Norðurslóð - 27.01.1982, Page 4
Að heiman ég fór
Framhald af baksíðu.
ncfnilega þar sem leiðir þeirra
hjóna, Júlíusar Daníelssonar og
Þuríðar Árnadóttur lágu fyrst
saman, við kennslustörf í Hring
brautarskólanum hjá Árna!
B.G.)
En áfram með smjörið úr kirnu
Árna:
- Um skólamálin getum við
ekki rætt hér, en mig langar þó
að láta koma fram í þessu spjalli
er ég beitti mér fyrir stofn-
un svokallaðrar verslunardeild-
ar við Gagnfr.sk. við Hring-
braut. Sú tilraun tókst mjögvel,
og kom fljótt í ljós að miicil þörf
var orðin á slíku námi sem
komið gæti fólki að notum við
hin ýmsu þjónustustörf. Aðrir
skólar komu síðar í kjölfarið og
stofnuðu slíkar deildir en þær
nefndust síðar verslunarbrautir.
Hagaskólinn varð fljótt mjög
fjölmennur skóli, og er ég hætti
þar skólastjórn árið 1967 voru í
skólanum hartnær 1000 nem-
endur og fjöldi kennara að
sjálfsögðu í hlutfalli við það.
Mörgum þótti undarlegt að
.ég hætti skólastjórn um sextugt,
en ástæðan var einvörðungu sú
að ég taldi veg stofnunar-
innar allgóðan á þessum tíma,
og vildi ekki undir neinum
kringumstæðum bíða eftir því
að halla færi undan fæti vegna
hækkandi aldurs míns. Hef ég
aldrei iðrast þeirrar ákvörðun-
ar.
Eftir að ég hvarf frá skóla-
stjórn gerðist ég stundakennari
við K.H.Í. og fleiri framhalds-
skóla. Þegar allt kemur til alls
hef ég víst kennt samfellt fast að
50 ár.
En er hér ógetið að Arni
Þórðarson er höfundur nokk-
urra kennslubóka, sem hafa
orðið býsna langlifar á þeim
skólastigum er nú kallast grunn-
skóli og í flestum framhalds-
skólum. Má. þar nefna staf-
setningarkennslubók og staf-
setningarorðabók, en þœr
samdi hann ásamt starfsbróður
sinum, Gunnari Guðmunds-
syni. Einnig bókmenntaúrval i
fjórum heftum, en þar eru höf-
undar með honum nefndir G. G.
og Bjarni Vilhjilmsson þjóð-
skjalavörður.
Við spyrjum um deili á hús-
freyjunni sem Árni kallar Göggu
og tekið hefur hlýlega á móti
okkur með kaffiveitingum:
- Er ég var orðinn 32ja ára
gamall hafði ég loksins upp-
burði í mér til að biðja mér konu
Árni kímir og segir glettnisleg-
um róm: Ef ég hef þá nokkurn
tíma beðið hennar. Hún heitir
Ingibjörg Einarsdóttir og er frá
Stykkishólmi. Börnin eru tvö,
Steinunn, húsfreyja í Reykjavík
og Einar, verslunarstjóri á ísa-
flrði. Barnabörn eigum við sex.
Mikið efni varð að bíða
næsta blaðs. Viðkomendur
eru beðnir velvirðingar.
Auglýsið í Norðurslóð
Það borgar sig í bráð
og lengd
Takið eftir
Hefur þú áhuga á að lesa
danskar smásögur í 5-6
manna hópi?
Ef svo er, hafðu þá sam-
band fyrireða um helgina.
Byrjum á þriðjudagskvöld
og verðum í Laugasteini.
Steinunn.
Ef inni er þröngt. . . .
Hvað hefur þú núfvrir stafni
Arni?
- Enn hef ég nóg að gera. Ég
er m.a. á kafi í að gefa út hesta-
mannablaðið Eiðfaxa. Þetta er
mikið og veglegt rit sem kemur
út einu sinni í mánuði og krefst
þess vegna mikillar og stöðugr-
ar vinnu. Ekki ber að skilja mig
svo að ég einn komi þar við
sögu, þar leggja margir hönd á
plóginn.
Eg er reyndar einn af þeim
sem geng með hestadellu er
sumir kalla því óvirðulega nafni
,,hrossasótt“. Síðastliðin 20 ár
hef ég notið samvista við
íslenska hestinn bæði vetur og
sumar. Ég fóðra hesta mína
sjálfur í góðum félagsskap hesta
unnenda og hef farið langferðir
um heiðar og hálendi íslands á
hestbaki, m.a. tvisvar norður
Sprengisand. Þar mætti margt
um segja, en nú er nóg komið í
bili.
Liðið er á daginn orðið
koldimmt og komin kvöldmat-
arlykt í hverfið. Við kveðjum
þau hjón, Árna og Göggu á
heimili þeirra að Kvisthaga 17
og þökkum fyrir spjallið.
Brynja/Júlíus.
Bréf til Norðurslóðar
Nokkrar fleiri uppyngingar?
