Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2002, Page 48
Námskeíð í umönnun eínstaklínga
með heilabílunarsjúkdóma
Svava Aradóttir, hjúkrunarfræðingur, rekur fyrirtæki í Dan-
mörku og býður starfsfólki hjúkrunarstofnana á Islandi og í
Danmörku námskeið i umönnun heilabilaðra. Svava er fædd á
Dalvík og byrjaði að vinna 15 ára gömul á Kristnesi við
umönnun aldraðra þar og þá jafnframt umönnun einstaklinga
með heilabilunarsjúkdóma. Hún segist þá ekki hafa vitað
mikið um þau mál, fólk hafi bara verið kallað kalkað á efri
árum. Hún útskrifaðist sem sjúkraliði frá FSA 1974 og sem
hjúkrunarfræðingur frá Gautaborg 1980 og flyst til Kaup-
mannahafnar 1992 og vinnur við hjúkrun einstaklinga með
heilabilunarsjúkdóma. Á árunum 1995-1997 segir hún áhuga
sinn á heilabilun hafa vaknað fyrir alvöru. 1997-2001 var hún
deildarstjóri á heimili fyrir aldraða en þar var mestur hluti
vistmanna með einhvern heilabilunarsjúkdóm. Á þessum tírna
fór hún í sérnám í umönnun einstaklinga með heilabilunar-
sjúkdóma, fór að kenna um heilabilun og umönnun einstakl-
inga með sjúkdóminn, kenndi hjúkrunarnemum og hélt nám-
skeið fyrir starfsfólk, faglært sem ófaglært. Árið 2000 stofn-
aði hún svo Nordic Lights. En hver var kveikjan að því?
„Ég hafði svo oft séð að starfsfólkið hafði ekki þá þekk-
ingu sem nauðsynleg er til þess að það gæti valdið þeim
erfiðu og flóknu verkefnum sem það er að fást við daglega i
vinnu sinni með einstaklingum með heilabilunarsjúkdóma.
Aðstæður verða oft og tíðum óþarflega erfiðar og togstreita
myndaðist, hreinlega vegna vanþekkingar á sjúkdómnum og
afleiðingum hans á hegðun einstaklingsins.
Það er erfitt að fá hæft starfsfólk og erfitt að halda í það og
það er mikil fjarvera hjá fólki sem starfar innan þessa geira.
Ég er sannfærð um að ef starfsfólkið fær meiri þekkingu á
sjúkdómnum og hvernig það á að kljást hin ýmsu vandamál
sem koma upp getum við gert þetta starf meira heillandi og
eftirsóknarvert,“ segir Svava.
Hún segir afar krefjandi en jafnframt gefandi, bæði fag-
lega og persónulega, að annast einstaklinga með heilabilunar-
sjúkdóma. Alrnenn þekking um þá sjúkdónra sé oft takmörkuð
og brýn þörf að ráða bót á því. Enginn vafi sé á því að líðan
hins sjúka og þeim sem næst honum standa verði bærilegri
þegar starfsfólkið hefur fengið þá þekkingu sem nauðsynleg er
til að skilja sjúkdóminn betur og afleiðingar hans og hefur þar
með betri möguleika á að valda verkefnum sinum sem best.
Því miður hafi faglegur metnaður og virðing ekki mikið verið
tengdur þessum hluta umönnunarstarfsins en sem betur fer séu
viðhorf að breytast.
En á hvað er lögð áhersla á námskeiðunum? „Ég legg
áherslu á umönnun út frá andlegu og félagslegu umhverfi hins
sjúka, lífssögu hans, og nota m.a. atferlisskráningu við lausn
vandamála í hjúkruninni. Rauður þráður í námskeiðum
minum er mikilvægi þess að skilja hegðun hins sjúka fremur
en að reyna að breyta henni.
Námskeiðin byggjast á aðferðum þróuðum af Nordic
Lights ásamt hugmyndafræði Tom Kitwood þar sem persónu-
leiki, styrkur, viðurkenning og innlifun eru hlutar af einni
heild.
Hlutverk Nordic Lights er að bjóða námskeið með háum
gæðastuðli þar sem lögð er áhersla á að unnið sé faglega að
málum en um leið séu manneskjuleg gildi og samspil milli
hlutaðeigandi aðila í brennidepli. Meginmarkmiðið með þeim
er að aðstoða heilabilaða einstaklinga, fjölskyldur þeirra og
starfsfólkið sem annast þá, til að öðlast auðveldara og betra
daglegu lífi.“
Svava heldur námskeið á íslandi í október, m.a. opið
námskeið í Reykjavík um miðjan mánuðinn.
Heimasíða Nordic Lights er www.nordic-lights.dk
240
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 4. tbl. 78. árg. 2002