Norðurslóð - 24.04.1985, Side 3
Af vettvangi samvinnustarfsins
Opnun Svarfdælabúðar - Deildarfundir
SKIPTING TEKNA EFTIR STARFSGREINUH
Kr. 388.937,199,00
SKIPTING LAUNA EFTIR STARFSGREINUH
Kr. 57.380,000,oo
Starfslið Svarfdælabúðar. T.v. (íylfi Björnsson verslunarstjóri.
í síðasta blaði var frá því skýrt að
til stæði að opna nýju verslunar-
búð Kaupfélagsins á Dalvík
þriðjudaginn 26. mars. Greint
var frá væntanlegum hátíðleg-
heitum í sambandi við þennan
langþráða dag.
Skemmst er frá því að segja að
allt fór þetta eftir áætlun og var
mikil mannaferð í búðinni allan
daginn.
Um kvöldið var stórum hópi
manna, milli 100 og 200, boðið
til sérstakrar athafnar í búðinni.
Var það starfsfólk við verslun-
ina, byggingaverkamenn o.fl.
Þar gerði útibússtjóri,
Rögnvaldur Skíði Friðbjörns-
son, grein fyrir byggingarfram-
kvæmdum, sem að mestu hafa
verið unnar af dalvískum verk-
tökum, Tréverk h.f. Elektro Co
h.f. og fleiri.
Ennfremur töluðu Valur
Arnþórsson, Hjörtur E.
Þórarinsson, Jónmundur
Zópóníasson. Lítillega var
minnst á kostnað við búðina,
sem að vísu er ekki fullgerð enn
og allur kostnaður því ekki
kominn til skila, en tæpt var á 25
milljónum sem lágmarki, þegar
upp verður staðið.
Svo var að sjá að mönnum
litist mæta vel á búðina, enda er
það mál manna að varla gefist
nýtískulegri sölubúð hér
norðanlands. Við þetta tækifæri
las Rögnvaldur útibússtjóri
ákvæðavísu, sem Haraldur
Zópóníasson hafði sent búðinni:
Húsið fylli hamingjunnarskrúð,
heill og blessun líka samantengd
Svífi yfir Svarfdælingabúð
samvinnunnar andi í bráð og
lengd.
Til leigu er
húseignin Karlsbraut 20, Dalvík.
Umsókn sé skilað til sparisjóðs-
stjóra fyrir 12. maí n.k.
gg Sparisjóóur Svarfdœla ■ Dalvik
Veðdeild Landsbanka Islands
auglýsir
Gjalddagi lána veðdeildar er 1. maí n.k. Eins og
áður verður greiðslum veitt móttaka í Sparisjóði
Svarfdæla.
Athugið að eftir 1. júní koma tvöfaldir dráttar-
vextir á lánin. Veðdeildin
ATVINNA
Lausar eru til umsóknar eftirtaldar stöður á
barnaheimilinu Krílakoti, Dalvík.
1. Staða forstöðumanneskju. Staðan er
laus frá 1. ágúst n.k.
2. Staða við barnagæslu á deild. Fóstru-
menntun æskileg. Staðan er laus frá
1. júní n.k.
Umsóknarfrestur er til 10. maí n.k.
Upplýsingar gefur forstöðukona í síma
96-61372 kl. 10.00 - 12.00.
Úr rekstri ÚKEA Dalvik
Á aðalfundi Dalvíkurdeildar
KEA þann 15. apríl komu fram
ýmsar upplýsingar um rekstur
Kaupfélagsins á Dalvík, en
útibúið hér er langstærst og fjöl-
breyttast þeirra, sem félagið
rekur hér við fjörðinn og er að
umfangi á við meðalstórt kaup-
félag annarstaðar á landinu.
Útibússtjórinn, Rögnvaldur
Skíði Friðbjörnsson flutti
skýrslu og sýndi nokkrar fróð-
legar glærur með tölum úr
rekstrinum. Einnig flutti frysti-
stjórinn, Gunnar Aðalbjömsson,
stutta skýrslu og hafði líka
meðferðis glærur, sem sýndu
magn og skiptingu fisk- og
vinnslutegunda.
Við birtum hér til fróðleiks
nokkrar af þessum myndum,
sem að miklu leyti skýra sig
sjálfar.
Deildarstjórn og fundarritari: F.v. Kafn Arnbjörnsson, Jónmundur
Zóphóníasson formaöur, \ aldemar Bragason, Hafsteinn Pálsson.
mo -
Skífa I sýnir hlutfallsskipt-
ingu 5 helstu rekstrargreina
Kaupfélagsins á Dalvík eftir
veltu. Umboðssalan er aðallega
olíusala, undir þjónustuflokkast
fyrst og fremst starfsemi Bíla-
verkstæðisins og undir afurða-
reikninga fyrst og fremst Slátur-
húsið. Skrifuðu tölurnar sýna
veltu hinna einstöku greina í
krónum talið.
Skífa II sýnir hvernig launa-
greiðslur skiptast á milli þessara
5 starfsgreina í prósentum og í
krónum. Eins og sjá má er skipt-
ing launagreiðslna allt önnur en
hlutfallsskipting í veltu, og eru
launagreiðslur í fiskvinnslunni
hátt í 2/3 af heildinni.
Súluritið III sýnir skipting
aflans í 3 megin vinnslugrein-
arnar árin 1980 til 1984 þ.e.
frysting (hvítt), söltun (svart) og
skreið (strikað). Athyglisvert er
að heildarafli hefur lækkað um
ca fjórðung frá toppárinu 1980.
Skreiðin hefur næstum horfið,
en hlutur frystingar hefur vaxið
úr rúmum helming af afla í meir
en þrjá fjórðu hluta. Launa-
greiðslur við frystingu eru hlut-
fallslega miklu hærri en við
hinar vinnsluaðferðirnar.
Að lokum skal þess getið að
afurðir Fiskvinnslustöðvar
KEA í tonnum talið árið 1984
var sem hér segir: Freðfiskur
1744.5. Saltfiskur 499,0. Skreið
37.5. Hausar 239,2. Dálkar 18,3
og Lýsi 25,7.
FRYSTIHUS KEA
á Dalvík
sendir starfsfólki og
viðskiptavinum
á sjó og landi bestu óskir um
sumar.
Þökkum samstarfið á liðnum vetri.
NORDURSLÓÐ 3