig ógreidd félagsgjöld frá fyrri
árum.
Af orlofssjóðsgjöldum greiddum
við til BSRB sem svarar 1.584 krón-
um á hvern starfandi félagsmann.
Af orlofssjóðsgjöldum, sem eru
frainlag vinnuveitenda, fær BSRB
60% en HFÍ heldur 40%. Orlofs-
sjóður stendur undir öllum greiðsl-
um varðandi sumarhús félagsins.
Kvennabrekka og orlofsíbúðin á
Suðurlandsbraut skiluðu rekstrar-
hagnaði en rekstrarhalli varð af
BSRB húsunum, eins og ársreikn-
ingur sýnir.
Sumarhús félagsins í Munaðar-
nesi og á Eiðum og Kvennabrekka
eru leigð út viku í senn yfir sumar-
tímann og komast færri að en vilja.
Kvennabrekka er í samfelldri leigu
alla vetrarmánuðina. Orlofsíbúðin
hefur verið leigð út svo til hvern
sólarhring sl. vetur og þar hafa
dvalið fjölmargir hjúkrunarfræð-
ingar utan af landi, sem sækja nám-
skeið til Reykjavíkur. Þeir fá 50%
afslátt af leigunni. íbúðin verður
leigð viku í senn í sumar.
Innheimta félagsgjalda, sem
vinnuveitendur annast, gengur
yfirleitt vel. Aðeins einn fámennur
vinnustaður hefur ekki greitt fé-
lagsgjöld sl. ár og hefur nú krafan
verið sett í innheimtu. Flestir
vinnuveitendur senda gjöldin mán-
aðarlega. Ég vil þakka skilvísum
vinnuveitendum fyrir innheimtu fé-
lags- og orlofssjóðsgjalda fyrir fé-
lagið. Reikningar félagsins fyrir ár-
ið 1989 verða gefnir út sem auka-
fréttablað og sendir öllum
14 HJÚKRUN V90—66. árgangur