Norðurslóð - 13.12.1983, Side 20
Böm Móðuharðindanna.
Frh. af síðu 19.
unum. Hún bjó ekkjaá Hrísum í
10 ár. Síðustu árin á Hrísum bjó
á móti henni þar Jón sonur
hennar og Sesselja kona hans,
en þau fluttu svo í Hvammkot(í
Arnarneshr.). Þáflosnaði Þórey
upp frá Hrísum, en fór í
húsmennsku til Jóns í Hvamm-
koti. En þessi piltur Jón er
enginn annar en sá mikli
ættfaðir Jón í Hvammkoti. (Sjá
í Svarfdælingum Hrísar II.)
Þórey fór aftur að búa með
yngri börnum sínum, fyrst á
Hallgilsstöðum í Hörgárdal, en
síðan á Hofi í sömu sveit og dó
þar skömmu síðar rúmlega
sextug. Um hana er sagt:
„Þórey var greind kona, vel
fróð, góðlynd og siðprúð“.
Jón og Sesselja í Hvammkoti
voru foreldrar Jóns í Kálfs-
skinni (sjá Ytra-Holt) föður
Sigurðar á Böggvisstöðum
föður Þóru þar, móðurömmu
minnar.
Öldungurinn Þorvaldur
Gunnlaugsson, áður stórbóndi
á Sökku, lést þar 1785. Þá tók
dóttir hans og Jón tengdasonur
hans við öllu búinu. Hann var
bróðir Rögnvalds bónda á Hóli
út. Ekkja Þorvalds bónda.
Guðrún, lést 1786. Búið á
Sökku gekk mjög til þurðar
harðindaárin, fór t.d. úr 60
kindum niður í einar 6.
Þorvaldur á Sökku var
tengdafaðir Þorvalds á Ingvör-
um Sigurðssonar á Búrfelli, en
Þ. bóndi á Ingvörum lést 1785.
Hólmfríður Þorvaldsdóttir frá
Sökku, ekkja hans, bjó áfram
með börnum sínum í æsku, en
giftist aftur fljótlega og missti
þann mann innan árs úr bólu-
sótt. Hún bjó 3 ár á Ingvörum
eftir lát síðara mannsins, bjó
síðan um skeið í Gljúfurárkoti
og síðast í Hverhóli þá í skjóli
Þorvaldar sonar síns, sem síðar
fluttist í Kálfsskinn.
Það gekk því á ýmsu hjá
hessari konu, en upp kom hún
börnum sínum og var það ekki
lítið afrek út af fyrir sig. Hún
varð 68 ára gömul. Um Hólm-
fríði er sagt: „Hún var vel
lesandi, sæmilega að sér og
vinnusöm".
Hólmfríður og Þorvaldur á
Ingvörum voru foreldrar Gunn-
laugs á Hellu föður Þorvalds á
Krossum föður Baldvins á
Böggvissstöðum móðurafa
míns.
Það er mikill manngrúi kom-
inn út af þessum konum,
Þóreyju á Hrísum og Hólmfríði
á Ingvörum, sem báþar urðu
ekkjur í Móðuharðindunum, og
unnu það afrek að halda lífi með
börnum sínum og koma þeim
upp til fullorðinsára.
Kvenfólkið lætur ekki mikið
yfir sér í ættartölum. Ég hef um
æfina talsvert heyrt nefnda bæði
Jón í Hvammkoti og Þorvald á
Ingvörum, þegar talið hefur
borist að ættum. En varla
nokkurn tímann hef ég heyrt
minnst á Hólmfríði á Ingvörum
né Þóreyju á Hrísum. Þórey var
þó móðir hans Jóns og Hólm-
fríðúr móðir barnanna hans
Þorvalds.
