Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 15.05.1990, Side 39
10 kjarnorkuslys skráð, vegna
bandarískra kjarnorkuvopna, sem
losað höfðu geislavirk efni út í and-
rúmsloftið. Árið 1966 fórst B-52
flugvél á Suðvestur-Spáni, með
kjarnorkuvopn innanborðs. Síðan
hafa íbúar svæðisins orðið varir við
aukna tíðni fósturláta og fæðingar-
galla. Chernobylslysið hleypti út
miklu magni af geislavirkum ísó-
tópum þar á meðal cesíum 137.
Þessir ísótópar falla til jarðar með
úrkomu og fæðuhringurinn meng-
ast. Vegna langs helmingunartíma
(verkunartími lyfja/efna) cesíums
137 verður jarðvegurinn geislavirk-
ur í hundruð ára. Burtséð frá
marghliða efnahagslegum afleið-
ingum mengunar eru áhrifin víð-
tækari. Krabbamein verða tíðari.
Urfelli dreifist um mjög stórt svæði,
þess vegna er aukning á krabba-
meinum ekki bundin við Sovétrík-
m, heldur alla Evrópu.
KJARNORKUVER
Tuttugu og sex ríki treysta á
hjarnorku til að mæta orkuþörfum,
þá um 40% eða meira. Þessi lönd
feka um 358 kjarnaofna. Stjórnir
Frakklands og Belgíu eru hlynntar
útbreiðslu kjarnorku. Aftur á móti
eru stjórnvöld í Bandaríkjunum,
Sviss og Svíþjóð að láta loka
kjarnaofnum vegna þrýstings frá al-
menningi. Hár rekstrarkostnaður
kemur í veg fyrir notkun kjarnorku
1 stórum stíl í Japan. Margar ríkis-
stjórnir halda áfram að nota skað-
leg efni eins og úraníum til að koma
tú móts við nokkurn hluta orku-
þarfar. Meðan ríki eru háð notkun
araníums, hafa stjórnvöld tilhneig-
mgu til að þynna út öryggisstaðla,
hylma yfir úrgangslosun og halda
eftirliti með kjarnorkuverum í lág-
marki.
Margir hjúkrunarfræðingar hafa
fylgst með umræðum um gróður-
húsaáhrif. Fyrirsjáanlegar afleið-
lngar eru: Hækkun sjávarmáls,
aukin tíðni fellibylja og breytt veð-
Urfar vegna hækkandi hitastigs.
^e*r, sem aðhyllast notkun kjarn-
°rkuvera, halda því fram að það
dragi
úr gróðurhúsaáhrifum að
hagnýta kjarnorku. Umræðurnar |
ætti ekki að skoða sem auðvelda
lausn þ.e.a.s. jarðvegseldsneyti og
aukin gróðurhúsaáhrif, eða notkun
kjarnorku. Málið er margbrotnara
en það. Ef hugarfarsbreyting á að
verða um samband milli fram-
leiðslu á kjarnorku og þess að draga
úr gróðurhúsaáhrifum, verður
einnig að vera aðgangur að valkost-
um, nægilegum orkulindum og fé
til rannsókna. Það hefur komið í
ljós að fjárfesting í aðferðum til
orkusparnaðar eru allt að sex sinn-
um áhrifaríkari til að minnka gróð-
urhúsaáhrif heldur en kjarnorku-
ver.
Ráðstefnan um j>róðurhúsaáhrif,
sem haldin var í Ástralíu í nóvem-
ber 1988, hvatti til breytinga á tækni
til orkuframleiðslu. Yrði það ofar-
lega á framkvæmdalista ríkis-
stjórna. Ráðstefnan sendi frá sér
eftirfarandi ályktun: Kjarnorku-
notkun er ekki lausn á vandamál-
um vegna gróðurhúsaáhrifa, að svo
stöddu. Ástæðurnar eru þessar:
Takmarkaðar breytingaáætlanir
varðandi víðtæka notkun jarðefna-
eldsneytis. Þrálátur kostnaður, ör-
yggi við framleiðslu, útbreiðsla
kjarnorkuvopna og geislavirkur
úrgangur. Hjúkrunarfræðingar
verða að vinna ötullega að því að
hafa áhrif á stjórnvöld svo beina
megi fjármunum, sem nú er varið
til hervarna, til rannsókna og þró-
unar á öðrum valkostum en kjarn-
orku. Sólar-, vind- og vatnsorka
gefa vonir um orkuframleiðslu og
rannsóknir á kostum þeirrar orku
ætti að hafa forgang. Þrýstingi
verður að beita gagnvart stjórn-
völdum svo draga megi úr kostnaði
til vopnakaupa og beina þeim fjár-
munum til þróunar tækni sem veitir
valkosti varðandi orkunotkun.
HVAÐ GETA
HJÚKR UNARFRÆÐINGAR
GERT?
Helen Caldicott er ástralskur
læknir. Hún segir að hefðum og al-
mennum skoðunum um kjarnorku-
stríð, verði ekki breytt fyrr en fólk
leiði hugann að vistfræðilegum og
heilsufarslegum tengslum. Sam-
kvæmt hefð eru hjúkrunarfræðing-
ar hægfara í pólitískri þátttöku.
Þessu verður að breyta. Allir hjúkr-
unarfræðingar eru hvattir til að
styðja ástralska hjúkrunarsam-
bandið, (þ.e. ANF = Australian
Nurses Federation) á þingi ICN, til
að sameina þátttakendur gegn
hættunni sem stafar af kjarnorku-
styrjöldum og framleiðslu kjarn-
orku.
FRIÐUR ER OKKAR FAG!
Ekkert fær ráðið við afleiðingar
kjarnorkustríðs.
Slagorðið er: FRIÐUR ER
SMITANDI!
Orlofsíbúð HFI
að
Suðurlandsbraut 22
Orlofsíbúðin verður leigð
félagsmönnum í vetur
til lengri eða skemmri tíma
ísenn.
Skrifstofa HFÍ,
sími 68 75 75.
Landlæknir . . .
Framhald af bls. 36
yrði að taka tillit til allra aðstæðna í
slíku máli, en tæpast yrði slíkt tilvik
að öllu jöfnu skilgreint sem dráp.
Brýnt er að gæta hófs og tillits-
semi í þessari umræðu og til þess að
vekja ekki ugg og kvíða meðal fólks
er nauðsynlegt að þeir, sem vinna
með sjúklingum, hjálpi til við skil-
greiningu orða og hugtaka.
Við verðum vissulega að hafa til-
finningu fyrir hugtökum en einnig
fyrir fólki.
HJÚKRUN Vk-66. árgangur 39