Norðurslóð


Norðurslóð - 13.12.1983, Side 3

Norðurslóð - 13.12.1983, Side 3
Líf í tuskunum Árshátíð Svarfdælinga í Reykjavík 19 nóv. ’83 Árshátíð Svarfdælingasamtak- anna í Reykjvík og nágrenni, var haldin laugardagskvöldið 19 nóv. Veður var einstaklega gott, kyrrt og fagurt, enda fjöl- menntu Svarfdælingar á sam- komuna. Það kom sem sagt á daginn, sem menn höfðu vonast eftir að „setinn væri Svarfaðar- dalur/Seltjarnar á lágu nesi“. Sérstaka ánægju vakti það að sjá hve margt ungt fólk sótti nú samkomuna. Meðal gesta af eldri kynslóð var frú Halldóra Eldjárn, en þau hjón voru áður °g fyrr jafnan þátttakendur í þessum mannfagnaði og Kristján Eldjárn raunar einn aðalhvata- maður að stofnun Samtaka Svarfdælinga. Ekki spillti fyrir að allmargir heima-Svarfdæl- ingar og Akureyrar-Svarfdæl- ingar komu suður til þess að vera á hátíðinni. Okkur hér syðra finnst aldeilis ómissandi að fá einhverja að norðan á þessar samkomur. Valdemar Óskarsson, for- maður samtakanna, setti mótið með ávarpi, en þá tók veislu- stjóri, Gunnlaugur V. Snævarr, við og stjórnaði dagskrá með miklu fjöri, eins og hans var von og vísa. Meðal skemmtiatriða var kórsöngur og tvísöngur: Nýstofnuð söngsveit samtak- anna - ég vil leyfa mér að nefna hana Söngsveit Svarfdælinga sunnan íjalla - söng sjö lög undir stjórn Kára Gestssonar. Halla Jónasdóttir og Kolbrún Arngrímsdóttir sungu tvísöng. Þá flutti Sólveig Brynja Grétarsdóttir minni byggðar- innar, Valdemar ÓskarsSon ræddi stuttlega um starfsemi samtakanna og Björn Halldórs- son flutti gamalt gamanbréf og loks var stílfærð kröfuganga fyrir jafnrétti kynjanna með kostulegum búningum ogkröfu- Valdimar formaður í ræðustól. Ljósm. J.J.D. spjöldum. Léku eintómir karl- menn þar kvenhlutverk, en í þeim hópi var einn gestanna að heiman, Sigurður Marinósson frá Brekku. Tveir gestir að norðan áttu merkisafmæli þennan dag: Brjánn Guðjónsson frá Skálda- læk varð sextugur og Eiður Steingrímsson frá Ingvörðum átti fertugsafmæli. Voru þeir kallaðir upp á svið og þeirn árnað heilla. Tryggum árs- hátíðargesti að heiman, Ríkharði Gestssyni í Bakka- gerði, sem nú liggur á sjúkrahúsi vegna slyss, var send kveðja í skeyti. Dansað var af miklu fjöri fram eftir nóttu við dillandi músík hljómsveitar Villa frá Karlsá og í einu hléinu flutti einn hljómsveitarmannagaman- vísur. Samkoman fór hið besta fram í alla staði og var hin besti mannfagnaður. J.J.D. „Söngsveit Svarfdælinga Sunnan Fjalla.“ Söngstjóri Kári Gestsson. Ljósm. Páll Sveinsson. Frá Leikfélaginu Hvað er að frétta af Leikfélagi Dalvíkur? Jú, nú er verið að æfa Ieikritið „Þið munið hann Jörund“ eftir Jónas Árnason. Þetta er fyrsta verkefni L.D'. á þessu leikári, sem er hið 40. frá upphafi, því leikfélagið var stofnað 19. janúar 1944, og er meiningin að frumsýna Jörund á afmælinu. Um 20 manns taka þátt í sýningunni. Leikstjóri er Arnar Jónsson og leikur hann einnig eitt hlutverkið. Einnig er fyrirhugað að halda upp á afmæli með árshátíð þann 21. jan. í Víkurröst og verður það auglýst betur síðar. K. Söngur um jólin. Samkór Dalvíkur hefur starfað