Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 15.05.1990, Page 10
»1
félagsmál
Frá fulltrúafundi.
Könnun á vinnutíma og álagi
heilbrigðisstétta var gerð á árinu að
forgöngu landlæknisembættisins.
María Ragnarsdóttir hjúkrunar-
kennari er fulltrúi HFÍ og vann hún
ásamt Sigurhelgu Pálsdóttur hjá at-
vinnusjúkdómadeild Heilsuvernd-
arstöðvar Reykjavíkur að könnun-
inni fyrir hönd félagsins. Niður-
stöður hennar liggja ekki fyrir, en
þátttaka var dræm, eða um 50%.
Atvinnusjúkdómadeildin á Heilsu-
verndarstöðinni mun vinna úr nið-
urstöðum könnunarinnar.
Þann 22. ágúst 1989 var haldinn
hér heima annar fundur samstarfs-
hóps um gæðatryggingar í hjúkrun.
Þetta er þróunarverkefni sem SSN
stendur að. Fundir eru haldnir til
skiptis í löndunum. Fulltrúar ís-
lands eru þær Anna Birna Jensdótt-
ir, hjúkrunarframkvæmdastjóri
Borgarspítalans, og Guðrún Karls-
dóttir, hjúkrunarframkvæmda-
stjóri Landspítalans.
Dagana 18.-21. október 1989 var
haldin í Linköping í Svíþjóð ráð-
stefna á vegum Evrópudeildar Al-
þjóða heilbrigðismálastofnunar-
innar. Tilgangurinn var að fylgja
eftir stefnumörkun WHO „Heil-
brigði árið 2000“. Umræður voru í
beinu framhaldi af ráðstefnu um
sama efni sem haldin var í Vín í
Austurríki dagana 21.-24. júní
1988. Heilbrigðisráðuneyti íslands
var talið að tilnefna fjögurra manna
sendinefnd og var Pálína Sigurjóns-
dóttir varaformaður fulltrúi HFÍ á
báðum ráðstefnunum.
Læknablaðið hélt upp á 75 ára
afmæli sitt þann 27. október 1989
með námsstefnu um líknardauða
og skilmerki dauða. Formaður HFÍ
sótti fundinn.
21. nóvember 1989 átti formaður,
ásamt fulltrúum félagsstjórnar,
fund með nemendum Háskólans á
Akureyri. Tilefni fundarins var að
gefa þeim upplýsingar frá fyrstu
hendi um markmið og starf HFÍ.
Aætlað er að hafa samskonar fund
með nemendum HÍ í byrjun næsta
skólaárs.
Minningarsjóður Kristínar Thor-
oddsen var afhentur félaginu form-
lega af fyrrverandi skólastjórum
Hjúkrunarskóla Islands, þeim Sig-
ríði Jóhannsdóttur og Þorbjörgu
Jónsdóttur ásamt sjóðstjórn, þann
22. febrúar 1990.
Stór hluti af starfi formanns er
fundarseta fyrir hönd félagsins. Má
þar nefna fastafundi, svo sem sam-
starfshóp um hjúkrunarmál er
starfar innan Heilbrigðisráðuneyt-
isins, Hjúkrunarráð, Lífeyrissjóðs
hjúkrunarkvenna, bæjarstarfs-
mannaráð BSRB, stjórnar orlofs-
heimila BSRB og skólanefnd NHS,
en formaður HFÍ var þar formaður
skólanefndar frá árinu 1984 til ára-
móta 1990 að Nýi hjúkrunarskólinn
hætti starfsemi.
Svo ekki sé nú talað um allan
þann aragrúa af fundarboðum um
hin margvíslegustu málefni lieil-
brigðisþjónustunnar er berast
hverju sinni.
Fyrsta markmið félagsins er að
efla heilbrigðisþjónustu í landinu
og því hlutverk þess að vera með í
ákvarðanatöku um þau mál.
SAMSTARF HFÍ OG FHH
Tillögur um samstarf félaganna
voru samþykktar á fulltrúafundi
HFÍ í júní 1988. Á félagsfundi
hjúkrunarfræðinga í FHH þann 25.
janúar 1990 voru samþykktar nýjar
tillögur um samstarf við HFÍ og þær
síðan lagðar fyrir stjórn HFÍ þann
26. janúar 1990 á sameiginlegum
fundi stjórnanna. Tillögurnar voru
kynntar í Fréttablaði nr. 46 í febr-
10 HJÚKRUN %o—66. árgangur