Móðir Sigurðar á Steindyrum,
Guðrún Þorleifsdóttir, bjó á
S-Más'stöðum í upphafi Móðu-
harðindanna ásamt síðari manni
sínum, Jóni Einarssyni og
tveimur uppkomnum sonum
þeirra, Sigurði og Jóni. í júní
1784 lést Jón sonur þeirra, 24
ára og í október Sigurður, 22
ára. Sjálf lést Guðrún húsfreyja
1785. Þau virðast ekki hafa átt
önnur börn saman.
Guðrún átti Sigurð bónda á
Steindyrum með fyrri manni
20 - NORÐURSLÓÐ
sínum, Sigurði Erlendssyni í
Árgerði. Sigurður Sigurðsson
virðist hafa verið farinn að búa
á móti stjúpa sínum á S-Más-
stöðum, en flutti í Steindyr
harðindaárið 1784 með sáralít-
inn bústofn eða 2 kýr, 6 kindur
og 2 hross. Hann náði sér aldrei
upp úr fátæktinni og lést 1804.
En kona hans, Sigríður
Höskuldsdóttir, lifði hann lengi,
bjó áfram á Steindyrum og var
síðan húskona þar, en lést á
Húnstöðum í Stíflu hjá dóttur
sinni 77 ára að aldri.
Sigurður var skýrleiksmaður
og í betra lagi að sér og Sigríður
var meinhæg kona, þrifin og
vinnusöm, en ólæs og lítið
upplýst. Þessi hjón Sigurður og
Sigríður á Steindyrum voru
foreldrar Jóns bónda á Dæli
föður Sólveigar föðurömmu
minnar á Ytra-Hvarfi.
Á Hæringsstöðum bjó Ólafur
Sigurðsson og Helga kona hans
Jónsdóttir árin 1780-1800. Þau
voru jafnan fátæk, áttu mörg
börn og urðu kynsæl mjög.
Eftir Móðuharðindin áttu þau2
kýr, 6 kindur og 1 hross, en
verslunarskuld þeirra var 17
ríkisdalir. Ólafur þótti skilvís
maður og sæmilega að sér.
Helga var vinnusöm, þrifin og
sæmilega læs og skrifandi. Hún
dó eftir langvarandi kröm og
brjóstveiki 67 ára gömul.
Ólafur og Helga voru
foreldrar Guðrúnar móður
Oddnýjar í Dæli móður
Sólveigar föðurömmu minnar á
Ytra-Hvarfi.
Lárus Hannesson Scheving
lést að Garði í Kelduhverfi 1784
61 árs að aldri. Hann bjó um
skeið mjög góðu búi á Urðum í
Svarfaðardal, var talinn vel
ríkur. Hann fékk hálft um-
boð Múnkaþverárklaustursjarða,
þingeyska hlutann, og fluttist í
Þingeyjarsýslu, fyrst að Laugum
í Reykjadal, síðan að Garði í
Kelduneshreppi, þar sem hann
lést. Lárus var hógvær og
sanngjarn og fékkst ögn við að
yrkja. Kona hans var Anna
Björnsdóttir prófasts á Grenjað-
stað. Lárus Scheving var bróðir
Þórunnar konu Jóns Stein-
grímssonar, eldklerksins á Síðu.
1783 lést Jórunn, dóttir
Lárusar og Önnu að Prest-
hvammi í Aðaldal, 29 ára að
aldri, kona Þorsteins Hallgríms-
sonar djákna á Grenjaðarstað.
Hún var móðir sr. Baldvins á
Upsum og þriggja annarra
presta þeirra sr. Kristjáns á
Tjörn, Bægisá og víðar, for-
föður Tjarnarmanna, sr. Stefáns
á Völlum, föður Skafta, sem
Jónas kvað um eftirmæli og sr.
Hallgríms á Hrauni föður
Jónasar skálds.
Þegar prestsefnin ungu misstu
móður sína var Baldvin, þessi
langa-langafi minn og systkina
minna, Baldvins og Jórunnar,
tveggja ára.
Þorsteinn kvæntist aftur og
varð síðar prestur í St-Árskógi.