Kæru vinir norðan fjalla.
Sendi Norðurslóð og vanda-
mönnum blaðsins bestu óskir
um farsæld á nýju ári um leið og
ég þakka allt gamalt og gott.
Þó þakka ég ekki, að þið
skulið láta mig gata i Getraun
fyrir gáfaða og það á tveim-
ur spumingum, svo að allt hitt
erfiðið verður til einskis. Eg er
því ekki til viðtals um þá síðu
blaðsins, þar sem mér skilst að
Sú lauflétta veiti enga viður-
kenningu!
Þess vegna fletti ég blaðinu
aftur á síðu 23. Þar er jóla-
krossgátan. En um leið og ég
kem auga á krossgátu eða
myndagátu get ég hvorki neytt
svefns né matar fyrr en lausn er
fengin, þó að sjaldan nenni ég að
senda hana tilbaka. Geri þó
undantekningu nú, þar eð ég
komst að því, þegar ég hafði fyllt
úr alla reiti og fór að sícrá
númerin á blað, að vísan er
gamall vinur minn frá þeim
árum, er ég sat á kné föður míns
og hann kvað við mig.
Hún er svona:
Mastrið syngur sveigt í keng,
seglið kringum hljómar.
Raddir þvinga úr stagi og streng
stormsins fmgurgómar.
Steph. Stephansson.
Það er annast furðulegt, hve
gamlar vísur geta verið breyti-
legar í munni fólks. Stundum
getur líka verið, að höfundar
hafi breytt þeim. En þó að ég sé
ekki allskostar sammála Jónasi
í Koti, hafði ég þó gaman af
þættinum Gamalt vísnahrafl.
Þökk fyrir ánægjulegt blað og
þau tengsl, sem það skapar milli
farfuglanna að heiman og þeirra
sem halda tryggð við gamlar
bemskuslóðir.
Kær kveðja.
Lilja S. Kristjánsdóttir
frá Brautarhóli.
P.S. Yngið þið nokkra fleiri upp
heldur en frænku mina, hana
Önnu Stefánsdóttur frá Gröf?
Þakkarávarp
Við sendum öllum þeim einstaklingum og félags-
samtökum, sem auðsýndu okkur hlýhug og örlæti
með ýmsu móti um jólahátiðina, bestu kveðjur og
kærar þakkir.
Lifirð heil.
Heimilisfólk og starfsfólk Dalbæ.
Þakkarávarp
Hjartans þakkir til skyldra og vandalausra, sem
glöddu okkur með heimsóknum, gjöfum og skeytum
i tilefni 50 ára hjúskaparafmælis okkarþann 7. janúar.
Guð blessi ykkur öll.
Unnur Sigurðardóttir
Guðjón Sigurðsson
Svæði.
AUGLÝSING
Hjá Dalvíkurbæ eru laus til umsóknar eftirtalin störf:
starf við Hita- og Vatnsveitu Dalvíkur, kunnátta í járn-
iðnaði áskilin.
starf þungavinnuvélstjóra, æskilegt er að umsækj-
endur hafi lokið námskeiðum í meðferð þungavinnu-
véla.
tvö störf við almenna vinnu hjá bæjarverkstjóra.
Umsóknir sendist undirrituðum fyrir 10. febrúar
1982, sem jafnframt veitir nánari upplýsingar.
Bæjarstjórinn Dalvík
Valdimar Bragason.
Fyrir 30 kr. á mánuöi áttu kost á
ríflegum glaöningi sem getur
gerbreytt fjárhagsstöðu þinni.
Haföu þessar staöreyndir í huga:
Allarþær136 milljónirsem HHl
greiðirí vinninga íáreru
skattfrjálsar.
Milljónin sem getur lentá
trompmiðanum er þaö líka.
Ekkert annaö happdrætti
hefur hærra vinnigshlutfall.
Vinningaskrá:
9 @
9 —
9 —
198 —
1.053 —
27.198 —
106.074 —
200.000 -
50.000 -
30 000 -
20.000.-
7.500-
1.500-
750,-
1.800 000 -
450.000-
270.000-
3.960 000 -
7 897 500,-
40.797 000 -
79.555,500-
Vinningar eru 135 þúsund talsins.
Allt í þeinhörðum peningum.
>lý) fjiy Þú þarft ekki aö hafa fjármálavit til aö
reikna út aö þaö er svo sannarlega
tilvinnandi aö spila meö
...
ma
Freistaöu gæfunnar!
r
•■■■•••*
iiiiaaaia ••••••! ■ ■■•
•••• •• ■ •••• ■ ■■■
•••■ •• 1 •••• • •••
• • ■*•
•••• •• •••• •• ■ ■■■■ • •■•■■« •■■■■•1 • ••• • •••
L. •■•••1 • ••• A
134 550 134.730.000-
450 — 3.000 - 1 350 000-
135 000 136.080.000-
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
hefur vinninginn
I
C/J
4 - NORÐURSLÓÐ