Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 15.05.1990, Blaðsíða 34
vaktir í röð. Þá finnst sumum að þeir fái aukafrí með
því að sofa lítið, en athuga ekki að um leið eru þeir
að fara illa með eigin heilsu.
* að á eftir næturvakt komi t.d. kvöldvakt, morgun-
vakt, kvöldvakt, morgunvakt næturvakt. Vakta-
skemað ætti að vera morgunvakt, kvöldvakt, nætur-
vakt, morgunvakt, kvöldvakt, næturvakt og svo
framvegis.
Nokkur atriði sem gott er að hafa í huga fyrir þá sem
vinna á næturvöktum:
* Líkamshitinn lækkar á nóttunni þegar við undir
venjulegum kringumstæðum sofum og þess vegna
finnum við oft fyrir kulda á næturvöktum. Við ætt-
um því að vera þessu viðbúin og klæða okkur í
samræmi við það, þegar við erum á næturvöktum
þar sem stofnanirnar hafa ekki sérstök hlýrri vinnu-
föt til að klæðast á næturvöktum.
* Mikilvægt er að borða, þó að unnið sé á næturvökt-
um. Engin matsala er á stofnunum fyrir þá sem vinna
á næturvöktum. Á síðustu árum hafa verið settir upp
sjálfsalar á stærri stofnunum og víða eru örbylgju-
ofnar á deildum. Til þess að þeir nýtist sem best
þyrfti að vera hægt að kaupa matarbakka til að elda
eða hita upp í örbylgjuofnunum.
* Mjög nauðsynlegt er að ætla sér frið og tíma til þess
að sofa eftir næturvaktir.
* Mikilvægur þáttur, sem e.t.v. hefur gleymst en er
ekki hvað síst mikilvægur, er jákvœtt hugarfar. Það
þjóðfélag, sem við lifum í, er „dagvinnumiðað“.
Þeir, sem aldrei hafa unnið á kvöldin eða nóttunni,
hafa oft lítinn skilning á því að þeir, sem það gera,
þurfi t.d. frið til þess að sofaeftirnæturvaktir. Þaðer
samt einmitt þetta fólk sem bendir okkur á marga
kosti vaktavinnunnar sem við viljum e.t.v. gleyma.
Þeir sem vinna alltaf „9-5“ sakna þess:
* að komast ekki í banka án þess að biðja um frí eða
hlaupa í matartímanum.
* að versla aldrei í hálftómum búðum - engin ös.
* að eiga aldrei frí fyrir sig og með fjölskyldunni í miðri
viku eða fyrrihluta dags.
* að geta ekki valið vinnutíma nema að mjög litlu
leyti.
* að geta ekki farið upp í rúm að sofa, þegar aðrir eru
að fara á fætur og í vinnu, syfjaðir að morgni.
NIÐURLAG
í þessari umfjöllun minni hefur verið stiklað á stóru
og er langt frá því að efninu hafi verið gerð ítarleg skil.
Ég vona þó að áhugi ykkar hafi vaknað á því að kynna
ykkur meira um líkamsklukkuna. Ég vona einnig að
þetta verði til þess að umræður um líkamsklukkuna
aukist og að þið sjáið mikilvægi þess að hver og einn
kynni sér hvernig líkamsklukkan hefur áhrif á líf okkar
og einnig hvernig líf okkar hefur áhrif á líkamsklukk-
una. Við þurfum að þekkja gang hennar til þess að
okkur líði sem best í einkalífi og starfi. Við þurfum
einnig að þekkja þær gangtruflanir, sem geta komið
fram, þekkja orsakirnar, sem valda þeim og hvernig
hægt er að bregðast við þeim. Ég vona einnig að ljóst sé
eftir þennan lestur mikilvægi þess að taka tillit til lík-
amsklukku skjólstæðinga okkar í tengslum við umönn-
un og meðferð þeirra. „Lífið er stutt; styttum það ekki
meira með því að fara illa með tímann“ (óþekktur
höf.)!
HEIMILDASKRÁ
1. HALL, LaVONNE. Circadian Rhythms Implications tor Geriatric
Rehabilitation. The NursingClinicsof North America. Vol. 11, No. 4.
December 1976.
2. LANUZA, DOROTHY. Circadian Rythms of Mental Efficiency
and Performance. The Nursing Clinics of North America. Vol 11, No.
4, December 1976.
3. ÞORGEIRSDÓTTIR, ANNA DÓRA, etal. Könnun á áhrifum
vaktavinnu á heilbrigði hjúkrunarfræðinga. Rannsókn í hjúkrunar-
fræði við H.Í., maí 1984.
4. TOM, CHERYL OG LANUZA, DOROTHY. Symposium on
Biological Rhythms, The Nursing Clinics of North America. Vol. 11,
No. 4. December 1976.
LESEFNI
1. ALWARD, RUTH ROSENDALL ARE YOU A LARK OR AN
OWL ON THE NIGHT SHIFT? American Journal of Nursing.
October 1980.
2. BROWN, PHYLLIDA PUNCHING THE BODY CLOCK.
Nursing Times 2, Vol. 84, No.44,1988.
3. COFFEY, LINDA, C. et.al. Nurses and shift work. Effect on job
performance and job-related stress. Journal of Advanced Nursing
1988,13.
4. FIELDS, WILLA, L. OG LOVERIDGE, CATHERINE. Critical
Thinking and Fatique: How do Nurses on 8-8, 12-hour Shifts Com-
pare? Nursing Economics, July-August Vol.6, No. 4,1988.
5. JENKINSON, VANESSA. Night Duty and the Nurse Nursing
Mirror, May 13, 1981.
6. ROSE, MICHAEL SHIFTWORK, HOW DOES IT AFFECT
YOU? American Journal of Nursing, April 1984.
Höfundur er deildarstjóri á rannsóknarstofu
í meltingarfœrasjúkdómum á Landspítala.
34 HJÚKRUN Vx—66. árgangur