Sr. Baldvin, síðasti presturinn á
Upsum, var faðir Snjólaugar
konu Þorvaldar á Krossum og
móður Baldvins á Böggvisstöð-
um móðurafa míns.
Ingimundur Gunnlaugsson,
ekkjumaður, og Guðmundur
sonur hans bjuggu í Sælu
harðindaárin. Ingimundur lést í
Sælu 1790, 77 ára að aldri og
hafði alltaf búið í sárafátækt.
1786 er Guðmundur kominn í
Hnjúk ásamt konu sinni Ólöfu
Sigurðardóttur. Þar batnaði
hagur þeirra hröðum skrefum
og urðu þau vel bjargálna.
Fyrir hjónaband eignaðist
Guðmundur dóttur með Hólm-
fríði Jónsdóttur prests á
Völlum. Hólmfríður prestsdótt-
ir giftist síðar Jóni Jónssyni
,,háa“, sem um skeið var bóndi
á Hjaltastöðum, líklega á Há-
nefsstöðum og Syðra-Hvarfi
yfir verstu harðindaárin. Þau
lifðu við mikið basl og fluttu
stað úr stað, sem endaði með því
að Jón fór á hreppinn og
Hólmfríður hraktist frá honum,
en fékk athvarf hjá frændfólki
sínu í Miklagarði í Eyjafirði. Þar
lést hún 71 árs gömul.
Móðir Hólmfríðar, Guðfinna
Jónsdóttir, prestsekkja á Völl-
um lést þar 1785 hjá sr. Þórði
syni sínum. Ekki mun hafa verið
mikið ríkidæmi á prestsetrinu á
uppvaxtarárum Hólmfríðar.
Þessi hjón, Guðmundur bóndi
á Hnjúki og Hólmfríður voru
foreldrar Sigríðar, konu Þórðar
eldri, bónda þar. Sigríður ólst
upp hjá föður sínum á Hnjúki
eftir frumbernsku. Hún var
talin stjórnsöm kona og mesta
risnumanneskja og í betra lagi
að sér. Þórður og Sigríður urðu
foreldrar Jóns yngra á Y-Hvarfi
föður Jóhanns föðurafa míns
þar á bæ. Sem sagt, þarna er ég
komin inn í ætt Þórðar höku-
langs í Sauðaneskoti.
Jón bóndi í Brautarhóli Jóns-
son Arnfinnssonar átti eina kú í
bústofn eftir harðindin og
flosnaði upp frá búi sínu skömmu
síðar. Á manntalsþingi 1793 er
verslunarskuld hans lýst 20
ríkisdalir og hann talinn vanfær
og félaus öreigi, sem vart ætti
fötin utan á sig. 1801 var hann
ekkill í vinnumennsku á Hofi,
en síðast í skjóli dóttur sinnar
Ragnheiðar á Þverá í Skíðadal,
og andaðist þar háaldraður.
Konu Jóns, Sigríðar Hallgríms-
dóttur er síðast getið er hún fær
arf eftir frænku sína í Eyjafirði
1786 og kann ég ekki skil á því
frekar, en upp komust börnin
og ílendust hér í sveit. Ragnheið-
ur varð kona Sigurðar á Þverá í
Skíðadal og eru þau foreldrar
Þóru á Y-Hvarfi móður Jóhanns
föðurafa míns.
Jón Sveinsson sveitarlæknir,
bóndi á hálflendunni Ytra-
Garðshorni, hafði misst allt sitt
búfé áður en hann lést 1784 61
ára gamall. Hallgerður Hallgríms-
dóttir ekkja hans bjó eitt ár í
Syðra-Garðshorni, flutti síðan í
Ytra-Holt og bjó þar til 1788.
Fór þá til sonar-sonar síns Jóns
frá Þverá, sem þá bjó á Hrafns-
stöðum og síðar á Karlsá og lést
á Hrafnsstöðum 1804. Hallgerð-
ur var að mörgu leyti merk kona
og var um skeið ljósmóðir. Jón
var stundum kallaður „Jón
góði“. Þau voru foreldrar Hall-
gríms bónda á Þverá í Skíðadal.