haust og mun nú um jólin syngja jólalög meðal annars á götum úti og sem hluti af dagskrá á vegum Tónlistaskólans í Víkur- röst. Á söngskránni eru þekkt jóla- lög bæði íslensk og erlend. Söngstjóri er Colin Virr en formaður kórsins er Heimir Kristinsson. Gleðileg jól, farscell komandi ár Á kóræfingu heima hjá Agli og Þuríði að Bugðulæk 1 Reykjavík. Ljósm. J.J.D. Áramót í Böggvisstaðafjalli. Allt frá upphafi hafa skátar á Dalvík séð um ,,Ártalið“ svo- nefnda, sem nú hefur birst Dalvíkingum í meira en 20 ár. Það var sennilega um áramótin ’62-’63, sem nokkrirungirskátar stóðu fyrir því að setja upp kyndla í Böggvisstaðafjalli og mynda með þeim stafi, ártalið. Fyrirmyndina hafa þeirhugsan- lega sótt frá Akureyri, en þar hafa skátar sett upp ártal í Vaðlheiðina til íjölda ára. Ár- talið var síðan sett upp í nokkur ár, en féll svo niður í ein 2-3 ár, eða til ársins 1971 er nýir umsjónarmenn tóku við því, og sjá þeir um það enn. Á þessum árum voru stafirnir í sífelldri þróun, og var hæð þeirra stækkuð úr 30 m. í 70 m. og lengdin milli fyrsta og síðasta stafs varð hátt í 200 m. þessi stærð er á því enn í dag. Ártalið er, eins og áður segir, ofarlega í Böggvisstaðafjalli í mjög brattri brekku. Járnteinum er stungið í snjó- inn með 10 m. millibili og þeim raðað þannig að þeir myndi þá stafi sem ákveðið er. Járn- baukar, fylltir af olíu og tjöru- hamp, eru síðan hengdir á þessa teina. Fjöldi kyndlanna er nokk- uð misjafn eftir því hvaða ár er, en að meðaltali eru þeir um 80. Núna síðustu ár hefur verið farið í fjallið uppúr hádegi á gamlársdag, með ca: 100 kg. af járni í kyndlana og 100 1 af hráolíu. Reynt hefur verið að nota snjósleða eins mikið og hægt er við þennan flutning og um síðustu áramót fengum við ferð með snjótroðaranum hjá skíðafélaginu, sem létti af okkur miklu fargi. Þegar lokið er við að stilla upp teinunum, er tekin pása til kvöldsins, og um 22.30 er svo haldið í fjallið á ný. Þá er tekið til við að hella olíunni á kyndlana og stuttu fyrir mið- nætti er svo kveikt í. Þegar áramótin renna upp, og kirkjuklukkurnar taka að hringja, er svo ártalinu breitt í það ár sem upp er að renna. Þegar veður er bjart sést ártalið mjög víða t.d.: Hrísey, Grenivík, Árskógsströnd ásamt Dalvík og hluta Svarfaðardals. Kyndlarnir fá að brenna út og er safnað saman á nýársdag og komið í geymslu til næstu áramóta. Að lokum vonum við að veðurguðirnir verði okkur hlið- hollir um næstu áramót, svo hægt verði að setja upp ártalið í ár, sem þykir orðið svo ómiss- andi þáttur í áramótafagnaði manna, hér um slóðir, um hver áramót. Skátafélag Dalvíkur. Nýjársnótt 1983. Þakkar- og saknaðarkveðjur sendum við eigendum og starfsfóiki prent- smiðju Björns Jónssonar i Skjaldborg nú þegar nýir menn taka við fyrirtækinu. Hjálpsemi og þolinmæði þessa fólks i garð okkar Norðurslóða hefur verið alveg takmarkalaus þau 6 ár, sem við höfum átt saman að sælda. Við óskum þeim öllum velfarnaðar í störfum framvegis. Gleðileg jól farsælt komandi ár. Norðurslóð. NORÐURSLÓÐ - 3

x

Norðurslóð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.