Norðurslóð - 13.12.1983, Side 8
JOL I NOREGI
Jólakvöld heima á Brottum.
í Noregi eru jól hringd inn á
miðnætti 23. des. (Dagurinn
heitir ekki Þorláksmess eins og
hér á íslandi.) Þá er hringt í
öllum kirkjuturnum. Um þetta
leyti er allt heimilisfólk á
þönum, dauðhrætt um að
gleyma nú einhverju, sem gera
þarf fyrir morgundaginn, áður
en það fer í háttinn.
Hið hefðbundna grenitré
lummur (lefsur) heimabruggað
öl og ýmislegt fleira, sem
tilheyrir jólaborðhaldi.
Eftir morgunverðinn sníglast
dagurinn áfram og hver sýslar
við sitt. Ég fyrir mitt leyti fer út í
hesthús, legg aktygi á hestinn,
festi bjöllurnar við og spenni
hestinn fyrir sleðann og fer í
ökuferð inn í snæviþakinn
skóginn með nokkrum vinum.
en farið er í kirkju kl. 5 e.h.
Sá sem möndluna fær á að fá
dálítinn jólapakka fyrirfram,
svo grauturinn smakkast ennþá
betur fyrir bragðið.
Það sem eftir verður af
grautnum læt ég í skál með sleif í
og fer með út í hesthús handa
jólasveininum (nissanum). Það
er nefnilega jólanissi í öllum
hesthúsum og fjósum og honum
■&loejúg.
Vetrarstemning nærri Lillehammer.
stendur skreytt í stofunni og
allir jólasveinarnir komnir á
sinn stað. Síðan fellur ró yfir
húsið og nóttin líður.
Næsta morgun vekur mamma
okkur og hún er þá búin að setja
jólamorgunverð á borðið. Það
er grísasulta, heimabakaðar
Þegar við komum til baka
skiljast leiðir, og við óskum
hvert öðru gleðilegra jóla. Eftir
að ég hef gert reglulega jólalegt í
hesthúsinu fer ég inn. Þá er
mamma búin að sjóða stóran
pott af rúsínugraut með
möndlu í. Hann á að borða áður
má aldrei gleyma á jólakvöld.
Klukkan er orðin hálf 5 og við
förum til kirkjunnar. Messan
stendur í einn klukkutíma.
Kl. 6 eru allir komnir heim og
við, sem höldum þessi jól
saman, erum komin inn og
Þetta er ykkar
H HJTIAF KÖKUNNI
HANNER
LANGSTÆRSTUR
Happdrætti Háskólans hcldur upp á 50
ára afmæli með glæsilcgri vinningaskrá. Vinnings-
upphæðin er tvöfalt hærri en á liðnu ári, og mögu-
leiki er á 9 milljón króna vinningi á eitt númcr.
Ævintýralegt. En það eru líka 5000 aukavinningar á
15.000 krónurhver, auk fjöldaannarra vinninga.
HHÍ heldur enn hæsta vinningshlutfalli í heimi,
7/10 „kökunnar" kemur í hlut ykkar, sem spilið
með og hljótið vinning.
Líttuinnhjáumboðsmanninum. Þar
færðu miða- og möguleika á vinningi.
VINNINGASKRÁ
9
9
207
2.682
21.735
109.908
1.000.000
200.000
100.000
20.000
4.000
2.500
134.550
450 aukav. 15.000
9.000.000
1.800.000
20.700.000
53.640.000
86.940.000
274.770.000
446.850.000
6.750.000
453.600.000
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
liapp í liáljh öld
athafnir kvöldsins geta byrjað.
Fyrst er það kvöldmaturinn
kl. 7, þ.e. svínakjöt ogjarðarber
í rjóma fyrir desert. Þvínæst
göngum við í kring um jólatréð
og syngjum jólasálma. Þegar
þeir yngstu eru orðnir þreyttir á
að ganga kringum tréð, er jóla-
guðspjallið lesið.
Þá er loksins kominn tími til
að taka á móti jólasveininum,
sem kemur með gjafirnar.
Það sem eftir er kvöldsins fer í
að borða meira góðgæti. Smátt
og smátt verða menn syfjaðir og
skríða i bólið sitt einn af öðrum
rétt eins og önnur kvöld.
Sólveig með Blesa sinn.
Og þá er jólakvöldið búið -
og það kemur ekki aftur fyrr en
eftir heilt ár.
Góða nótt
Solveig Sörum,
fjósakona á Tjörn.
Má ég kynna?
í þetta skipti ætlum við að kynna
rétta og slétta fjósakonu, svo ekki
sé hægt að brigsla okkur um
höfðingjasleikjuskap. Hún vinnur
á Steindyrum hjá Ármanni bónda
og Ernu konu hans. Hún heitir
Marie Therese Robin fullu nafni,
en bara kölluð María, 24 ára
gömul og á 5 systkini.
María er frönsk, nánar til-
tekið er hún frá miðjum
Bretaníuskaga rétt hjá smábæ,
sem heitir Neulliac. Foreldrar
hennar eru bændur. Býli þeirra
er 53 ha að stærð. Þau hafa 30
mjólkurkýr af stóra frísneska
kyninu, svarskjöldóttar. Árs-
nytin er hátt í 7000 lítrar að
meðaltali, sem er talið mjöggott
þar um slóðir. Mjólkin fer í
samlagið í bænum Loudeac (frb.
Lúdíakk). ÞaðerKEA-iðokkar,
segir María.
Svo er ræktað hveiti, baunir
og ertur til sölu og bygg og maís
til fóðurs kúnum. Afgangurinn
er graslendi. Pabbinn ræktar
líka mikið af eplum og gerir
eplavín (cider) og hefur leyfi til
að eima það og framleiða sterkt
vín, calvados.
María hefur ferðast dálítið
m.a. verið hálft ár í Þýskalandi
og eitt ár í Kanada. Undanfarin
2 ár var hún samt í búnaðarskóla
heima hjá sér, en vildi
svo
María fjósakona.
gjarnan sjá eitthvað meira af
heiminum áður en það væri of
seint.
Nú hefur hún ákveðið að snúa
heim aftur á þessu ári og hefja
félagsbúskap með foreldrum
sínum.
Fjölskyldan er kaþólsk eins
og flestir Frakkar, en ekki
sérlega kirkjurækin. Samt fara
þau jafnan í kirkju á aðfanga-
dagskvöld. Það er gaman að
hugsa heim til bernskujólanna,
segir María, þegar maður er
svona langt í burtu. Það er samt
engin heimþrá í mér, jólin eru
líka hér á Islandi og nú hlakka
ég til þeirra.
Mænusóttarbólusetning
Ónæmisaðgerðir vegna mænusóttar fyrir
fullorðna eru framkvæmdar á Heilsugæslu-
stöðinni á Dalvík á milli kl. 13-16 á mánu-
dögum.
Minnum árganga fædda ’62, ’63 og ’64 á
endurbólusetningu.
Heilsugæslustöðin Dalvík.
Tilkynning frá:
Heilsugæslustöð Dalvíkur
Afgreiðslan er opin 8.30 - 12.00 f.h.
og 13.00 - 16.00 e.h.
Viðtalstímar lækna: tímapantanir.
Símatímar lækna: 11.00 - 12.00 f.h.
Heimasímar lækna: Bragi Stefánss. 61385,
Sigurgeir M. Jenss. 61664.
Athugið: að nota símatíma lækna fyrir
hádegi, nema um mjög áríðandi tilfelli séað
ræða.
8 -NORÐURSLÓÐ