Þóra á Þverá í Skd. Sigurðar-
dóttir á Hóli og Karlsá Jóns-
sonar lögréttumanns á Hóli var
orðin ekkja fyrir upptök Skaft-
árelda. Hallgrímur bóndi
hennar hrapaði til dauðs í
klettum nálægt bænum. Það
mun hafa verið í Hömrunum,
þessa er getið í annálum og hann
talinn góðbóndaefni. Þóra
bjargaðist sæmilega yfir harð-
indin, kvikfé hennar var þá 2
kýr, 5 kindur og 2 hross. Ekki
hafði hún aðra fyrirvinnu 1786
en drengina sína Sigurð og Jón,
14 og 15 ára gamla, sem urðu
síðar bændur á Þverá og á
Karlsá. Þóra þótti „fróm og
skilvís kona, vel læs og í betra
lagi að sér.“
Þau Hallgrímur voru foreldrar
Sigurðar bónda á Þverá í Skíða-
dal föður Þóru á Ytra-Hvarfi
móður Jóhanns bónda þar föður-
afa míns.
Anna Halldórsdóttir frá Hofi
Skeggjasonar, ekkja Sigurðar á
Karlsá og móðir Þóru á Þverá,
lést 1785 á Karlsá hjá Páli syni
sínum. Systkini Þóru voru Jón
Stórbóndi á Urðum, Páll báta-
smiður og bóndi á Karlsá og
Arnbjörg húsfreyja á Hóli og
kona Rögnvaldar bónda þar.
Öll fæddust þessi systkini á Hóli
á meðan Srgurður og Anna
bjuggu þar. Ekki er ótrúlegt að
það hafi verið styrkur fyrir Þóru
að eiga þetta góða fólk að.
Utbændur á Upsaströnd sóttu
sjóinn fast og björguðust betur
en afdalafólk, þótt nú þyki ekki
lífvænlegt lengur á slóðum
Þórðar hökulangs.
Þar er brim og boðaföll
og bratt að ríða um grundir.
Þar við glymja skerjasköll.
skelfur tíðum undir.
Svo kvað Jón á Karlsá 1830.
Meira að segja er ekki búið
lengur á landnámsiörðinni
Karlsá sjálfri og Hóll er orðinn
ysti bær í byggð á Upsaströnd.
Líka kvað Jón:
Hóll er jörðin happaslyng
hér við rastamiðin . . .
Ennþá búa góðu búi á Hóli
niðjar þessa fólks, sem á að
ættfeðrum og frændum smiði
mikla og galdramenn. En þessir
útverðir Eyjafjarðar kveða ekki
lengur inn á fjörðinn hollenskar
duggur með brennivín og tóbak
innanborðs eins og áður gerðist.
Lokaorð
Sannarlega var það aldrei mein-
ing mín að gera neina úttekt á
Móðuharðindunum eða áhrifum
þeirra á fólk hér í sveit, en hann
Þórður ættfaðir minn höku-
langur lagði þetta upp í hend-
urnar.á mér.
Mér hafa fundist Móðu-
harðindin vera í þvílíkri óra-
fjarlægð. En það er þá ekki
lengra en svo að þarna eru
langa- langa-langaafar mínir og
ömmur, börn þessa voðalega
tíma.
Sannarlega hef ég færst nær
þessu fólki og kynnst því ofur-
lítið. Og nú þykir mér orðið
reglulega vænt um það allt
saman.
Aðalbjörg Jóhannsdóttir.
Sendum starfsfólki
okkar og viðskipta-
vinum
bestu óskir um
GLEÐILEG JÓL
og farsælt
komandi ár.
Þökkum samstarfið.
A Söltunarfélag
Dalvíkur hf.
Dalvík - Sími 61475